Fréttablaðið - 01.09.2022, Page 30

Fréttablaðið - 01.09.2022, Page 30
Sveindís var fljótasti leikmaður Evrópu- mótsins. 22 Íþróttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR Ég get alveg viðurkennt að mér fannst það alveg smá erfitt vegna þess að ég var svekkt eftir mótið. Sandra Sigurðardóttir, ný­ krýndur bikarmeistari með Val og landsliðsmarkvörður íslenska landsliðsins í knatt­ spyrnu, segir andstæðing föstudagsins, Belarús, vera sýnda veiði en ekki gefna. Landsliðið er nú komið saman á nýjan leik eftir hálfgert von­ brigða­mót að mati Söndru sem segist hafa dregist niður í svekkelsi eftir mótið. aron@frettabladid.is FÓTBOLTI Fram undan eru mikil­ vægir leikir landsliðsins í undan­ keppni Heimsmeistaramótsins 2023, leikir sem munu skera úr um örlög Íslands í riðlinum. Fyrri leikur liðsins er gegn Belarús á Laugardals­ velli á föstudaginn. Sandra varð bikarmeistari með Val um síðustu helgi og er það í fyrsta skipti frá árinu 2011 sem lið­ inu tekst að krækja í bikarmeistara­ titilinn í kvennaflokki. Hún segir það ekki erfitt fyrir sig að kúpla sig úr því verkefni beint yfir í mikilvægt verkefni með landsliðinu. „Mér persónulega finnst það ekki. Vissulega á ég nokkur ár inni á suma af leikmönnum okkar en ég tel að heilt yfir sé það ekki erfitt fyrir okkur sem erum leikmenn Vals hér að skipta frá þessu afreki sem við unnum og yfir á þetta verkefni hér. Hér erum við mætt í allt annað dæmi og oft á tíðum getur það bara verið mjög gott. Þó við höfum orðið bikarmeistarar á laugardaginn þá skiptir það engu máli þegar við erum mættar hingað í landsliðs­ verkefni. En það sem við getum tekið með úr bikarúrslitunum er sjálfstraustið sem því fylgir að standa uppi sem sigurvegari.“ Sýnd veiði en ekki gefin Andstæðingur föstudagsins er Bel­ arús en liðin mætast á Laugardals­ velli. Ísland vann nokkuð öruggan sigur á Belarús í fyrri umferð und­ ankeppninnar en Sandra segir að ekki sé um auðveldan leik að ræða. „Þær eru vaxandi knattspyrnu­ þjóð og hafa sýnt það í riðlakeppn­ inni, unnu meðal annars góðan sigur á Tékkunum. Þó svo að við höfum unnið þær nokkuð auðveld­ lega 5­0 á útivelli fyrr í keppninni þá byrjaði leikurinn samt þannig að við vorum lengi að brjóta þær. Fyrst og fremst snýst þetta bara um okkur og á meðan við spilum okkar besta leik þá eigum við alveg að ná sigrinum.“ Á sætið fyllilega skilið Ásdís Karen Halldórsdóttir, liðs­ félagi Söndru hjá Val, var kölluð inn í landsliðshópinn með skömmum fyrirvara vegna meiðsla Öglu Maríu Albertsdóttur. Sandra segir hana fyllilega verðskulda landsliðssætið. „Það býr hellingur í Ásdísi og hún hefur sýnt það og sannað með okkur í Val í sumar. Þorsteinn (landsliðsþjálfari Íslands) hefur úr mörgum leikmönnum að velja en það er frábært fyrir Ásdísi að fá þetta tækifæri. Hún hefur verið í kringum undir 23 ára landsliðið undanfarið og á þetta sæti sitt núna í landsliðshópnum fyllilega skilið. Vonandi mun þetta gefa henni auk­ inn kraft í framhaldinu.“ Ekkert frí Nú hafa nokkrar vikur liðið frá því að íslenska landsliðið lauk leik á Evrópumótinu í knattspyrnu. Liðið gerði þrjú jafntefli á mótinu í því sem margir kalla vonbrigða­mót. Á meðan margir af leikmönnum Íslands héldu í sumarfrí eftir mótið hóf Sandra að leika á ný með Val. Hún segir það að einhverju leyti hafa verið erfitt fyrir sig. „Ég held að það hafi verið fínt fyrir margar hverjar úr landsliðinu okkar að komast í frí eftir Evrópumótið, ná að kúpla sig út, vinna almennilega úr reynslunni og jafna sig á löngu tíma­ bili. Á meðan hafði ég í raun og veru ekki tíma til þess að velta mér upp úr mótinu. Ég get alveg viðurkennt að mér fannst það alveg smá erfitt vegna þess að ég var svekkt eftir mótið. Að sama skapi tel ég það bara hafa gert mér gott að fara bara um leið aftur að spila með Val.“ n Svekkti sig á EM en er klár í verkefnið Sandra Sigurðar- dóttir er einn reynslumesti leikmaður íslenska lands- liðsins um þessar mundir með 45 A-lands- leiki á feril- skránni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Aron Guðmundsson aron @frettabladid.is helgifannar@frettabladid.is FÓTBOLTI „Við erum allar mjög spenntar. Það er geggjað að fá loks­ ins heimaleik,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir landsliðskona um leik Íslands gegn Belarús á morgun. Með sigri verður Ísland í kjörstöðu á toppi riðilsins fyrir lokaleikinn gegn Hollendingum, þar sem sæti á HM verður undir. Liðið sem sigrar í einvígi Íslands og Hollands fer beint á HM á næsta ári, hitt fer í umspil. „Þetta er mjög mikilvægur leikur upp á að vera í góðri stöðu á móti Hollandi. Ef við vinnum getum við gert jafntefli þar. Við hugsum fyrst og fremst um að vinna Belarús og taka svo líka Holland,“ segir Svein­ dís. Henni finnst alltaf jafn skemmti­ legt að hitta stelpurnar í íslenska liðinu í landsliðsverkefnum. „Að vera í þessu landsliði er frá­ bært. Við erum allar hundrað pró­ sent, engin meiðsli svo það er allt klárt.“ Sveindís segir svekkelsið yfir því að hafa ekki komist upp úr riðli sínum á lokakeppni EM í sumar vera að baki, en að það geti hjálpað liðinu í að ná enn lengra. „Okkur langar að gera betur, svo við fáum vonandi annað tækifæri á HM til að sýna okkur.“ Það er stærsti draumur allra leik­ manna að spila á HM. „Markmiðið hjá mér er að komast á HM og allar stelpurnar vilja komast þangað. Það er klikkað að geta tekið þátt í þessu og átt möguleika á að komast á mótið.“ Sveindís er að fara inn í sitt annað tímabil með þýska stórveldinu Wolfsburg. Það leggst vel í þennan hæfileikaríka leikmann. „Undirbúningstímabilið hefur verið svolítið erfitt, en þetta er skemmtilegt, ég er mjög spennt fyrir því að þetta byrji.“ Hún stefnir á að taka að sér stærra hlutverk í liði Wolfsburg á komandi leiktíð. „Þetta er ógeðslega sterkur hópur. Við erum með svo marga frábæra sóknarmenn. Markmiðið mitt er fyrst og fremst að komast í hópinn og vinna mér inn sæti í byrj­ unarliðinu.“ n Vilja annað tækifæri til að sanna sig á stærsta sviðinu Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með Íslandi á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.