Fréttablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 6
Er ríkið ekki einfald-
lega að okra á ferða-
manninum?
Guðmundur
Marteinsson,
framkvæmda-
stjóri Bónuss
Verðmunur á sælgæti
HöfuðborgarsvæðiðFríhöfnin í Keflavík
Risa opal
100 g
Omnom-
súkkulaði
60 g
349 kr.
699 kr.
Freyju-
súkkulaði
100 g
Sambó-þristur
250 g
Mini-Marz o.fl.
25 stk.
Marabou-
súkkulaði
250 g
Extra-tyggjó
30 stk.
Nóakropp
600 g
M&M
partýpoki
1 kg
Risa opal
100 g
Omnom-
súkkulaði
60 g
Freyju-
súkkulaði
100 g
Sambó-þristur
250 g
Mini-Marz o.fl.
71 stk.
Marabou-
súkkulaði
250 g
Extra-tyggjó
30 stk.
Nóakropp
900 g
M&M
partýpoki
1 kg
298 kr.
599 kr.
359 kr.
399 kr.
1.099 kr.
2.599 kr.
1.299 kr.
1.999 kr.
695 kr.
259 kr.
387 kr.
1.679 kr.
545 kr.
1.729 kr.
449 kr.
1.349 kr.
Dumle-
karamellur
270 g
Dumle-
karamellur
350 g
1.299 kr. 495 kr.
Tíu algengar sælgætistegundir
sem Fréttablaðið valdi af
handahófi í verslun Fríhafn-
arinnar í Leifsstöð reyndust
í öllum tilvikum vera dýrari
en í lágvöruverðsverslunum á
höfuðborgarsvæðinu.
ser@frettabladid.is
NEYTENDUR Almenningur á Íslandi
og aðrir ferðamenn sem fara um
Leifsstöð virðast ekki njóta þess að
vörur sem ríkisvaldið býður upp á í
Fríhöfninni bera engan virðisauka-
skatt. Þær eru í mörgum tilvikum
mun dýrari í verði en einkareknar
lágvöruverðsverslanir á borð við
Bónus, Krónuna og Costco á höfuð-
borgarsvæðinu bjóða viðskiptavin-
um sínum upp á, þótt þær verslanir
þurfi að bæta opinberum álögum
ofan á vöruverð sitt.
„Er ríkið ekki einfaldlega að
okra á ferðamanninum?“ spyr
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss – og minnir á
tilfinningu almennings sem fer um
þessar verslanir hins opinbera sem
kallast Duty Free upp á enska tungu.
„Nafnið gefur fólki til kynna að það
sé að gera góð kaup, en það er öðru
nær þegar raunveruleikinn er skoð-
aður,“ bætir hann við.
Fréttablaðið gerði í ágúst verð-
könnun á tíu algengum sælgætis-
tegundum í Fríhöfninni í Leifsstöð
og bar verðið á þeim saman við
sömu vörur, eða mjög sambærilegar,
í fyrrgreindum þremur sparbúðum
í bænum.
Eins og meðf ylg jandi t af la
sýnir er sælgætið í öllum tilvikum
dýrara í verði í Fríhöfninni en í
bænum – og munar oft miklu, allt
að fimmtíu prósentum eins og á
við í tilviki þrjátíu stykkja pakkn-
ingar af Extra-tyggjói.
„Þetta er gífurleg álagning af
hálfu hins opinbera,“ segir Breki
Karlsson, formaður Neytenda-
samtakanna, „og algerlega út úr
korti fyrir verslun sem þarf ekki að
standa skil á virðisaukaskatti upp
á 24,5 prósent,“ bætir hann við.
„Þetta er enn ein gildran sem
neytendur á Íslandi þurfa að gæta
sín á að falla ekki ofan í,“ segir
Breki enn fremur.
Þorgerður Þráinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar sem
rekin er af ríkisfyrirtækinu Isavia,
segir ekkert einfalt svar vera við
ástæðu þessa verðmunar. „En við
erum í sjálfu sér ekki í samkeppni
við verslanir hér innanlands held-
Verð á sælgæti hærra í Fríhöfninni
en í bænum þrátt fyrir engan skattbth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaðu r
Alþingis, Skúli Magnússon, segir
að ekki hafi borist kvörtun til
hans vegna skipunar Lilju Daggar
Alfreðsdóttur ráðherra í stöðu þjóð-
minjavarðar.
Um það hvort umboðsmaður
hyggist efna til frumkvæðisrann-
sóknar á stjórnsýslu Lilju segir Skúli:
„Engin ákvörðun hefur verið tekin
um það. En umboðsmaður fylgist
með svona málum.“
Skúli segir að svo virðist sem
málið kunni að koma til umfjöll-
unar Alþingis, það er stjórnsýslu- og
eftirlitsnefndar.
„Engin kvörtun vegna þessa máls
hefur borist til umboðsmanns,“
segir Skúli.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst eru minni líkur en meiri á
að mál Lilju muni koma til kasta
umboðsmanns. Stjórnsýslufræð-
ingar sem blaðið hefur rætt við telja
að Lilja þurfi fyrst og fremst að sæta
pólitískri ábyrgð fremur en lagalegri
vegna skipunar sinnar sem hefur
verið mótmælt með ýmsum hætti
síðustu daga. n
Engar kvartanir
vegna skipunar
Skúli
Magnússon,
umboðsmaður
Alþingis
ur miklu fremur við aðrar fríhafnir
í löndunum í kring,“ segir hún og
bendir jafnframt á að á stundum
sé ekki um sömu vörur að ræða.
Fríhöfnin sé til dæmis að selja
bandarískt M&M, en verslanir í
bænum höndli með breska vöru
af því tagi.
Rétt er að taka fram að verð-
könnun blaðsins í Leifsstöð fór
fram í Fríhöfninni í brottfararsal
f lugstöðvarinnar, en ætla má að
verðlagningin sé sú sama í komu-
sal hennar. n
Á myndunum má sjá nokkur dæmi um verðmun á sælgæti í Fríhöfninni og í öðrum verslunum.
helenaros@frettabladid.is
FLÓTTAFÓLK Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðarbæjar segir að f lóttafólki
án samnings við bæjarfélagið hafi
fjölgað um nokkur hundruð á síð-
ustu vikum þrátt fyrir að því hafi
ítrekað verið komið á framfæri við
félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
að bærinn geti ekki tekið á móti
fleira flóttafólki í bili.
Þetta kemur fram í ályktun frá
bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Hún
segir bæinn kominn að þolmörkum,
sérstaklega hvað stuðning barna
varðar og að hátt í 200 f lóttabörn
séu nú í leik- og grunnskólum bæjar-
ins.
Bæjarstjórnin krefst þess að ríkið
taki ábyrgð í málinu. n
Flóttafólki komið
fyrir án samráðs
6 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ