Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 44
Þetta er 90 prósent maðurinn og hann þarf að vera með hausinn í lagi og vita nákvæmlega hvað hann er að gera. Davíð Þór Einarsson lagði sig allan fram, bókstaflega, þegar hann skrúfaði frá nítróinu á Suzuki Hayabusa hjólinu sínu og spyrnti því upp í 265 kílómetra hraða, sem skilaði honum Íslandsmeistaratitli í flokki breyttra mótorhjóla á kvartmílubrautinni í Hafnar- firði. toti@frettabladid.is „Þetta er bara besti tími sem hefur verið farinn á Íslandi,“ segir Davíð Þór Einarsson, Íslandsmeistari í spyrnu í B-f lokki breyttra mótor- hjóla, sem landaði titlinum með því að fara kvartmíluna á 8,492 sekúnd- um á 164,7 mílna hraða, sem hann síðan bakkaði upp með tímanum 8,55 sekúndum. „Það er bara beint af augum með adrenalínið í botni, nítró og allan pakkann,“ segir Davíð Þór, þegar hann er spurður hvernig tilfinn- ingin er þegar brunað er á tæplega 300 kílómetra hraða. Hvort vegur þyngra í slíkum hrað- akstri, ökumaðurinn eða hjólið? „Þetta er 90 prósent maðurinn og hann þarf að vera með hausinn í lagi og vita nákvæmlega hvað hann er að gera. Ég var alveg búinn að æfa mig í að minnsta kosti tvö ár áður en ég fór að skrúfa frá nítróinu. Vegna þess að startið skiptir svo miklu máli,“ segir Davíð Þór, sem vandi sig meðal annars á að horfa í rétta átt. „Fyrst þegar maður var að byrja var maður að horfa á stúkuna en þú gerir ekkert svoleiðis. Þetta er bara eins og í fótboltanum, þú ert ekkert að horfa á stúkuna þegar þú ert að spila fótbolta. Þú ert að spila fótbolta og verður bara að einbeita þér að því sem þú ert að gera.“ Allir þekkja Spiderman „Ég er með svo mikið af hjólum að þetta er alveg útgerð og ég er með sérstakan bíl utan um þetta,“ segir Davíð Þór sem keppir í bæði kvart- mílu og sandspyrnu, en hraðametið sló hann á Suzuki Hayabusa. Trylli- tæki sem kennt er við sjálfan Spi- derman og er vel þekkt meðal þeirra sem fylgjast með mótorsportinu. „Hjólið heitir Spiderman og menn vita hvaða hjól það er,“ segir Davíð Þór um hjólið sem hann mætti á til leiks með nýrri vél, sem dugði til þess að hann endurheimti titilinn. „Ég er búinn að vera Íslandsmeist- ari 2019 og 2020 en svo hrundi vélin. Ég braut vélina í átökum síðasta sumar. Þetta er bara svoleiðis og þá keppti ég bara á venjulegu hjóli en var samt í 2. sæti. Svo fékk ég nýja Skrúfað frá nítróinu og adrenalínið flæðir Adrenalínið og nítróið er skrúfað í botn þegar Davíð Þór leggur sig mjög bókstaflega fram um að slá hraðametin á tæplega 300 kílómetra hraða á klukkustund. MYND/SÆMUNDUR ERIC vél í hjólið fyrir sumarið og er orð- inn Íslandsmeistari aftur.“ 300 trylltir hestar Aðspurður segir Davíð Þór þá sem keppa í flokki breyttu hjólanna alla álíka klikkaða. „Við erum búnir að vera þrír núna að berjast um þetta í sumar og eftir að ég fékk gaur frá Bandaríkjunum sem náði að laga hjólið til það vel að það virkar bara. Það eru 80 hestöfl í nítróinu og svo er hjólið 220 hestöfl þegar búið er að tjúna það upp. Þetta eru yfir 300 hestöfl þannig að maður liggur eiginlega bara á þessu hjóli,“ segir Davíð Þór sem telur út í hött að tala um að sitja hjólið þegar allt er gefið í botn. n Davíð Þór var ellefu ára Eyja­ peyji þegar hann byrjaði að hjóla og tók skellinöðru­ tímabilið með trompi. MYND/AÐSEND Davíð Þór missti af Íslandsmeist­ aratitlinum í fyrra þegar vélin í hjólinu hrundi en endurheimti hann í ár með nýrri vel og vel tjúnuðum Spider man. MYND/AÐSEND toti@frettabladid.is Skammt er milli stórra högga hjá tónleikahöldurunum Grími Atla- syni og Tómasi Young, sem segjast boða tónlistaráhugafólki mikinn fögnuð með tónleikum Thurston Moore í Hljómahöllinni í Reykja- nesbæ í október, eftir að vera nýbúnir að halda tónleika með Aldous Harding á sama stað. Rétt eins og í tilfelli Harding telja þeir félagar Thurston Moore og hljómsveit sannkallaðan hvalreka á Íslandi, en Thurston stofnaði eina áhrifamestu hljómsveit síðustu ára- tuga, Sonic Youth, ásamt Kim Gor- don, árið 1981. Þeir segja tilraunir Sonic Youth með riff og gítarstillingar í bland við dásamlega samsettar laglínur hafa um margt breytt landslaginu á jaðr- inum í tónlistinni og rutt brautina fyrir bönd á borð við Nirvana og My Bloody Valentine. Eftir að Sonic Youth lagði, mögu- lega tímabundið, upp laupana 2011 hefur Thurston haldið áfram með sólóferil sem hófst árið 1995 með útgáfu Psychic Hearts. Hann hefur gefið út samtals sjö sólóplötur auk þess sem hann hefur gefið út fjölda hljómplatna sem meðlimur ýmissa hljómsveita og verkefna. Hljómsveitin er, auk Moore, skip- uð bassaleikaranum Debbie Googe, sem er jafnframt bassaleikari My Bloody Valentine, James Sedwards og síðast en ekki síst Steve Shelley sem spilar á trommur en hann starf- aði með Thurston í Sonic Youth. Tónleikarnir fara fram í hinum frábæra tónleikasal Stapa í Hljóma- höll þann 9. október, á afmælisdegi sjálfs Johns Lennon. Húsið verður opnað klukkan 19, upphitun hefst klukkan 20 og Thurston Moore stígur á svið klukkan 21. Miðasala hefst fimmtudaginn 1. september á tix.is. Sætaferðir verða frá Reykjavík á tónleikana og er miðasala í rúturnar einnig á tix.is. n Annar hvalreki í Hljómahöllinni Thurston Moore kemur fagnandi í Hljómahöllinni í október. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið 16 Lífið 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.