Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 33
Háskóli Íslands er leiðandi í nýsköpun hér á landi, hvort sem litið er til rann- sókna eða kennslu, og innan hans er stunduð nýsköpun á öllum fræðasviðum. Á síðustu árum hefur Háskóli Íslands lagt áherslu á að byggja upp öflugt stuðnings- umhverfi nýsköpunar til að auka verðmætasköpun og velsæld fyrir land og þjóð. Háskóli Íslands stofnaði Vísinda- garða árið 2004 en starfsemi garð- anna hefur eflst mikið síðustu ár. „Í Vísindagörðum Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni eru starfandi öflug alþjóðleg fyrirtæki sem m.a. koma að þróun náms og kennslu sem og rannsóknum og nýsköpun innan skólans. Í nýjasta húsi Vísinda- garða, Grósku, er að finna Mýrina – sprotasetur Vísindagarða, þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, starfsfólk og nemendur, sem taka sín fyrstu skref í nýsköpun, hafa aðsetur. Þar starfa einnig mikilvægir stuðn- ingsaðilar sprotaumhverfisins, s.s. Auðna tæknitorg, Klak – Icelandic Startups og Nýsköpunarstofa menntunar,“ segir Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands. „Háskóli Íslands leiddi stofnun tækniyfirfærsluskrifstofunnar Auðna tæknitorg sem stofnuð var í lok árs 2018, en hlutverk hennar er m.a. að markaðssetja rannsóknir sem verða til innan háskólanna auk þess sem Auðna stendur fyrir svokölluðu Master class-námskeiði í verðmætasköpun sem starfsmenn og nemendur Háskóla Íslands sækja. Í byrjun árs var Nýsköp- unarstofa menntunar stofnuð í samstarfi við Reykjavíkur borg, en tilgangur hennar er m.a. að leiða saman krafta frumkvöðla úr menntakerfinu, fræðasamfélaginu og fyrirtækjum landsins, til að skapa fjölbreyttan vettvang fyrir mótun og þróun nýrra leiða og aðferða á sviði náms og mennt- unar. Háskóli Íslands er einn af eig- endum Klaks – Icelandic Startups og er bakhjarl Gulleggsins, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, en auk Gulleggsins starfrækir Klak ýmsa hraðla og aðstoðar nemendur sem hafa aðstöðu í Sprotamýri í Mýrinni. Háskóli Íslands og Reykja- víkurborg standa að Snjallræði sem er hraðall fyrir samfélagslega nýsköpun. Þá hefur Háskóli Íslands í samstarfi við sendiráð Banda- ríkjanna um tveggja ára skeið staðið fyrir AWE-nýsköpunarhraðli fyrir konur. Ljóst er að auka þarf þátttöku kvenna í nýsköpun og hefur AWE-hraðallinn nú þegar skilað miklu. Háskóli Íslands er stoltur af nýsköpunarframlagi starfsmanna og nemenda sinna. Frá 1998 hefur skólinn staðið fyrir árlegri sam- keppni um Vísinda- og nýsköp- unarverðlaun Háskóla Íslands þar sem leitað er eftir nýstárlegum hugmyndum til að stuðla að sam- félagslegum og hagrænum fram- förum. Mörg glæsileg verkefni hafa komið út úr þessari samkeppni og hafa sprotafyrirtæki verið stofnuð um mörg þeirra, en Háskóli Íslands á nú hlut í 20 sprotafyrirtækjum á grunni rannsókna starfsfólks. Auk framangreinds býður Háskóli Íslands upp á meistara- nám í nýsköpun og viðskiptaþróun sem er sameiginleg námsleið viðskiptafræðideildar og iðnaðar- verkfræði-, vélaverkfræði og tölv- unarfræðideildar. Því til viðbótar býður Háskóli Íslands upp á um 70 nýsköpunartengd námskeið á öllum fræðasviðum. Í núverandi stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, er rík áhersla lögð á nýsköpun og að efla enn frekar umhverfi nýsköpunar nemenda og starfsfólks í samstarfi við Vísinda- garða, atvinnulíf og samfélag. Liður í því er m.a. aukinn þungi á samtal skólans við atvinnu- líf, fjölgun þverfaglegra nám- skeiða í frumkvöðlafræðum og samfélagslegri nýsköpun, efling íslenskunnar í heimi breytinga, styrking nýsköpunarmenningar og stuðningur við hagnýtingu rannsókna og aukið samstarf við önnur skólastig um nýsköpun og vísindi. Hlutverk Háskóla Íslands er að leggja af mörkum til samfélags og atvinnulífs og vera mikilvæg undirstaða nýsköpunar og framfara í landinu. Því hlut- verki ætlum við svo sannarlega að standa undir.“ n Háskóli Íslands er leiðandi í nýsköpun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að í núverandi stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, sé rík áhersla lögð á nýsköpun MYND/KRISTINN Nú á haustdögum tekur til starfa Nýsköpunar- stofa menntunar í Grósku á vettvangi Vísindagarða. Hlutverk stofunnar er að leiða saman krafta fræða- samfélagsins, frumkvöðla og atvinnulífs, til að stuðla að nýsköpun á sviði mennt- unar. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs og stjórnar- formaður stofunnar, segir að mikil nýsköpun sé á sviði menntunar og að ómetanleg tækifæri felist í að efla tengslanet hagaðila á þeim vettvangi. Nýsköpunarstofa menntunar er samstarfsverkefni aðila úr fræða- og fagsamfélagi og úr atvinnulífinu en háskólinn og Reykjavíkur- borg standa að daglegum rekstri hennar. „Menntun er grunnstoð hvers samfélags og því skiptir öllu máli að leiða saman krafta allra þeirra sem starfa og brenna fyrir menntun, hvort sem um er að ræða formlegt eða óformlegt nám,“ segir Kolbrún. Í kjölfar heims- og tækni- væðingar kalla samfélög sífellt á endurnýjaða hæfni og þekk- ingu. „Hlutverk Nýsköpunarstofu menntunar er að skapa tengslanet og vettvang til samstarfs fyrir breiðan hóp hagsmunaaðila sem eiga mikið undir því að efla nýsköpun á sviði náms, kennslu, þjálfunar og fræðslu.“ Á undanförnum áratugum hefur stafrænni þróun og nýtingu hug- búnaðar til kennslu fleytt gríðar- lega fram og Kolbrún bendir á að sú staðreynd hafi meðal annars gert nemendum að hluta til kleift að stunda nám á tíma heims- faraldurs. „En tæknin er eingöngu verkfæri, hún er ekki markmið í sjálfu sér,“ segir hún. „Við þróum og innleiðum tækni í þágu til- tekinna markmiða sem á vett- vangi menntunar snúast ávallt um menntahugsjónina sjálfa, mennsk- una, samskipti milli fólks og betra samfélag. Okkur er því ekki alltaf tamt að tala um nýsköpun í þessu samhengi, þar sem nýsköpun er gjarnan fyrst og fremst tengd þróun tækni og verkvits.“ Kolbrún telur mikilvægt að renna styrkari stoðum undir reynslu ungs fólks á öllum skólastigum af samfélagslegri nýsköpun: „Eitt af verkefnum Nýsköpunarstofunnar verður einmitt að bjóða upp á fræðslu og þjálfun í aðferðum og verkfærum samfélagslegrar nýsköpunar, ekki síst fyrir áhugasama kennara allra skólastiga en einnig fyrir nem- endur, ekki síst háskólanema.“ Auk þess mun stofan skipu- leggja árlegan nýsköpunarvið- burð á sviði menntunar og skapa formlegan og óformlegan vettvang til samvinnu um nýsköpun og framtíð menntunar. Horft er til erlendra fyrirmynda, meðal annars Finnlands og Kanada, og stendur til að bjóða til lands- ins erlendum sérfræðingum til skrafs og ráðagerða. „Við finnum fyrir góðum stuðningi stjórn- valda, sem hafa raunar þegar falið háskólanum að halda utan um tiltekin verkefni á sviði nýsköp- unarmenntunar, svo sem nýsköp- unarkeppni grunnskóla,“ segir Kolbrún. Skóla- og frístundasvið Reykja- víkurborgar rekur Mixtúru, sköpunar- og tæknismiðju fyrir skóla- og frístundastarf og mun sú eining koma að starfsemi stof- unnar. „Hér er að skapast tækifæri til að nýta mannauð og þekkingu í þágu landsins alls. Nýsköpunar- stofa menntunar mun leggja kapp á að hugvit og þekking á sviði menntunar nýtist til að skapa betra samfélag, sem einkennist af velferð, árangri og virkri þátttöku samfélagsþegna.“ n Nýsköpunarstofa menntunar tekur til starfa Kolbrún segir að Nýsköpunarstofa menntunar muni leggja kapp á að hugvit og þekking á sviði menntunar nýtist til að skapa betra samfélag. MYND/K.I. Snorri Þór Sigurðsson, prófessor í efnafræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hefur þróað stak- eindir sem munu nýtast vel í rannsóknum á fjölmörgum fræðasviðum. Kjarnsegulgreining er mikið notuð við rannsóknir á lífsam- eindum sem tengjast sjúkdómum í því augnamiði að leita lækninga. Líklegt er að stakeindirnar muni gagnast við slíkar rannsóknir og þar með hafa óbein áhrif á þróun læknisfræði, að því er Snorri greinir frá. Þegar hann er spurður um hagnýtt gildi upp- finningarinnar, svarar hann: „Flestir þekkja segulómun, sem notuð er til að skoða vefjabygg- ingu. Slíkar mælingar fara fram í segulsviði og gefa upplýsingar um atómkjarna sem notaðir eru til að útbúa myndir af vefjunum. Kjarnsegulgreining er almennt nafn yfir slíkar litrófsmælingar og er mikið notuð til rannsókna á byggingu margvíslegra efnasam- banda, sem nýtist meðal annars við þróun á nýjum efnum með eftirsóknarverðari eiginleika,“ útskýrir Snorri og bætir við: „Einn galli við þessa greiningaraðferð er að hún er ekki mjög næm. Hún krefst mun meira efnis en margar aðrar litrófsgreiningaraðferðir og mælingar taka langan tíma. Sum efni er því hreinlega ekki hægt að rannsaka með þessari aðferð. Aftur á móti er unnt að auka veru- lega næmni kjarnsegulgreininga með því að bæta stöðugum stak- eindum í sýnin og nota sérútbúna kjarnsegulgreina. Þar skiptir bygging stakeindanna miklu máli. Stakeindirnar, sem við höfum þróað, Asympol og Pyrrotripol, eru fremstar í f lokki varðandi mögnun á næmni kjarnsegul- greiningar,“ segir hann. Snorri er spurður hvers vegna þróuð hafi verið tvö mismunandi efni. „Það kom í ljós að virkni stakeindanna fer eftir styrk segul- sviðsins. Asympol gefur betri niðurstöður við lægra segulsvið og Pyrrotripol við hærra segul- svið. Einnig má nefna að efnin sem við höfum útbúið eru í raun f leiri en tvö, því Asympol og Pyr- rotripol eru efnaflokkar sem inni- halda afleiður er hafa mismun- andi eðliseiginleika, til að mynda leysni,“ segir hann, en unnið hefur verið að þróun þessara efna frá árinu 2015. „Við erum búin að fá einkaleyfi fyrir Asympol og sóttum um einkaleyfi fyrir Pyr- rotripol í september 2021. Tvær Asympol-afleiður voru settar á markað í byrjun þessa árs, Asym- pol-POK, sem er fyrir mælingar í vatnslausnum, og Asympol-TEK, sem er fyrir mælingar í lífrænum leysum,“ segir Snorri Þór. „Verkefnið er unnið í sam- starfi við vísindamenn við CEA rannsóknastofnunina í Grenoble, Frakklandi, sem og við Florida State-háskólann í Bandaríkjunum. Okkar sérfræði- þekking liggur í efnasmíðum á stakeindum, en samstarfsmenn okkar eru sérfræðingar í notkun tölvureikninga til að meta mögn- unarhæfni stakeinda áður en við ráðumst í efnasmíðar þeirra. Sam- starfsmenn okkar mæla einnig hversu mikið næmni kjarnsegul- greiningar eykst við notkun nýrra stakeinda.“ n Uppgötvun sem nýtist við rannsóknir Snorri Þór Sigurðsson hefur verið að þróa stakeindir sem munu nýtast vel í framtíðinni við rannsóknir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK kynningarblað 19FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.