Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 32
Núna höfum við komið okkur upp nýrri tækni til þess að selja tengiflug. Okkar tækni gerir öllum flug- félögum kleift að selja tengiflug á einfaldan hátt og ódýran fyrir þau og viðskiptavini. Davíð Gunnarsson Dohop er íslenskt ferða- tæknifyrirtæki með höfuð- stöðvar í Nóatúni í Reykja- vík og er með 17 ára reynslu í þróun nýstárlega lausna á sviði flugs og ferðamála. Fyrirtækið er með starfsemi í sjö löndum um allan heim en kjarna- starfsemin er hér á landi. Dohop hefur vaxið hratt á síðustu mán- uðum til að takast á við hraðan bata flugiðnaðarins eftir Covid- heimsfaraldurinn. Kjarnatækni Dohop beinist að því að aðstoða fólk við að finna og búa til f lugtengingar, en leitar- vélin dohop.is hefur verið valin af Íslendingum í gegnum tíðina til að finna bestu valkostina fyrir ferðalög sín. Flugleitarvél Dohop hefur sankað að sér mörgum verð- launum og í fimm ár í röð var hún valin sú besta í heimi af World Travel Awards, síðast árið 2021. Þótt Dohop sé fyrst og fremst þekkt hér á landi fyrir flugleitarvél sína hefur áhersla fyrirtækisins færst til á síðustu árum og megin- framboð þess hefur beinst að flug- félögum og flutningafyrirtækjum. Dohop hefur verið drifkraftur hug- arfarsbreytinga hjá flugfélögum undanfarin ár og í atvinnugrein þar sem mikil áhersla var áður á samkeppni, hefur samstarf flug- félaga aukist til muna. Með tækni Dohop geta flugfélög auðveldlega unnið saman ásamt því að geta unnið með lestar- og rútufyrir- tækjum og ávinningur þeirra af samstarfi er augljós. Meira en 50 flugfélög víðs vegar um heim hafa nýtt sér tækni Dohop og þar má nefna Air France, easyJet, Air Transat, Avianca, Vueling, og Jetstar. Flugfélögin nýta sér tækni Dohop til að bjóða viðskiptavinum sínum upp á flug- samgöngur milli þeirra eigin fluga og flugfélaga samstarfsflugfélaga. Dohop er einnig komið í sam- starf við þýska lestarfyrirtækið Deutche Bahn sem nýtir tækni fyrirtækisins til að tengjast flug- félögum eins og easyJet og Vueling. Það gerir ferðamönnum kleift að bóka tengingar milli f lugs og járn- brauta í einu lagi. Gjörólíkt fyrirtæki í dag „Fyrirtækið í dag er gjörólíkt því sem það var við stofnun 2004. Í fyrstu vorum við með vefsíðuna okkar, dohop.is, þar sem við hjálp- uðum fólki að finna flug, hótel og bílaleigubíla. Tíu árum frá stofnun Dohop fórum við hægt og rólega að útvíkka fókusinn, fórum úr því að vera bara með flugleit og verð- samanburð, yfir í f lugtengingar. Árið 2015 byrjuðum við að vinna með Gatwick-flugvelli í London og árið 2017 fórum við í loftið með fyrstu flugfélagsvöruna, þegar við hófum samstarf við easyJet. Fókusinn hefur breyst töluvert. Við erum ekki á kafi í markaðs- setningu til einstaklinga heldur erum við fyrst og fremst að leita að viðskiptavinum og þeir eru nánast allir á erlendri grundu,“ segir Davíð Gunnarsson, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Dohop frá árinu 2009. Davíð segir að samkeppnin sé nokkuð hörð í þessum geira. „Við erum alltaf að sjá meiri og meiri samkeppni. Þegar við byrjuðum í þessu var óplægður akur í þessum bransa. Það eru nokkur fyrir- tæki sem gera svipaða hluti en við erum í forystu eins og er. Við erum annað hvort í samstarfi eða í viðræðum við mörg af stærstu flugfélögum í heimi og höfum komið víða við í því samhengi. Ég bjó í Bretlandi um tíma frá 2018 til 2020 og það var fyrst og fremst gert til þess að auðvelda lífið í sam- bandi við ferðalög. Það er kúnst að reka svona fyrirtæki frá Íslandi. Maður þarf að komast auðveldlega hvert sem er og vera nálægt fólki. Ég hef ferðast töluvert til Asíu og Bandaríkjanna. Það er ekki allt til í beinu flugi héðan en það var allt til í beinu flugi frá London. Núna höfum við komið okkur upp nýrri tækni til þess að selja tengiflug. Okkar tækni gerir öllum flugfélögum kleift að selja tengi- flug á einfaldan hátt og ódýran fyrir þau og viðskiptavini. Það gerir flugfélögum af mismunandi gerðum fært að vinna saman. Icelandair og Play eru til að mynda mjög ólík flugfélög í eðli sínu. Icelandair er hefðbundið flug- félag og sinnir sínum verkefnum á ákveðinn hátt á meðan Play er rekið á allt öðrum forsendum. Almennt þá geta þau ekki unnið mikið saman ef þau vilja selja tengiflug í gegnum Keflavík, en við getum einfaldað það,“ segir Davíð. Nýtt húsnæði og fjölgun starfsmanna Davíð segir að Dohop sé með 70 starfsmenn, auk 50 starfsmanna í þjónustuveri sem þjónusta tengi- farþega. Davíð sér fyrir sér að starfsmönnum eigi eftir að fjölga á næstu misserum. „Við reiknum með því að bæta við starfsmönnum. Við erum með í undirbúningi á þessu ári að flytja í nýtt húsnæði. Við höfum ráðið 30 starfsmenn á þessu ári og þeim þannig fjölgað úr 40 í 70. Við reiknum með að vera komin með 85 starfsmenn í lok næsta árs en allt þetta ræðst af því að vel gangi, það komi ekkert bakslag eftir Covid-batann og við náum okkar markmiðum varðandi tekjuvöxt. Covid-tíminn var mjög erfiður og við vorum mjög nálægt því að fara á hausinn 2020. Við vorum komin langt í viðræðum við fjár- festa fyrir Covid en þær runnu út í sandinn í mars 2020 þegar Covid var komið á fullt. Við náðum hins vegar fjárfestunum aftur að borð- inu og kláruðum þau mál í nóvem- ber 2020. Við tókum svo inn meira fjármagn frá sömu fjárfestum í mars á þessu ári. Þessi samningur styrkti til muna undirstöður fyrir- tækisins á meðan Covid gekk yfir,“ segir Davíð, en breski fjárfestinga- sjóðurinn Scottish Equity Partners tryggði Dohop frekara fjármagn, sem gerir fyrirtækinu kleift að auka vöxt sinn og efla tækni sína. „Það er allt komið á fulla ferð, þó eru stór lönd eins og Kína og Japan enn lokuð. Okkur vantar enn þennan massatúrisma frá Asíu sem kemur til Evrópu og til Bandaríkjanna, þar sem Dohop er með sterk viðskiptasambönd. Það er enn mikill bati inni og hjá okkur ríkir bjartsýni. Af því að vinnum mest með erlendum viðskipta- vinum og á erlendum mörkuðum þá erum við ekki beinlínis að horfa á hvernig efnahagsástandið er hérna heima.“ n Í samstarfi við mörg af stærstu flugfélögum heims Dohop hefur komið sér upp nýrri tækni til þess að selja tengiflug. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 18 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.