Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 26
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir hefur vakið athygli innan prjónasam- félagsins fyrir hönnun sína á einstökum og fallegum prjónamynstrum. Hún segir mynstrin leita á sig og að einhverfan gefi sér ríka mynsturhugsun og athygli fyrir smáatriðum. jme@frettabladid.is „Mamma, ömmur mínar og frænkur eru og voru mjög hand­ lagnar og prjónuðu og saumuðu mikið. Sjálf hef ég prjónað, heklað og föndrað almennt eins lengi og ég man eftir mér,“ segir Guðlaug. „Ég man að heima hjá Guðlaugu ömmu minni var handavinnukommóða með prjónum, nálum og fleiri ævin­ týralegum hlutum eins og pípunni sem hún reykti í denn. Ég gat dundað mér löngum stundum við að gramsa í kommóðunni. Amma hafði líka óendanlega þolinmæði og tíma til að leiðbeina og hjálpa sem ég nýtti mér óspart.“ Handavinnan veitir slökun Guðlaug er sjúkraþjálfari að mennt en starfsferill hennar er talsvert fjölbreyttari. „Ég var formaður BHM í sex ár, sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í átta ár, en vann líka við sjúkraþjálfun og á Námsbraut í sjúkraþjálfun við HÍ. Í dag starfa ég við fræðslu og ráðgjöf hjá Ein­ hverfusamtökunum, en ég og fleiri í fjölskyldu minni erum á ein hverfu­ rófinu,“ segir Guðlaug. „Prjón og hekl hefur alltaf verið hluti af mínu stimmi, eða fitli, sem fylgir einhverfunni. Reglubundin, endurtekin hreyfing sem veitir slökun og ró. Takturinn í prjóninu virkar á mig svipað og gönguferð, hjálpar huganum að fikra sig í gegnum verkefni og viðfangsefni og styður þannig við annað sem ég geri í starfi og leik. Það er líka eitthvað heillandi og göldrótt við að geta tekið hnykil af bandi og flækt hann saman þannig að úr verði eitt­ hvað bæði fallegt og nýtilegt. Ég upplifi tengingu við eitthvað sammannlegt eðli eða ferli, að búa til nytjahluti sem um leið eru til skrauts. Prjónles, eins og það nefnist á góðri og gamalli íslensku, er ekki bara hlýtt og fallegt, heldur býr líka í því menning, arfur og hefð, sem gengur mann fram af manni. Það er gaman að vera hluti af þeim straumi,“ segir Guðlaug. Mynstrin fæðast á koddanum Guðlaug hefur gefið út rúmlega þrjátíu prjónauppskriftir með mynstrum og sniðum sem hún hannar sjálf. „Ég á svo nokkur í hönnunarferli og fleiri liggja óskrifuð en fullgerð sem hafa fæðst síðustu tvö, þrjú árin. Ég byrjaði að prjóna peysur upp úr tíu ára aldri og fann svolítið mínar eigin leiðir í því. Ég kenndi mér til dæmis að prjóna með vinstri hendinni til baka til að sleppa við brugðnar umferðir og æfði mig markvisst í að prjóna hratt,“ segir hún. Guðlaug segir að hún hafi þó furðu seint byrjað að hanna sín eigin mynstur. „Aðferðin að prjóna peysur ofan frá og niður var opnun fyrir mér, enda er þá auðveldara að móta flíkurnar jafnóðum. Síðan var önnur opnun í tengslum við alvarlega kulnun sem ég lenti í árið 2018 og vann mig út úr að stórum hluta gegnum handavinnuna. Á þeim tíma gat ég illa lesið sem ýtti mér út í tilraunamennsku með eigin mynstur. Þá var ekki aftur snúið og mynstrin fæðast gjarnan á kvöldin og morgnana á koddan­ um, nokkurn veginn af sjálfum sér. Ég er ekki beint að leita: mynstrin leita eiginlega frekar á mig. Ég tek talsvert af myndum ef ég sé eitt­ hvað fallegt og sumt seytlar smám saman inn í undirmeðvitundina og bankar upp á síðar.“ Í eðli sínu óregluleg Meðal þeirra gjafa sem fylgja einhverfunni segir Guðlaug að sé rík mynsturhugsun og athygli á smáatriðum. „Ég hrífst af náttúrumynstrum til dæmis á fiðrildavængjum og skeljum. Þau eru í eðli sínu óregluleg, sem er pínu óvenjulegt í prjóni, það er að mynstrin eru ekki endilega sam­ hverf eða fyrirsjáanleg. Náttúran er besti mynstursmiðurinn að mínu mati og ég reyni að vera henni trú og halda óreglunni gang­ andi. Ég hef líka fundið mynstur í húsum og mannvirkjum, eins og innviðum Fríkirkjunnar í Hafnar­ firði og húsum sem eru kennileiti bæði hér í bæ og víðar.“ Guðlaug er með síðu á Ravelry­ vefnum þar sem má nálgast upp­ skriftirnar hennar. „Ef fólk er ekki sjálft með aðgang að vefsvæðinu er hægt að fá aðstoð í garnbúðum við að kaupa uppskriftirnar. Eins má senda mér tölvupóst eða skilaboð gegnum samfélagsmiðla og nálgast uppskriftirnar þannig. Stundum prjóna ég eftir pöntun, en þá bara mína eigin hönnun. Ég hef líka gert einstakar flíkur eftir óskum hvers og eins, sem getur verið mjög skemmtilegt og gefandi,“ segir Guðlaug að lokum. n Náttúran er besti mynstursmiðurinn Guðlaug starfar við fræðslu og ráðgjöf hjá Einhverfusamtökunum og hefur prjónað, heklað og föndrað frá því hún man eftir sér. Hægt er að skoða fleiri prjónapeysur eftir Guðlaugu á Instagram: gkdottir_knits. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Mynstrið á þessari gullfallegu peysu er innblásið af mynstri á væng fiðrildis sem Guðlaug hitti fyrir á Ísafirði. Í þessari peysu fær steindur gluggi að verða að nýju mynstri. MYNDIR/EVA ÁGÚSTA ARADÓTTIR Hér fær vers úr Tímanum og vatninu eftir Stein Steinarr, um tvo dumbrauða fiska, að verða að prjónamynstri. Léttari lund, alla daga MAG-YOUR-MIND® er öflug blanda af magnesíum, B6 & B9 ásamt burnirót og adaptógenum. Vinnur gegn streitu og skerpir hugsun. 6 kynningarblað A L LT 1. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.