Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 10
Ég held að yngri kyn-
slóðin muni ekki taka
upp á því að lesa
prentuð dagblöð síðar
meir.
Valgerður
Jóhannsdóttir,
lektor í fjöl-
miðlafræði
Sjónvarpið Stöð 2
12-80 ára 12-49 ára 18-34 ára 12-80 ára 12-49 ára 18-34 ára
Apríl 2013 67,2 59,1 53,6 46,5 42,1 39,0
Apríl 2014 62,2 52,5 48,1 41,8 36,4 33,5
Apríl 2015 61,1 54,0 50,6 44,7 38,5 38,4
Apríl 2016 63,6 55,2 50,3 38,9 32,2 33,8
Apríl 2017 61,7 53,3 47,6 37,0 29,3 28,2
Apríl 2018 54,5 43,1 37,3 35,7 26,9 21,9
Apríl 2019 52,1 42,1 36,9 31,9 23,2 21,6
Apríl 2020 60,1 47,1 40,9 36,5 25,3 21,6
Apríl 2021 52,5 40,4 34,2 17,0 13,8 12,9
Apríl 2022 46,8 34,2 28,9
Samdráttur 30% 42% 46% 63% 67% 67%
22% 40% 45%
Hröð þróun hefur orðið á fjöl-
miðlamörkuðum síðustu ár
og áratugi. Minnkandi lestur
dagblaða samhliða minnk-
andi áhorfi á línulega dagskrá
kallar á róttækar breytingar
hjá flestöllum fjölmiðlum
landsins.
FJÖLMIÐLAR Þróun fjölmiðla og fjöl-
miðlamarkaða hefur ekki hægt á sér
síðustu ár og má færa rök fyrir því
að sú þróun verði sífellt hraðari.
Ef horft er til aukinnar f lóru
innan markaða má sjá að fleiri val-
kostir eru nú í boði en nokkurn tím-
ann áður í sögunni. Dagblöð, tíma-
rit, netmiðlar, hlaðvörp og útvarp
blandast saman í umhverfi þar sem
sífellt f leiri miðlar færast inn á staf-
rænt form.
Aukin færsla yfir á stafrænt form,
fallandi línulegt sjónvarpsáhorf og
dreifing neyslu hefur gjörbreytt því
umhverfi sem hefur verið ríkjandi
undanfarna áratugi.
Prentaðir miðlar á undanhaldi
Lengi hefur verið talað um að dagar
hins prentaða miðils séu liðnir en
lestur á dagblöðum á síðustu ára-
tugum hefur hríðfallið.
Ef skoðaðar eru tölur frá Gallup
má sjá að vissulega hefur lestur
dagblaða hrapað statt og stöðugt
frá árinu 2008 og virðist það fall
ekki vera að hægja á sér.
Til að mynda var lestur á Frétta-
blaðinu árið 2008 í kringum 65 pró-
sent en á Morgunblaðinu í kringum
41 prósent. Þessar tölur eru komnar
niður í 27,7 prósent fyrir Fréttablað-
ið nú árið 2022 og 17,4 prósent fyrir
Morgunblaðið.
Fræðimenn sjá sömu þróun
Valgerður Jóhannsdóttir, lektor í
fjölmiðlafræði, segir að þær breyt-
ingar sem eru að eiga sér stað bendi
alls ekki til minnkandi neyslu á fjöl-
miðlum, fremur hins gagnstæða.
„Ef maður er að hugsa um fjöl-
miðlaneyslu og áhorf í víðum
skilningi þá held ég að það sé bara
að aukast,“ segir hún og bendir á að
við erum í æ meira mæli sítengd fjöl-
miðlum. „Það er að verða æ stærri
hluti af sólarhringnum sem við
verjum í einhvers konar fjölmiðla-
neyslu,“ segir hún.
Valgerður segir að augljóst sé að
lestur dagblaða sé minnkandi og
telur hún ólíklegt að sú þróun muni
snúast við. „Við höfum séð að lestur
á prentuðum dagblöðum hefur
verið á stöðugri niðurleið í áratugi.
Ég held að það sé ekki eitthvað sem
komi til með að breytast. Ég held að
yngri kynslóðir muni ekki taka upp
á því að lesa prentuð dagblöð síðar
meir,“ segir hún.
Valgerður bendir þó á að þrátt
fyrir að þessar breytingar séu að
eiga sér stað þurfi það alls ekki að
þýða að fjölmiðlum fari hrakandi
í upplýsingaveitu sinni. „Eitt af því
sem rannsóknir hafa bent á er að
það skiptir ekki endilega máli hvaða
vettvang þú notar til þess að sækja
fréttir og upplýsingar. Hvort það er
prentað dagblað, sjónvarpsfréttir
sem þú horfir á í sófanum klukkan
sjö eða netmiðill af einhverju tagi.
Svo lengi sem þú færð réttar upp-
lýsingar,“ segir Valgerður.
Hún bendir þó einnig á að við
lesum fjölmiðla á netinu á annan
hátt en þá sem við lesum í prentuðu
formi. „Þetta er yfirborðskenndara,
þú skannar meira,“ segir hún.
Viðbrögð við breytingum
Jón Þórisson, forstjóri Torgs, tekur
í sama streng og Valgerður og segir
að þrátt fyrir að hinar hefðbundnu
miðlunarleiðir séu á undanhaldi sé
fjölmiðlaáhorf ekki að minnka. „Ef
maður horfir yfir svið fjölmiðla er
ekki hægt að segja að neysla á fjöl-
miðlum hafi dregist saman. Hins
vegar má auðvitað segja að fjölmiðl-
Sífelld þróun fjölmiðla kallar á breytingar
Margir hafa spáð því að prentuð dagblöð muni hverfa með öllu á næstu árum en nýjustu rannsóknir sýna að breytingar á fjölmiðlum eru
mun fjölbreyttari en svo að einungis einn miðill gefi eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jón Þórisson,
forstjóri Torgs
ehf.
Stefán Eiríksson,
útvarpsstjóri
Sjónvarpsáhorf minnkar einnig
Mikið hefur verið hamrað á þeirri
staðreynd að lestur á dagblöðum fari
minnkandi en ef skoðaðar eru tölur um
sjónvarpsáhorf einstaklinga almennt
kemur í ljós að slíkt áhorf fer einnig
minnkandi.
Samkvæmt tölum sem fengnar voru
hjá Gallup hefur sjónvarpsáhorf almennt
hrunið á síðustu árum. Tölurnar sem hér
birtast eiga við almennt áhorf einstakl-
inga á sjónvarp sem nemur 5 mínútum
eða meira á sama sólarhringnum.
Tekið var mið af aprílmánuði síðustu 10
árin en árið 2013 mældist sjónvarpsáhorf
67,2 prósent meðal markhópsins 12-80
ára hjá Ríkissjónvarpinu en 46,5 prósent
í sama markhópi hjá Stöð 2. Árið 2021 var
þessi tala komin niður í 52,5 prósent hjá
Ríkissjónvarpinu en 17 prósent hjá Stöð
2 sem sýnir að mikil minnkun hefur átt
sér stað.
Sérstaklega mikið hrun hefur orðið í
áhorfi á miðil Stöðvar 2. Áhorf hrynur
frá apríl 2020 til 2021 úr 36,5 prósentum
niður í 17 prósent. Hrunið má mögulega
skýra með þeirri ákvörðun að hætta að
senda út fréttatíma Stöðvar 2 í opinni
dagskrá.
Þannig eru það ekki einungis lestrar-
tölur dagblaðanna sem hafa lækkað
heldur hafa almennar áhorfstölur á sjón-
varpsmiðla einnig lækkað.
Ársskýrsla Fjölmiðlanefndar 2021
Í skýrslu um miðlalæsi á Íslandi sem unnin var af
Fjölmiðlanefnd árið 2021 má sjá margar af þeim
breytingum sem orðið hafa á fjölmiðlamörk-
uðum. Könnunin var framkvæmd af Maskínu fyrir
Fjölmiðlanefnd.
n Í heildina sagðist 47,1 prósent þátttakenda nota
hlaðvörp vikulega eða oftar. Þeir sem nýta sér
hlaðvörp eru aðallega tekjuhærri einstaklingar
og þeir sem hafa meiri menntun.
n Þrátt fyrir minnkandi hlutdeild dagblaða, sjón-
varps og útvarps voru þessi miðlar þó oftast
nefndir sem mikilvægustu fréttamiðlarnir að
mati þátttakenda. Þetta bendir til þess að hefð-
bundnar tegundir miðla njóti enn virðingar þó
að notkun þeirra fari minnkandi.
n Langflestir, eða 86,4 prósent þátttakenda,
nefndu þó fréttamiðil á netinu sem miðil sem
notaður var til að nálgast fréttir deginum fyrir
könnunina.
n Einungis 26,9 prósent þátttakenda sögðust
hafa notað dagblað deginum áður til þess að
nálgast fréttir.
n Í yngsta aldursflokknum sögðust 92,5 prósent
hafa notað samfélagsmiðil á síðastliðnum 30
dögum til að nálgast fréttir.
um hafi fjölgað þannig að það liggur
í hlutarins eðli að neysla á hvern
einstakan fjölmiðil hefur kannski
dregist saman,“ segir Jón en Torg
ehf., sem gefur út Fréttablaðið, hefur
tekið mið af þeim minnkandi lestri
sem greinst hefur hjá lesendum.
Jón segir að fjölmiðlar verði að
vera óhræddir við að skoða nýjar
leiðir til útgáfu. „Sem dæmi má
nefna BT, sem ætlar að hætta útgáfu
blaðsins á prenti og gefa út eingöngu
á rafrænu formi. Þeir verða þá ekki
endilega vefmiðill heldur yrði upp-
setning blaðsins nákvæmlega sú
sama og hún hefði verið á prenti,“
segir hann.
„Það er mjög athyglisverð tilraun
og ég hef fulla trú á að þeim muni
takast að halda þeirri útgáfu áfram,“
segir Jón og bætir við: „Þá er eðlilegt
að menn spyrji hvort það sé eitt-
hvað sem gæti gerst á okkar miðli.
Við verðum að horfast í augu við
það að á einhverjum tímapunkti í
framtíðinni mun Fréttablaðið, sem
ber ægishjálm yfir aðra miðla hér
á landi hvað varðar útbreiðslu og
lestur, hætta að koma út á prenti.“
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
segir að RÚV hafi nýverið sam-
þykkt á fundi í júní stefnu RÚV til
næstu ára og að hún verði kynnt á
Útvarpsþingi sem haldið verður
22. september.
„Í fyrri stefnu var einmitt verið
að horfa til þeirra miklu breytinga
sem orðið hafa í umhverfi fjölmiðla
á síðustu árum, og á grunni þeirrar
vinnu sem og áframhaldandi grein-
ingar með fjölbreyttum hætti var
unnið að nýrri stefnu,“ segir Stefán
og tekur fram að stefnuáherslur
RÚV séu margvíslegar. „Þær eru
áframhaldandi stafræn þróun RÚV,
fréttir og þjóðfélagsrýni, menning
og miðlun, fjölbreytileiki, jafnræði
og þátttaka allra og loks sjálf bær
þróun og samfélagsleg ábyrgð.“ Með
þessu verði unnið að áframhaldandi
styrkingu miðilsins til að viðhalda
áhorfi og upplýsingagjöf til almenn-
ings. n
Tölur um almennt sjónvarpsáhorf Íslendinga
Ragnar Jón
Hrólfsson
ragnarjon
@frettabladid.is
10 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR