Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 19
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður forystuflokks ríkis- stjórnarinnar, sendi kjósendum þau skýru skilaboð frá fundi VG á Ísafirði um síðustu helgi að flokkurinn vildi annars konar ríkisstjórn eftir kosningar. Erfitt er að draga aðra ályktun af þessum skilaboðum en þá að ríkis- stjórnarsamstarfið þjóni hvorki málstað kjósenda flokksins né hagsmunum þjóðarinnar. Eplið er að hans mati orðið súrt. En samt telur hann rétt að það standi í þjóðinni þrjú ár til við- bótar. Stjórninni slitið með þriggja ára fyrirvara Með öðrum orðum: Valdahags- munir víkja hugsjónum og þjóðar- hagsmunum til hliðar næstu þrjú ár. En stjórnarsamstarfinu er slitið með þriggja ára fyrirvara. Þessi yfirlýsing markar óneitan- lega pólitísk straumhvörf. Þegar VG gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn fyrir fimm árum fólst í því skrefi það mat að Samfylkingin væri óþörf í sam- starfi til að ná fram hugsjónum félagshyggju. Fyrir ári voru þau skilaboð endurtekin. Nú er þetta mat gjörbreytt. Næst ætlar VG ekki í ríkisstjórn nema Samfylkingin verði þar. Þetta gerist í beinu framhaldi af því að breið samstaða myndaðist í Samfylkingunni um að velja Krist- rúnu Frostadóttur sem leiðtoga á landsfundi í næsta mánuði. Hún ætlar að sigla Samfylkingunni eftir nýju striki. Sama uppskrift og VG notaði Samkvæmt þessari nýju línu ætlar Samfylkingin að tala um færri mál en áður. Fyrst og fremst stóraukin útgjöld til heilbrigðismála og svo víðtækari og hærri vaxtabætur og barnabætur. Um leið á að hvíla mál eins og réttlæti í sjávarútvegi, Evr- ópusamstarf og nýja stjórnarskrá. Í viðtali í Dagmálum sagði nýi formaðurinn að tekna ætti að afla með samtali um jafnaðarstefnuna þannig að hátekjufólk og eigna- fólk öðlaðist skilning á gildi þess að leggja meira til samfélagsins. Ef rétt er skilið koma hærri eigna- skattar og tekjuskattar til fram- kvæmda þegar þeir sem borga eiga brúsann hafa náð þeim skilningi. Athyglisvert er að þetta er nánast sama málefnalega upp- skriftin og VG notaði þegar stofnað var til núverandi ríkisstjórnar- samstarfs. Helsti munurinn er sá að Samfylkingin virðist ekki ætla að hafa loftslagsmál á lista yfir for- gangsverkefni. Hún breytir ekki um stefnu í loftslagsmálum, en öðrum verður látið eftir að tala fyrir þeim eins og Evrópumálum og réttlæti í sjávar- útvegi. Opnar læst hlið Þetta þýðir að málefnalegt sam- starf VG og Samfylkingar verður nánast vandamálalaust. Þó að Sósíalistaflokkurinn nái inn á þing þurfa þessir flokkar að stækka verulega til að geta myndað vinstri stjórn. Fækkun stórra kjarnamála á for- gangslista Samfylkingar opnar líka annað hlið, sem nú er læst: Þegar VG fer út úr núverandi samstarfi eftir þrjú ár getur Samfylkingin nánast gengið inn í það óbreytt. Sjálfstæðisflokkurinn yrði þó væntanlega að gefa meira eftir í útgjöldum til heilbrigðismála. Á móti þyrfti hann ekki að hafa áhyggjur af sjávarútvegsmálum, Evrópumálum og stjórnarskrá. Krefjist Samfylkingin ekki skattahækkana fyrr en síðar ætti þetta að ganga upp pólitískt þó að það standist ekki efnahagslega. Miðjustjórn sýnist vera fjarlægari en áður, en kannski ekki útilokuð. Þó að slík stjórn tæki velferðar- málin föstum tökum er ólíklegt að í því pólitíska mengi yrði samstaða um að skjóta öðrum kjarnamálum samfélagsins á frest. Kyndugt stöðumat Það er hyggilegt hjá Samfylking- unni að setja „nýju stjórnarskrána“ upp á hillu. Hitt eru mikil tíðindi þegar jafn- aðarmannaflokkur endurskilgrein- ir sig með því að setja Evrópumálin á hilluna einmitt þegar skoðana- kannanir sýna á ný að meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi aðild. Evrópusamstarfið hefur fært aðildarþjóðunum aukinn jöfnuð um leið og það hefur styrkt sam- keppnishæfni og frjáls viðskipti. Ísland þarf nú á hvoru tveggja að halda. Á sama hátt er athyglisvert að aukin áhersla á jöfnuð kalli á að krafan um réttlæti í sjávarútvegi verði lögð til hliðar einmitt þegar VG og Framsókn eru að reyna að brjóta rammann, sem stjórnarsam- starfið hefur sett þeim á því sviði. Málefnalega er þetta kyndugt stöðumat. En það er klókt að því leyti að Samfylkingin opnar með þessu hliðið í hina áttina að stað- gengilshlutverkinu þegar VG yfir- gefur stjórnarsamstarfið. n Pólitísk straumhvörf Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Ný og öflug fasteignaleit Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn. FIMMTUDAGUR 1. september 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.