Fréttablaðið - 01.09.2022, Page 4

Fréttablaðið - 01.09.2022, Page 4
Klárlega er þá ástæða til að svipta umrædda aðila leyfum til rekst- urs spilakassa. Alma Hafsteinsdóttir, formaður SÁS Starfshópur um happdrætti og fjárhættuspil hefur ekki skilað inn tillögum að úrbótum þrátt fyrir að upphaflegur frestur hafi runnið út fyrir rúmu ári. Formaður Samtaka áhuga- fólks um spilafíkn segir ekki boðlegt að bera fyrir sig tíma- leysi í svo alvarlegum málum. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Starfshópur um happ- drætti og fjárhættuspil, skipaður af dómsmálaráðuneytinu, sem hefur það hlutverk að kanna mögulegar réttarbætur á sviði happdrættis- mála hefur ekki skilað tillögum til ráðherra. Fyrst stóð til að hópurinn skilaði tillögum eigi síðar en 1. júní árið 2021 en honum var veittur ótil- greindur frestur. Sa m k væmt sk r i f leg u s va r i d óm s m á l a r áðu ney t i s i n s v ið fyrirspurn Fréttablaðsins segir að fresturinn hafi ekki síst verið framlengdur vegna þess hversu umfangsmikið verkefni hópsins reyndist vera. Vonir standi til að tillögum verði skilað mánaða- mótin september-október. Kostn- aður við starfshópinn er rúmar þrjár milljónir króna. Meðal þess sem starfshópnum er falið að athuga er að kanna leiðir til að koma á spilakortum, þar með talið í spilakössum, og hvernig rannsóknum á spilafíkn og ólöglegu fjárhættuspili skuli háttað. Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn (SÁS), segir ekki boðlegt að bera fyrir sig tímaleysi í eins alvarlegum málum og happdrættismálum. SÁS hafi lagt til að spilakössum verði lokað til frambúðar og það ekki að ástæðulausu. „Samtök áhugafólks um spila- fíkn fagna allri umræðu og vinnu á happdrættismarkaði en það breytir ekki þeirri staðreynd að fyrir liggja staðreyndir um rekstur og skað- semi spilakassa. Spurningin snýst því ekki um þekkingarleysi heldur viljaleysi,“ segir Alma. Í því samhengi bendir hún á að niðurstöður starfshóps Háskóla Íslands, rekstraraðila Happdrættis Háskólans, sem lágu fyrir síðasta sumar hafi verið afgerandi þegar kemur að rekstri spilakassa og skað- semi þeirra. Þar segir meðal annars: „Þótt spurningin um það hvort reka eigi spilakassa sé torleyst, er þó óhætt að segja að ámælisvert væri að beita ekki öllum tiltækum ráðum til þess að tryggja ábyrga spilun og grípa tafarlaust til slíkra aðgerða. Vandséð er að samkeppnissjónar- mið og mögulegt tekjutap dugi sem rök til að slá þeim á frest.“ Alma segir að miðað við þessar alvarlegu niðurstöður og það hvern- ig rekstraraðilar og stjórnvöld dragi lappirnar þegar kemur að rekstri spilakassa spyrji hún sig hvort verið sé að tefja málið. „Því spyrjum við okkur hvort Háskóli Íslands, HHÍ, Rauði kross- inn á Íslandi og Landsbjörg séu hreinlega að tefja málið og þæfa til þess eins að geta haldið ótrauð áfram rekstri spilakassa í núverandi mynd?“ spyr Alma en þeir aðilar sem hún telur upp eru rekstrarað- ilar spilakassa hér á landi. Alma segir ekkert standa í vegi fyrir því að rekstraraðilarnir grípi til takmarkandi ráðstafana, til dæmis með því að taka upp spila- kort. „Nema þá mögulega að eig- endur spilakassa geri sér grein fyrir að með upptöku spilakorta muni þeir verða fyrir tekjutapi,“ segir hún. „Þetta er ógeðfelld tilhugsun því á mannamáli þýðir hún að rekstrar- aðilar séu meðvitað tilbúnir að níð- ast á spilafíklum í hagnaðarskyni. Klárlega er þá ástæða til að svipta umrædda aðila leyfum til reksturs spilakassa,“ bætir Alma við. Alma segir lokun spilakassa tví- mælalaust vera ábyrgustu afstöð- una. SÁS hafi engu að síður lagt fram aðrar tillögur auk spilakorta, svo sem að spilakassar verðir fjarlægðir úr nærumhverfi barna, ungmenna og við búsetukjarna viðkvæmra hópa. „Ef stjórnvöld eru á hinn bóginn staðráðin í að fara ekki þessa leið væri eðlilegt að loka kössunum á meðan vinna við úrbætur færi fram,“ segir Alma. n Ekkert standi í vegi fyrir takmarkandi ráðstöfunum Starfshópur átti að skila inn tillögum að úrbótum 1. júní árið 2021 . FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI ninarichter@frettabladid.is MENNTAMÁL Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaút- gefenda, segir hneyksli að Íslending- ar láti framhaldsskólanemum eftir að greiða námsbókakost. Ísland er eina landið á Norðurlöndum þar sem ríkið greiðir ekki námsgögn fyrir nemendur á framhaldsskóla- stigi. „Ég kem fyrst að þessu fyrir löngu síðan sem almennur bókaútgefandi og síðar námsbókaútgefandi,“ segir Heiðar Ingi. „Við vorum með öðru- vísi fyrirkomulag þá varðandi grunnskólana, þegar Námsgagna- stofnun keypti námsefni og þá var til fjármagn til að kaupa náms- bækur af almennum útgefendum,“ segir hann. „Svo breyttist það fyrir- komulag og það fjármagn þynntist út. Ýmis stoðútgáfa sem útgefendur sinntu fyrir þetta skólastig datt upp fyrir í markaðsbresti sem kom til af því að ríkið skrúfaði fyrir fjármagn og efldi í stað eigin útgáfu í gegnum einokun Menntamálastofnunar.“ Heiðar Ingi segist hafa verið bjart- sýnn í upphafi, þegar hann tók fyrst við rekstri námsbókaútgáfunnar Iðnú fyrir ellefu árum. „Ég hélt að ég væri að horfa á eitt eða tvö ár með þetta úrelta fyrirkomulag,“ segir hann. Heiðar Ingi segir að algjörlega skorti skilning og stefnu hvað varðar mikilvægi námsbóka fyrir námsárangur nemenda. „Síðan eru liðin mörg ár og lítið hefur gerst. Ég hef lært að reka fyrirtæki sem þarf að pluma sig með takmörkuðum útgáfustyrkjum frá ríkinu,“ segir hann. „Mér hefur líka sviðið fálæti innan úr menntakerfinu. Innan kennaraforystunnar, sem hefur litið á málflutning okkar sem eitt- hvert prívat hagsmunamál, eða gert þetta að pólitísku máli um hvort ríkið ætti að sjá um útgáfu náms- bóka fyrir framhaldsskólastigið. Umræðan ætti að snúast um hvað sé best fyrir okkur sem samfélag að gera.“ Heiðar Ingi er um þessar mundir staddur í Osló að sækja ráðstefnu hjá helstu námsbókaútgefendum á Norðurlöndunum. „Ég mæti hingað með sömu glærurnar og síðast til að kynna stöðuna hér á landi,“ segir hann. „Þetta fyrirkomulag er ekkert annað en skattlagning á fjölskyldur og ungt fólk.“ Fréttablaðið bíður svara frá mennta- og barnamálaráðuneytinu við fyrirspurn vegna málsins. n Ísland eina landið á Norðurlöndum sem lætur nemendur borga bækurnar Heiðar Ingi Svansson, for- maður Félags ís- lenskra bókaút- gefenda bth@frettabladid.is SAMFÉLAG Bylgja geisar nú um höfuðborgarsvæðið þar sem nem- endur, einkum á efri stigum grunn- skóla, herða að eigin öndunarvegi eða hvert annars með þeim afleið- ingum að sum missa meðvitund. Hvatinn að leiknum er spenna og sókn í vímutilfinningu. Í Austurbæjarskóla kom fram á foreldrafundi í gær að í árgangi 9. bekkjar hefðu fjórir nemendur fallið í yfirlið eða verið nálægt því eftir þennan leik. Kyrkingarleikir hafa reglulega skotið upp kollinum undanfarna áratugi í þessum aldurshópi að sögn skólayfirvalda. Dauðsföll hafa orðið utan landsteinanna. Fyrir nokkrum árum lést til dæmis tólf ára drengur í Bodø í Noregi eftir þátttöku í leiknum. Gissur Ari Kristinsson, forstöðu- maður í félagsmiðstöðinni 101, segir að um ræði bylgju sem virðist hafa náð til f lestra félagsmiðstöðva út um allt höfuðborgarsvæðið. „Við erum að tala um hræðilegt TikTok-trend,“ segir Gissur og vísar til samfélagsmiðils sem ungmenni nota mikið. „Þetta er komið á það stig að við stefnum að því að ganga í bekki og fræða börnin um skað- semina.“ Gissur segir margt varasamt í gangi á samfélagsmiðlum barna, oftast án vitundar foreldra. „Eitt af því sem við þurfum að gera er að ef la fjölmiðlalæsi og eiga jákvætt upplýst samtal við börnin.“ n TikTok-æði veldur yfirliði barna Forstöðumaður félagsmiðstöðvar kennir TikTok um skaðlega tísku. JEEP.IS • ISBAND.IS KEMUR ÞÚ AF FJÖLLUM? PLUG-IN HYBRID EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Íslensku fjöllin hafa mætt jafningja sínum. Gerðu ferðalagið algjörlega rafmagnað með Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 4 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.