Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 26
Guðlaug Svala Steinunnar
Kristjánsdóttir hefur vakið
athygli innan prjónasam-
félagsins fyrir hönnun sína
á einstökum og fallegum
prjónamynstrum. Hún
segir mynstrin leita á sig og
að einhverfan gefi sér ríka
mynsturhugsun og athygli
fyrir smáatriðum.
jme@frettabladid.is
„Mamma, ömmur mínar og
frænkur eru og voru mjög hand
lagnar og prjónuðu og saumuðu
mikið. Sjálf hef ég prjónað, heklað
og föndrað almennt eins lengi og ég
man eftir mér,“ segir Guðlaug. „Ég
man að heima hjá Guðlaugu ömmu
minni var handavinnukommóða
með prjónum, nálum og fleiri ævin
týralegum hlutum eins og pípunni
sem hún reykti í denn. Ég gat
dundað mér löngum stundum við
að gramsa í kommóðunni. Amma
hafði líka óendanlega þolinmæði
og tíma til að leiðbeina og hjálpa
sem ég nýtti mér óspart.“
Handavinnan veitir slökun
Guðlaug er sjúkraþjálfari að mennt
en starfsferill hennar er talsvert
fjölbreyttari. „Ég var formaður
BHM í sex ár, sat í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar í átta ár, en vann líka
við sjúkraþjálfun og á Námsbraut
í sjúkraþjálfun við HÍ. Í dag starfa
ég við fræðslu og ráðgjöf hjá Ein
hverfusamtökunum, en ég og fleiri í
fjölskyldu minni erum á ein hverfu
rófinu,“ segir Guðlaug.
„Prjón og hekl hefur alltaf verið
hluti af mínu stimmi, eða fitli, sem
fylgir einhverfunni. Reglubundin,
endurtekin hreyfing sem veitir
slökun og ró. Takturinn í prjóninu
virkar á mig svipað og gönguferð,
hjálpar huganum að fikra sig í
gegnum verkefni og viðfangsefni
og styður þannig við annað sem
ég geri í starfi og leik. Það er líka
eitthvað heillandi og göldrótt við að
geta tekið hnykil af bandi og flækt
hann saman þannig að úr verði eitt
hvað bæði fallegt og nýtilegt.
Ég upplifi tengingu við eitthvað
sammannlegt eðli eða ferli, að
búa til nytjahluti sem um leið eru
til skrauts. Prjónles, eins og það
nefnist á góðri og gamalli íslensku,
er ekki bara hlýtt og fallegt, heldur
býr líka í því menning, arfur og
hefð, sem gengur mann fram af
manni. Það er gaman að vera hluti
af þeim straumi,“ segir Guðlaug.
Mynstrin fæðast á koddanum
Guðlaug hefur gefið út rúmlega
þrjátíu prjónauppskriftir með
mynstrum og sniðum sem hún
hannar sjálf. „Ég á svo nokkur
í hönnunarferli og fleiri liggja
óskrifuð en fullgerð sem hafa fæðst
síðustu tvö, þrjú árin. Ég byrjaði að
prjóna peysur upp úr tíu ára aldri
og fann svolítið mínar eigin leiðir
í því. Ég kenndi mér til dæmis að
prjóna með vinstri hendinni til
baka til að sleppa við brugðnar
umferðir og æfði mig markvisst í
að prjóna hratt,“ segir hún.
Guðlaug segir að hún hafi þó
furðu seint byrjað að hanna sín
eigin mynstur. „Aðferðin að prjóna
peysur ofan frá og niður var opnun
fyrir mér, enda er þá auðveldara að
móta flíkurnar jafnóðum. Síðan
var önnur opnun í tengslum við
alvarlega kulnun sem ég lenti í árið
2018 og vann mig út úr að stórum
hluta gegnum handavinnuna. Á
þeim tíma gat ég illa lesið sem ýtti
mér út í tilraunamennsku með
eigin mynstur. Þá var ekki aftur
snúið og mynstrin fæðast gjarnan
á kvöldin og morgnana á koddan
um, nokkurn veginn af sjálfum sér.
Ég er ekki beint að leita: mynstrin
leita eiginlega frekar á mig. Ég tek
talsvert af myndum ef ég sé eitt
hvað fallegt og sumt seytlar smám
saman inn í undirmeðvitundina
og bankar upp á síðar.“
Í eðli sínu óregluleg
Meðal þeirra gjafa sem fylgja
einhverfunni segir Guðlaug að
sé rík mynsturhugsun og athygli
á smáatriðum. „Ég hrífst af
náttúrumynstrum til dæmis á
fiðrildavængjum og skeljum. Þau
eru í eðli sínu óregluleg, sem er
pínu óvenjulegt í prjóni, það er að
mynstrin eru ekki endilega sam
hverf eða fyrirsjáanleg. Náttúran
er besti mynstursmiðurinn að
mínu mati og ég reyni að vera
henni trú og halda óreglunni gang
andi. Ég hef líka fundið mynstur í
húsum og mannvirkjum, eins og
innviðum Fríkirkjunnar í Hafnar
firði og húsum sem eru kennileiti
bæði hér í bæ og víðar.“
Guðlaug er með síðu á Ravelry
vefnum þar sem má nálgast upp
skriftirnar hennar. „Ef fólk er ekki
sjálft með aðgang að vefsvæðinu er
hægt að fá aðstoð í garnbúðum við
að kaupa uppskriftirnar. Eins má
senda mér tölvupóst eða skilaboð
gegnum samfélagsmiðla og nálgast
uppskriftirnar þannig. Stundum
prjóna ég eftir pöntun, en þá bara
mína eigin hönnun. Ég hef líka
gert einstakar flíkur eftir óskum
hvers og eins, sem getur verið mjög
skemmtilegt og gefandi,“ segir
Guðlaug að lokum. n
Náttúran er besti
mynstursmiðurinn
Guðlaug starfar við fræðslu og ráðgjöf hjá Einhverfusamtökunum og hefur prjónað, heklað og föndrað frá því hún
man eftir sér. Hægt er að skoða fleiri prjónapeysur eftir Guðlaugu á Instagram: gkdottir_knits. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Mynstrið á þessari gullfallegu peysu er innblásið af
mynstri á væng fiðrildis sem Guðlaug hitti fyrir á Ísafirði.
Í þessari peysu fær steindur gluggi að verða að nýju mynstri.
MYNDIR/EVA ÁGÚSTA ARADÓTTIR
Hér fær vers úr Tímanum og vatninu eftir Stein Steinarr,
um tvo dumbrauða fiska, að verða að prjónamynstri.
Léttari lund,
alla daga
MAG-YOUR-MIND® er öflug blanda af magnesíum,
B6 & B9 ásamt burnirót og adaptógenum.
Vinnur gegn streitu og skerpir hugsun.
6 kynningarblað A L LT 1. september 2022 FIMMTUDAGUR