Fréttablaðið - 01.09.2022, Síða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Dagskrá
Karnivals í Kópavogi
n Fordyri Salarins, kl. 13 -15
Sirkus Ananas, sönghópur-
inn Tónafljóð og töfra-
maðurinn Einar Aron.
n Náttúrufræðistofa Kópa-
vogs, kl. 13-15
Frauðtertuskreytingar-
námskeið með frauðtertu-
gerðarteyminu Gorklín.
n Bókasafn Kópavogs,
kl. 13-15
Stenslagerð í Múmíndal
með Önju Ísabellu Löven-
holdt. Í smiðjunni er boðið
upp á ólíkan efnivið, allt frá
blómum til tímarita.
n Gerðarsafn, kl. 13-14
Danssmiðja fyrir börn og
fjölskyldur með Katrínu
Gunnarsdóttur danshöf-
undi og Evu Signýju Berger
hönnuði.
n Gerðarsafn, kl. 14-15.30
Listamannateymið Improv
for Dance Enthusiasts með
leikandi léttan dansspuna
og dansæfingar fyrir alla
aldurshópa.
n Gerðarsafn, kl. 13-16
SWAP-skiptimarkaður.
Komdu með listrænan mun
og skiptu út fyrir aðra hluti
sem þú vilt eða þig vantar.
Listrænir munir geta verið
bækur, ljóð, ljósmyndir,
prent, málverk, skúlptúrar,
útsaumur, og fleira.
Ókeypis er á alla viðburði og
sýningar í tilefni dagsins.
„Haustkarnivalið er í raun hugsað
sem upptaktur að haustdagskrá
og menningarvetri,“ segir Elísabet
Indra Ragnarsdóttir, verkefna- og
viðburðastjóri hjá Kópavogsbæ.
„Þarna stíga á stokk listamenn
úr ólíkum áttum sem bjóða upp á
skemmtun og skapandi starf fyrir
alla fjölskylduna,“ segir Elísabet
Indra og bætir við að ókeypis sé á
alla viðburði og sýningar í tilefni
dagsins.
Þverfaglegt samstarf á milli húsa
Fram undan í haust er glæsileg og
fjölbreytt viðburðadagskrá sem
menningarhúsin fimm í Kópavogi
standa að baki en þau eru Gerðar-
safn, Salurinn, Héraðsskjalasafn
Kópavogs, Bókasafn Kópavogs og
Náttúrufræðistofa Kópavogs.
„Vegna návígis þessara menn-
ingarstofnana hefur í gegnum árin
skapast hefð fyrir frjóu og áhuga-
verðu samstarfi þvert á ólíkar
listgreinar, fræði og vísindi,“ segir
Elísabet Indra, „bæði í sýninga-
haldi, viðburðum og fræðsluverk-
efnum.“
Pönkganga um Kópavog
og arabísk letursmiðja
Alla miðvikudaga yfir vetrar-
tímann skiptast húsin á að bjóða
upp á Menningu á miðvikudögum
klukkan 12.15 en þar kemur fram
áhugavert fræða- og listafólk úr
ólíkum áttum með hádegiserindi,
tónleika, listamannaleiðsögn og
fleira.
„Á miðvikudögum í september
verður boðið upp á pönkgöngu
Doktors Gunna um Hamra-
borgina, fyrirlestur Páls Líndals
umhverfissálfræðings um áhrif
náttúru á sálarheill, djasstónleika
Steingríms Teague og Silvu Þórðar-
dóttur og erindi Guju Daggar
Hauksdóttur um Högnu Sigurðar-
dóttur arkitekt,“ segir Elísabet
Indra og heldur áfram:
„Alla laugardaga yfir vetrar-
tímann verður svo boðið upp á
metnaðarfulla fjölskyldudagskrá
undir heitinu Fjölskyldustundir á
laugardögum klukkan 13, en fram
undan eru meðal annars arabísk
letursmiðja, þjóðlagaskotnir fjöl-
skyldutónleikar með hljómsveit-
inni Brek, dans- og teiknismiðja
með Katrínu Gunnarsdóttur og
Rán Flygenring og Vísindasmiðja
Háskóla Íslands.“
Fjölskyldustundirnar eru
haldnar á víxl á Gerðarsafni,
Salnum, Bókasafni og Náttúru-
fræðistofu Kópavogs og er ókeypis
á alla viðburði líkt og á Menningu
á miðvikudögum, en lista- og
menningarráð Kópavogsbæjar
styrkir viðburðina.
Glænýtt og spennandi
menningartímarit
Á laugardaginn kemur einnig út
nýtt menningartímarit helgað
menningarmálum í Kópavogi en
ritstjóri þess er Íris María Stefáns-
dóttir, markaðs- og kynningar-
stjóri menningarmála Kópavogs.
„Þetta er þriðja árið í röð sem
við ráðumst í útgáfu menningar-
tímarits hjá Kópavogsbæ,“ segir
Íris María.
„Tímaritið er hvort tveggja
hugsað sem kynningarvettvangur
en ekki síður gefst þarna færi á að
kafa aðeins ofan í það sem verið
er að gera í menningarmálum í
bænum. Í blaðinu má til dæmis
finna mjög skemmtileg og efnis-
mikil viðtöl við listamenn sem
tengjast menningarstarfi í Kópa-
vogsbæ með einum eða öðrum
hætti. Þar má nefna viðtal við
Brynju Hjálmsdóttur, handhafa
Ljóðstafs Jóns úr Vör 2022, og Þór
Vigfússon, handhafa Gerðarverð-
launa 2021,“ upplýsir Íris María.
Á meðal annars efnis í tíma-
ritinu er umfjöllun um nýjar og
metnaðarfullar tónleikaseríur í
Salnum sem eru Syngjandi í Saln-
um og Ár íslenska einsöngslagsins,
og umfjöllun um Grakkana sem er
unglingaráð Gerðarsafns.
„Einnig má lesa viðtal við
Jóhönnu Ásgeirsdóttur sem er
listrænn stjórnandi Listar án
landamæra, en hluti hátíðarinnar
verður haldinn í menningarhús-
unum, sem og viðtal við Bjarna
Snæbjörnsson um heimildasöng-
leikinn Góðan daginn, Faggi, sem
verður sýndur í Salnum í Kópavogi
í nóvember fyrir alla tíundu bekk-
inga í grunnskólum Kópavogs,“
greinir ritstjórinn Íris María frá.
Nýtt merki og glæsilegur vefur
Menningarmál í Kópavogi eru
nú kynnt undir nýju merki sem
er MEKÓ. Undir þann hatt fara
menningarviðburðir víða í Kópa-
vogi, ekki einungis í hinum þrótt-
miklu menningarstofnunum.
„Á laugardaginn munum við
kynna til sögunnar nýja vefsíðu,
meko.is, en þar verður vettvangur
fyrir fjölbreytta menningarvið-
burði og sýningar í Kópavogi,“
segir Íris María.
„Kópavogur er orðinn svo stór
og hann iðar af menningu og lífi.
Á nýju síðunni verður hægt að
nálgast upplýsingar um allt það
blómlega starf sem á sér stað víða
um Kópavog. Nýlegt dæmi er
Hamraborg Festival sem teymið
að baki Midpunkt listarýminu
stóð að, en lista- og menningarráð
Kópavogsbæjar studdi myndarlega
við hátíðina. Hamraborg Festival
er dæmi um sjálfsprottið fram-
tak grasrótarinnar og tilrauna-
mennskunnar sem er svo mikil-
vægt að hlúa að og næra,“ segir Íris
María.
Lesendur eru hvattir til að kynna
sér menningarstarfið í vetur hjá
Kópavogsbæ á nýju vefsíðunni
meko.is og í nýju og veglegu menn-
ingartímariti en bæði tímaritið og
vefurinn verða aðgengileg frá og
með næsta laugardegi.
„Svo er bara að mæta á Karni-
val í Kópavogi laugardaginn
3. september og heilsa hausti með
bravúr,“ segja þær Elísabet Indra
og Íris María, fullar tilhlökkunar
og gleði. n
Allar nánari upplýsingar eru á
meko.is
Hefð er fyrir þverfaglegu samstarfi menningarstofnana Kópavogs. Hér er hluti starfsfólks sem kemur að blómlegu viðburðahaldinu. Frá vinstri: Bylgja Júlíusdóttir, deildarstjóri viðburða, Sigurlaug Jóna
Hannesdóttir útibússtjóri, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefna- og viðburðastjóri, Gréta Björg Ólafsdóttir, deildarstjóri barnastarfs, Haraldur R. Ingvason líffræðingur, Íris María Stefánsdóttir, markaðs-
stjóri menningarmála, Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir móttökustjóri, Cecilia Cedet Gaihede, verkefnastjóri safneignar, og Anja Ísabella Lövenholdt, smiðjustýra og verkefnastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svo er bara að
mæta á Karnival í
Kópavogi á laugardaginn
og heilsa hausti með
bravúr!
2 kynningarblað A L LT 1. september 2022 FIMMTUDAGUR