Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 34
Í hugbúnaðinum Empower Now mun starfsfólkið svara spurningakönnun reglulega og þannig miðla til fyrirtækisins sinni upplifun og líðan í vinnunni. Sigyn Jónsdóttir 20 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN Sigyn Jónsdóttir leiðir þróun á nýrri hugbúnaðarlausn sem byggir á íslensku hugviti. Hún segir lausnina eiga erindi við alla vinnustaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Empower er nýsköpunar­ fyrirtæki í jafnréttismálum. Þessa dagana er fyrirtækið að þróa hugbúnaðinn Em­ power Now sem er heildræn lausn í jafnrétti og fjölbreyti­ leika með sérstaka áherslu á vinnustaðamenningu. sandragudrun@frettabladid.is Empower Now verður hugbún- aður á vefformi. Hann mun hjálpa stjórnendum fyrirtækja að fylgjast með stöðu mála hvað varðar jafnrétti og fjölbreytileika innan fyrirtækisins. Sigyn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðar- þróunar (CTO) Empower, leiðir hugbúnaðarþróunina. „Hugbúnaðarþróunin er á fyrstu stigunum núna en ráðgjöf í jafn- réttismálum á vinnustöðum er eitthvað sem Empower hefur veitt um árabil,“ segir Sigyn. „Það er mjög skemmtilegt að vinna í nýsköpun, sérstaklega þegar þú ert að vinna með aðferða- fræði sem þú veist að virkar og hefur verið sannreynd í formi ráð- gjafar. Þó að hugbúnaðarþróunin sé nýlega hafin þá er hugmyndin fullmótuð.“ Empower Now er SaaS-hugbún- aðarlausn sem gerir stjórnendum og starfsfólki kleift að fylgjast með stöðu mála hvað varðar jafnrétti og fjölbreytileika í fyrirtækinu og bregðast við ef staðan er ekki nógu góð. „Þetta er tól fyrir stjórnendur og starfsfólk. Stjórnendur hafa þar mælaborð yfir hina ýmsu mælikvarða sem fyrirtækið þarf að fylgjast með og geta fylgst með líðan fólks í vinnunni. Stjórnendur hafa þar líka tæki og tól til að bregðast við ef eitthvað þarf að bæta. Það gera þau með aðferðafræði Empower, sem er í formi örfræðslu fyrir starfsfólk. Fyrirtækin miðla fræðslu til starfs- fólksins um efni tengt fjölbreyti- leika og jafnrétti, sem er sérsniðið að þörf hvers og eins fyrirtækis, og bæta þannig vinnustaðamenn- inguna,“ útskýrir Sigyn. Í gegnum hugbúnaðinn munu stjórnendur fyrirtækja fá aðgang að mælaborði í jafnrétti og fjöl- breytileika þar sem þau geta séð stöðuna innan fyrirtækisins og sett sér mælanleg markmið út frá mælikvörðum sem Empower hefur smíðað, meðal annars í sam- starfi við Kynjafræðideild Háskóla Íslands. „Við hjá Empower höfum verið að gera könnun undanfarin ár sem heitir Kynin og vinnustaðurinn. Þetta er könnun sem er sannað að mælir í raun upplifun fólks á vinnustað. Í hugbúnaðinum Empower Now mun starfsfólkið svara spurningakönnun reglulega og þannig miðla til fyrirtækisins sinni upplifun og líðan í vinnunni. Í hugbúnaðinum verður einnig fræðsla fyrir starfsfólk um jafn- réttismál og fjölbreytileika og ýmis mál tengd vinnustaðamenningu ,“ segir hún. „Stjórnendur hafa aftur á móti einir aðgang að mælaborðinu. Þar munu þau geta sett sér markmið og borið sig saman við önnur fyrir- tæki á Íslandi eða önnur fyrirtæki í sama geira. Þannig geta þau séð hvar fyrirtækið stendur sig vel og hvar það þarf að bæta sig. Þetta skiptir ótrúlega miklu máli bæði fyrir fólk og fyrirtæki.“ Byggir á áratugareynslu Aðferðafræði Empower, sem hug- búnaðurinn byggir á, er algjörlega íslenskt hugvit. Hún byggir á ára- tugareynslu stofnenda af stjórn- endaráðgjöf, mannauðsmálum og jafnréttismálum. „Empower Now verður eina lausnin á sérskilgreindum markaði í fjölbreytileika og jafnrétti, sem býður upp á heildstæða nálgun á jafnréttismál fyrirtækja. Við erum með notendur í ráðgjöfinni sem verða væntanlega fyrstu notendur hugbúnaðarins. Nýsköpunarfyrir- tæki fara í gegnum mikið nálar- auga í fjármögnunarferlinu, bæði notendaviðtöl og prófun á hug- myndinni. Það er því mikil viður- kenning fyrir okkur að hafa fengið svo stóra fjármögnun í vor frá traustum fjárfestum,“ segir Sigyn, en Empower fékk á vormánuðum 300 milljón króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin. Hún segir að enn sem komið er hafi Empower-hugmyndafræðin eingöngu verið notuð á Íslandi en markaðsstarf erlendis sé nú þegar hafið. „Við höfum mjög dýrmæta reynslu af jafnréttismálum hér á landi og það er gaman að geta breitt út boðskapinn erlendis. Við erum mjög stolt af því sem við erum að gera. Við erum komin svo langt hér á landi á ýmsum sviðum jafnréttis þó það megi alltaf betur fara. Það er því mjög áhugavert fyrir erlend fyrirtæki að taka við jafnréttisfræðslu frá Íslandi,“ segir hún. Sigyn segir að til að mæta auknum umsvifum séu þau hjá Empower að stækka teymið mjög hratt. Í haust verða starfsmenn orðnir tíu talsins að vinna að ólíkum verkefnum í hugbúnaðar- þróun, hönnun og í efnissmiðju. „Við erum að setja sannreynda aðferðafræði yfir í hugbúnaðar- lausn til að hægt sé að ná til fyrir- tækja um allan heim og uppfæra fræðsluna hratt í takt við mismun- andi þarfir fyrirtækja. Empower Now er lausn sem á klárlega erindi á hvaða vinnustað sem er.“ n Hugbúnaður sem eykur jafnrétti  Tækniþróunarsjóður Náðu lengra með Tækniþróunarsjóði tths.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.