Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 8
Ungverjar vilja ekki banna rússneska ferða- menn. Ekki fundust neinar sannanir um njósnir. Þeir koma í veg fyrir innflutta samkeppni við eigin vörur og stýra þannig verðinu. Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri FA Flokka hjálpargögn Starfsmenn í Pakistan flokka hjálpargögn til að dreifa til þeirra sem hafa orðið fyrir flóðum í Karachi, stærstu borg Pakistan. Talið er að skyndiflóðin sem eru af völdum mikillar rigningar hafi kostað yfir þúsund manns lífið víðs vegar um landið síðan um miðjan júní. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA-EFE Ríkið innheimtir nærri 60 prósentum hærra útboðs- gjald fyrir erlent nautakjöt í ágúst miðað við apríl á þessu ári. Félag atvinnurekenda bendir á að núverandi kerfi sé ekki að virka. kristinnhaukur@frettabladid.is NEYTENDUR Ríkið innheimtir allt að 58,8 prósentum hærra útboðsgjald af erlendum búvörum nú í ágúst miðað við apríl á þessu ári. Félag atvinnu- rekenda hefur sent matvælaráðu- neytinu erindi þar sem kallað er eftir breytingum á kerfinu. „Ef stjórnvöld vilja ef la sam- keppni og lækka vöruverð á tímum þar sem verðbólga er sú hæsta síðan á hrunárunum þá hlýtur ráðherra að bregðast við og gera breytingar á kerfinu,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri félagsins, sem einnig hefur sent Samkeppniseftir- litinu erindi vegna málsins. Það er nú í ferli innan stofnunarinnar. Ríkið innheimtir í ágúst 665 millj- ónir í útboðsgjald fyrir tollkvóta af búvörum frá Evrópusambandinu. Flestir vöruflokkar hafa hækkað og það ríflega. Sem dæmi var gjaldið fyrir inn- flutning á nautakjöti 347 krónur á kílóið í apríl en nú er það 551 króna. Hækkun upp á 58,8 prósent. Gjald vegna svínakjöts hefur hækkað um 55,8 prósent og lífrænt alifuglakjöt 49,6 prósent. Eini vöruflokkurinn sem hefur lækkað er pylsur, en hækkunin á öðrum flokkum hefur verið um 5 til 19,1 prósent. Það er alifuglakjöti, ostum, þurrkuðum og reyktum skinkum og annarri eldaðri kjöt- vöru. „Innlendu framleiðendurnir eru að bjóða mjög hátt í kvóta. Sérstak- lega í svína- og kjúklingakjöti,“ segir Ólafur. „Þeir koma í veg fyrir inn- flutta samkeppni við eigin vörur og stýra þannig verðinu. Það getur aldr- ei verið gott fyrir neytendur.“ Í útboðinu í ágúst gerðist það í fyrsta skipti að allur tollkvóti svína- kjöts fór til innlendra framleiðenda. Það er Mata og Stjörnugríss. „Þetta þýðir að sú mjög takmark- aða samkeppni sem innlend búvöru- framleiðsla hefur frá innflutningi verður dýrari en ella og þjónar ekki þeim tilgangi sem lagt var upp með þegar samningurinn við Evrópu- sambandið var gerður. Það er að samkeppni myndi aukast og vöru- verð lækka,“ segir Ólafur. Félag atvinnurekenda bendir á að útboðsgjaldið hafi hækkað mikið undanfarin þrjú ár, en f lakkað hafi verið milli tveggja aðferða við útboðið. Eldri aðferð þar sem hæst- bjóðendur fengu úthlutað og jafn- vægisútboð þar sem allir borga sama verð. Eldri aðferðin var tekin aftur upp í Covid sem aðferð til að verja innlenda framleiðslu. „Það er deginum ljósara að þessi tímabundna aðgerð, að taka aftur upp eldri aðferð útboðs, skemmdi markaðinn,“ segir Ólafur. Gjald vegna lífræns alifuglakjöts hefur til dæmis hækkað um næstum 200 pró- sent á tímabilinu og svínakjöts um nærri 166 prósent. Ólafur segir að stjórnvöld hafi ekki verið til viðræðu um að lækka tolla yfir línuna en aðrar leiðir er hægt að taka upp. Til dæmis hafi Félag atvinnurekenda og Neytendasam- tökin lagt til blandaða leið útboðs byggða á hlutkesti og viðskiptasögu. Núverandi kerfi sé að minnsta kosti ekki að virka. n Útboðsgjaldið á erlendar búvörur hækkaði um tugi prósenta í ágúst Íslenskir fram- leiðendur kaupa upp stóran hluta tollkvót- ans frá Evrópu- sambandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI kristinnhaukur@frettabladid.is UNGVERJALAND Ríkisstjórn Ung- verjalands hefur samið við rúss- neska gasfyrirtækið Gazprom um kaup á 5,8 milljörðum kúbikmetra af jarðgasi á dag til viðbótar við það sem Ungverjaland fær nú þegar. Þetta verður gert í gegnum gas- leiðslu frá Serbíu. Forseti landsins, Viktor Orban, hafði þegar gefið það í skyn að hann myndi semja við Rússa og hefur hafnað því að setja nokkurs konar efnahagsþvinganir tengdar gasi á Rússland. Á fundi utanríkisráðherra ESB- ríkja í gær talaði Peter Szijarto, utan- ríkisráðherra Ungverjalands, gegn því að rússneskir ferðamenn myndu ekki fá vegabréfsáritanir eins og Finnar, Pólverjar og Eystrasalts- menn hafa barist fyrir. Ungverjar hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að vera vilhallir Rússum. n Ungverjar semja við Rússa um gas í trássi við ESB Viktor Orban kristinnhaukur@frettabladid.is ÞÝSKALAND Fjármálaráðuneyti Þýskalands hefur óskað eftir því að leyniþjónustan Bf V kanni tvo starfsmenn sem grunur sé um að hafi tengsl við Rússland. Það er dagblaðið Die Zeit sem greinir frá þessu en umræddir starfsmenn eru þó ekki nafngreindir. Ráðuneytið tilkynnti starfs- mennina fyrr á þessu ári, en þeir þóttu hafa talað máli Rússa í málum sem tengdust meðal annars þving- unaraðgerðum. Samkvæmt Die Zeit var bak- grunnur þeirra kannaður, sem og ferðir og ýmis samskipti en engar sannanir fundust um njósnir eða spillingu. Fjármálaráðuneytið hefur ekki viljað tjá sig um málið en segist vera í góðum samskiptum við Bf V, einkum í tengslum við orkumál. n Embættismenn grunaðir um njósnastarfsemi Höfuðstöðvar leyniþjónustunnar. 8 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.