Fréttablaðið - 01.09.2022, Page 19
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
varaformaður forystuflokks ríkis-
stjórnarinnar, sendi kjósendum
þau skýru skilaboð frá fundi VG
á Ísafirði um síðustu helgi að
flokkurinn vildi annars konar
ríkisstjórn eftir kosningar.
Erfitt er að draga aðra ályktun af
þessum skilaboðum en þá að ríkis-
stjórnarsamstarfið þjóni hvorki
málstað kjósenda flokksins né
hagsmunum þjóðarinnar.
Eplið er að hans mati orðið súrt.
En samt telur hann rétt að það
standi í þjóðinni þrjú ár til við-
bótar.
Stjórninni slitið með
þriggja ára fyrirvara
Með öðrum orðum: Valdahags-
munir víkja hugsjónum og þjóðar-
hagsmunum til hliðar næstu þrjú
ár. En stjórnarsamstarfinu er slitið
með þriggja ára fyrirvara.
Þessi yfirlýsing markar óneitan-
lega pólitísk straumhvörf.
Þegar VG gekk til samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn fyrir fimm
árum fólst í því skrefi það mat að
Samfylkingin væri óþörf í sam-
starfi til að ná fram hugsjónum
félagshyggju. Fyrir ári voru þau
skilaboð endurtekin.
Nú er þetta mat gjörbreytt. Næst
ætlar VG ekki í ríkisstjórn nema
Samfylkingin verði þar.
Þetta gerist í beinu framhaldi af
því að breið samstaða myndaðist í
Samfylkingunni um að velja Krist-
rúnu Frostadóttur sem leiðtoga á
landsfundi í næsta mánuði. Hún
ætlar að sigla Samfylkingunni eftir
nýju striki.
Sama uppskrift og VG notaði
Samkvæmt þessari nýju línu ætlar
Samfylkingin að tala um færri mál
en áður. Fyrst og fremst stóraukin
útgjöld til heilbrigðismála og svo
víðtækari og hærri vaxtabætur og
barnabætur. Um leið á að hvíla mál
eins og réttlæti í sjávarútvegi, Evr-
ópusamstarf og nýja stjórnarskrá.
Í viðtali í Dagmálum sagði nýi
formaðurinn að tekna ætti að afla
með samtali um jafnaðarstefnuna
þannig að hátekjufólk og eigna-
fólk öðlaðist skilning á gildi þess
að leggja meira til samfélagsins. Ef
rétt er skilið koma hærri eigna-
skattar og tekjuskattar til fram-
kvæmda þegar þeir sem borga eiga
brúsann hafa náð þeim skilningi.
Athyglisvert er að þetta er
nánast sama málefnalega upp-
skriftin og VG notaði þegar stofnað
var til núverandi ríkisstjórnar-
samstarfs. Helsti munurinn er sá
að Samfylkingin virðist ekki ætla
að hafa loftslagsmál á lista yfir for-
gangsverkefni.
Hún breytir ekki um stefnu í
loftslagsmálum, en öðrum verður
látið eftir að tala fyrir þeim eins og
Evrópumálum og réttlæti í sjávar-
útvegi.
Opnar læst hlið
Þetta þýðir að málefnalegt sam-
starf VG og Samfylkingar verður
nánast vandamálalaust. Þó að
Sósíalistaflokkurinn nái inn á þing
þurfa þessir flokkar að stækka
verulega til að geta myndað vinstri
stjórn.
Fækkun stórra kjarnamála á for-
gangslista Samfylkingar opnar líka
annað hlið, sem nú er læst: Þegar
VG fer út úr núverandi samstarfi
eftir þrjú ár getur Samfylkingin
nánast gengið inn í það óbreytt.
Sjálfstæðisflokkurinn yrði þó
væntanlega að gefa meira eftir
í útgjöldum til heilbrigðismála.
Á móti þyrfti hann ekki að hafa
áhyggjur af sjávarútvegsmálum,
Evrópumálum og stjórnarskrá.
Krefjist Samfylkingin ekki
skattahækkana fyrr en síðar ætti
þetta að ganga upp pólitískt þó að
það standist ekki efnahagslega.
Miðjustjórn sýnist vera fjarlægari
en áður, en kannski ekki útilokuð.
Þó að slík stjórn tæki velferðar-
málin föstum tökum er ólíklegt að
í því pólitíska mengi yrði samstaða
um að skjóta öðrum kjarnamálum
samfélagsins á frest.
Kyndugt stöðumat
Það er hyggilegt hjá Samfylking-
unni að setja „nýju stjórnarskrána“
upp á hillu.
Hitt eru mikil tíðindi þegar jafn-
aðarmannaflokkur endurskilgrein-
ir sig með því að setja Evrópumálin
á hilluna einmitt þegar skoðana-
kannanir sýna á ný að meirihluti
þjóðarinnar er fylgjandi aðild.
Evrópusamstarfið hefur fært
aðildarþjóðunum aukinn jöfnuð
um leið og það hefur styrkt sam-
keppnishæfni og frjáls viðskipti.
Ísland þarf nú á hvoru tveggja að
halda.
Á sama hátt er athyglisvert að
aukin áhersla á jöfnuð kalli á að
krafan um réttlæti í sjávarútvegi
verði lögð til hliðar einmitt þegar
VG og Framsókn eru að reyna að
brjóta rammann, sem stjórnarsam-
starfið hefur sett þeim á því sviði.
Málefnalega er þetta kyndugt
stöðumat. En það er klókt að því
leyti að Samfylkingin opnar með
þessu hliðið í hina áttina að stað-
gengilshlutverkinu þegar VG yfir-
gefur stjórnarsamstarfið. n
Pólitísk straumhvörf
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Öflugur fasteignaleitarvefur
með einföldu og notendavænu
viðmóti sem býður upp á ítarlegar
upplýsingar um fasteignir,
þróun verðlags og fróðleik um
fasteignamarkaðinn.
FIMMTUDAGUR 1. september 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ