Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 2
Notkun ADHD-lyfja jókst um tæp tuttugu prósent frá 2020 til 2021. Þrír heimar mætast Það er óhætt að segja að veðrið hafi ekki leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins og nágrennis í gær þegar rigning og rok einkenndu daginn. Þessir þrír létu veður og vinda þó ekki stoppa sig og sinntu sínu meðan þeir ýmist hlupu eða gengu með fram Sæbrautinni í úrhellisrigningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK helenaros@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Notkun ADHD- lyfja árið 2021 var mest á meðal drengja á aldrinum 10 til 14 ára. Á síðasta ári fengu 166 af hverjum þúsund drengjum ávísað slíkt lyf að minnsta kosti einu sinni. Þetta kemur fram í nýjasta tölu- blaði Talnabrunns, fréttabréfs Emb- ættis landlæknis. Notkun ADHD-lyfja hjá börnum og fullorðnum jókst um tæp tutt- ugu prósent á milli áranna 2020 til 2021. Notkunin nam rúmlega 51 dagskammti á hverja þúsund íbúa á dag samanborið við 43 dagskammta árið áður. Samkvæmt fyrri úttektum Emb- ættis landlæknis á notkun ADHD- lyfja á Íslandi má sjá að notkun þeirra hefur aukist mikið undan- farinn áratug. n Ungir drengir notuðu mest af ADHD-lyfjum Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona sótti dóttur sína í Reykjadal fyrir tveimur vikum og áttaði sig á að staðurinn væri byrjaður að drabbast niður. Aðgengismálum væri ábótavant. Hún sendi því póst á Harald Þorleifsson sem svar- aði um hæl og verður fyrsti rampurinn vígður á morgun. benediktboas@frettabladid.is   SAMFÉLAG „Haraldur á að vera okkur öllum fyrirmynd. Þetta er ekki síst innblástur varðandi það hversu hratt hlutir geta gengið fyrir sig með samtakamætti og kannski smá brjálæði. Þarna kemur hann, grípur boltann og þrykkir öllu í gang. Við erum í alvörunni í sjokki yfir því hversu hratt þetta hefur gengið fyrir sig. Það eru tvær vikur síðan við sóttum dóttur okkar í Reykjadal,“ segir Unnur Ösp Stef- ánsdóttir en á morgun verður fyrsti nýi rampurinn í Reykjadal vígður. Ramparnir í Reykjadal voru margir hverjir orðnir lúnir og þreyttir og því er þetta kærkomið. Leikarahjónin Unnur Ösp og Björn Thors þekktu athafnamann- inn Harald Þorleifsson ekki neitt fyrir. Þau sóttu dóttur sína Bryn- dísi í Reykjadal og keyrðu burt með tárin í augunum en hjartað fullt af þakklæti enda Reykjadalur ein- stakur staður. Á heimleiðinni helltust tilfinn- ingarnar yfir þau. „Þessi staður er uppfullur af slíkum mannauði og kærleika að maður á ekki orð af þakklæti en húsnæðið er byrjað að drabbast niður. Og merkilegt nokk eru aðgengismálin ekki í lagi. Við fórum að tala um þetta og í algjöru hvatvísiskasti settist ég niður við tölvuna og sendi á Harald. Ég þekkti hann ekki neitt. En ég segi honum söguna, hann svarar örskömmu síðar og spyr hvað þurfi að gera og hvernig.“ Unnur viðurkennir að hún hafi ekki alveg átt von á svona skjótum svörum. „Ég hef alveg setið í stjórnum sem hafa fundað um safnanir svo mán- uðum skiptir en þetta kennir manni að það er hægt að gera hlutina ansi hratt. Stjórnsýslan mætti alveg vinna á þessum hraða,“ segir hún. Unnur og aðrir foreldrar ætli ekki að láta staðar numið heldur gefa hreinlega í og taka Reykjadal í gegn enda margt komið til ára sinna inn- andyra. „Mér finnst þetta vera inn- blástur fyrir okkur sem samfélag og eins fyrir fólk með fjármagn á milli handanna sem getur látið hjartað tikka á réttum stað og láta gott af sér leiða. Okkur, ásamt fleiri foreldrum, langar að þetta verði okkur hvatn- ing til að halda áfram, þetta er bara byrjunin. Við ætlum að starta átaki um að taka Reykjadal í gegn. Við eigum dóttur sem kemst ekki í barnaafmæli í Ævintýralandi í Kringlunni eða Smáralind. Börn í hjólastól hafa ekki þau tækifæri. Auðvitað eigum við þá að búa til f lottasta Ævintýralandið í Reykja- dal, í sumarbúðum fatlaðra barna. Búa til herbergi með boltalaug, dýnum, litum og gleði. Þess vegna langar okkur til að hvetja fyrirtæki til að hoppa um borð í þessa lest okkar og hjálpa okkur að skapa fal- legan ævintýraheim á þessum stór- kostlega stað sem Reykjadalur er,“ segir Unnur. n Tók Harald tvær vikur að gera nýja rampa í Reykjadal Leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors ætla að láta kné fylgja kviði og taka Reykjadal í gegn að innan. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Haraldur Þorleifsson sigurjon@frettabladid.is COVID-19 Umboðsmaður Alþingis segir Covid-19 hafa reynt töluvert á þanþol grunnreglna réttarríkisins. „Sú hætta virðist óneitanlega fyrir hendi að eftir langvarandi ástand, líkt og það sem skapaðist í heimsfar- aldrinum, fari stjórnvöld í auknum mæli að líta á skerðingu grund- vallarréttinda sem léttvægan eða jafnvel sjálfsagðan hlut með þeirri afleiðingu að réttaröryggi borgar- anna skerðist til frambúðar,“ segir í ársskýrslu Umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2021. Í skýrslunni bendir umboðsmað- ur á að, ólíkt ýmsum nágranna ríkj- um Íslands, virðist engar fyrirætl- anir uppi hérlendis um heildstæða úttekt á þeim ráðstöfunum sem ráð- ist hafi verið í vegna heimsfaraldurs Covid-19. n Covid-19 hafi reynt á réttarríkið kristinnhaukur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Fílabeinsstytta er nú á uppboði hjá Gallerí Fold. Styttan er af stúlku, 23 sentimetrar að hæð, upprunnin frá Ife-Lodun í Nígeríu. Verðmatið er á bilinu 110 til 130 þúsund krónur en uppboðinu lýkur 5. september. Þegar þetta er skrifað hefur borist 21 boð í styttuna. Fílabein er vandmeðfarið og víða um heim eru viðskipti með það ólögleg. Samkvæmt íslenskum lögum um menningarminjar gilda ákveðnar reglur um fílabein. Það er ekki er heimilt að f lytja erlendar menningarminjar úr fíla- beini úr landi. n Fílabeinsstytta frá Nígeríu á uppboði Nýr tilboðs- bæklingur fylgir með inni í blaðinu í dag Það verða tilboðsdagar hjá okkur allan septembermánuð. Kælitæki, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, kaffivélar ásamt fleiri afbragðs vörum frá Siemens og Bosch á tilboðsverði. Einnig m.a. ljós, rakatæki, pottar, pönnur og rafmagnsofnar frá öðrum virtum fyrirtækjum.Sölusýning verður í verslun okkar laugardaginn 3. september. Þennan dag höfum við til viðbótar afslátt af öllum vörum sem ekki eru þegar á afslætti. Vefverslun okkar er opin allan sólarhringinn á sminor.is Tilboð í s ep te m be r 2 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.