Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 24
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
FYRIR HAUSTIÐ
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
hlý og vatnsvarin yfirhöfn frá
Verð
39.900 kr.
Ásgerður Ólafsdóttir stefnir
á að sameina viðskipta-
fræðigráðuna og gráðu í
vöruhönnun eftir útskrift.
Samhliða námi hefur hún
hannað og saumað sundföt
og ýmsan annan fatnað.
Frá því Ásgerður Ólafsdóttir,
nemandi í vöruhönnun við Lista-
háskóla Íslands, man eftir sér
hefur hún haft áhuga á listum og
hönnun og stefndi alltaf að ein-
hverju leyti í þá áttina í lífinu. „Ég
lærði fatahönnun í tvær annir í
Amsterdam áður en ég flutti heim
til þess að hefja nám í viðskipta-
fræði. Á þeim tímapunkti hafði ég
fundið að ég vildi ekki einskorða
mig við fatahönnun og vildi bæta
við mig þekkingu í viðskiptum til
þess að geta haldið utan um mögu-
legan eigin rekstur í framtíðinni.“
Eftir útskrift úr viðskipta-
fræðinni segist Ásgerður hafa
fundið hvað hún saknaði listar-
innar og ákvað því að sækja um
hönnunarnám um haustið. „Það
var bróðir minn sem benti mér á
vöruhönnunina við Listaháskól-
ann og reyndist það vera nákvæm-
lega það sem ég hafði verið að leita
eftir.“
Textíllinn heillar alltaf
Samhliða náminu í vöruhönnun
hefur Ásgerður hannað og saumað
sundföt og ýmsan annan fatnað.
„Mér hefur alltaf þótt vænt um
sundmenninguna og held að áhugi
minn á sundfötum sé sprottinn
upp úr því. Umhverfið og fólkið í
Vesturbæjarlaug og í Nauthólsvík,
þar sem ég hef starfað undanfarin
ár, er líka góður innblástur en
áhuginn var þegar til staðar.“
Verkefnin í náminu hingað til
hafa verið fjölbreytt að hennar
sögn. „Þau hafa gefið mér tækifæri
til þess að kynnast mismunandi
aðferðum, bæði í hönnun og fram-
leiðslu, og það hefur opnað marga
nýja spennandi möguleika. Áhug-
inn liggur víða en ég virðist alltaf
koma aftur til baka í textílinn og
er alltaf með nokkur verkefni í
höndunum.“
Tveggja gráðu draumur
Ásgerður stefnir á útskrift sumarið
2023 og segir framtíðina bæði
spennandi og óljósa. „Draumurinn
er að fá tækifæri til þess að tvinna
þessar gráður saman í starfi í fram-
tíðinni en hvernig það mun líta
út er enn óljóst. Ég er þó viss um
að þær haldast vel í hendur og er
spennt að sjá hvaða tækifæri muni
bjóðast. En fyrst er að klára BA-
ritgerðina og lokaverkefnið fyrir
útskrift næsta sumar. Einnig mun
bekkurinn minn vinna saman að
hópverkefni og verður lokaútkoma
þess sýnd í lok árs.“ n
Sækir innblástur í
sundmenninguna
Draumurinn er
að fá tækifæri til
þess að tvinna
þessar gráður
saman í starfi
í framtíðinni
en hvernig það
mun líta út er
enn óljóst, segir
Ásgerður Ólafs-
dóttir, nemandi
í vöruhönnun
við Listaháskóla
Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Jakki gerður úr slitnum armkútum sem höfðu fallið til í
laugum borgarinnar. Samstarfsverkefni Ásgerðar, Hrafn-
hildar Gunnarsdóttur og Kamillu Henriau fyrir sýninguna
Hlutverk á HönnunarMars árið 2021.
Lokaverkefni Ásgerðar af öðru ári í vöruhönnun ber
heitið Sær og er sjósundsflík úr ull ásamt handklæði
með útsaumuðum notkunarleiðbeiningum.
MYND/FJÖLNIR ÓLAFSSON
Ullin býr yfir
eiginleikum
sem henta
sérstaklega til
sunds í köldum
sjó og náttúru-
legt efnið losar
ekki örplast við
notkun og þvott
eins og búast
má við af öðrum
sundfatnaði.
Handklæðið sem einnig geymir
flíkina og hjálpar henni að halda
lögun sinni má binda saman og bera
á öxlinni.
4 kynningarblað A L LT 1. september 2022 FIMMTUDAGUR