Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 34

Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 34
Málið er bara að stóru hlut- irnir gerðust á þessum fundi. Þetta var raunveru- legi undirbúningur þess að Berlínarmúrinn féll. Ingvi Hrafn Jónsson Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Oddsson fyrrverandi bankastjóri, Miðleiti 5, Reykjavík, lést á Skjóli þann 25. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 8. september kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Elínborg Þórarinsdóttir Benedikt Kristjánsson Rósa Kristjánsdóttir Sigríður Kr. Kristjánsdóttir Már Kristjánsson Halla Ásgeirsdóttir Oddur Kristjánsson Elsa Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Gylfa Kristins Sigurðssonar ökukennara, Hlynsölum 1, sem lést 14. júlí. Útförin fór fram miðvikudaginn 3. ágúst. Jensína Sigurborg Jóhannsdóttir Guðrún Helga Gylfadóttir Bjartmar Bjarnason Sigurður Smári Gylfason Hulda Ruth Ársælsdóttir Jóhanna María Gylfadóttir Elías Þór Pétursson Steinunn Margrét Gylfadóttir Helgi Mar Hallgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Erlings Aspelund Tómasarhaga 11, Reykjavík, sem lést 8. ágúst. Útförin fór fram frá Dómkirkjunni 24. ágúst. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar 12E á Landspítalanum fyrir hlýhug og góða umönnun. Þórey Aspelund Kristín Aspelund Hákon Aspelund Erling Aspelund Kristín Björnsdóttir Karl Aspelund Brenda Aspelund Thor Aspelund Arna Guðmundsdóttir Guðrún Aspelund Gunnar Jakobsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Boðaþingi 5, áður Hófgerði 18a, Kópavogi, lést á heimili sínu sunnudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 5. september klukkan 13. Bjarni Birgisson Dóra Þórisdóttir Jódís Birgisdóttir Vilhjálmur Birgisson Þórey Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Einlægar þakkir til allra sem sýndu fjölskyldunni vináttu og kærleika við andlát og útför Magnúsar Sædals Svavarssonar og heiðruðu minningu hans á margvíslegan hátt. Vilborg Gestsdóttir Gestur Óskar Magnússon Guðrún Elva Jónsdóttir Sigurbjörg Magnúsdóttir Jón Svan Sverrisson Dagur Ari, Eyrún Hulda og Svala Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ægir Jónsson Reiðvaði 1, Reykjavík, lést 19. ágúst á Landspítalanum Fossvogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigvaldi Ægisson Elísabet Reinhardsdóttir Jón Ægisson Svanborg Einarsdóttir Hrönn Ægisdóttir Guðmann Reynir Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Gróa Bjarnadóttir lést á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi miðvikudaginn 24. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, mánudaginn 5. september kl. 13. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/16vSbxlaRiU Eyrún Harpa Hlynsdóttir Torfi Jóhannsson Berglind Hrönn Hlynsdóttir Steinar Smári Einarsson Arnþór Ingi Hlynsson barnabörn og systkini. Leiðtogafundur Gorbatsjov og Reagan í Höfða er Íslendingum minnisstæður. Ingvi Hrafn Jónsson stýrði útsendingu frá fundinum þar sem teygja þurfti lopann áður en hurðarhúnninn snerist loksins. arnatomas@frettabladid.is Míkhaíl S. Gorbatsjov, fyrrverandi leið- togi Sovétríkjanna, lést á þriðjudag, 91 árs að aldri. Heimsókn hans til Íslands er söguleg þar sem hann fundaði með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta á leið- togafundinum í Höfða 11. október 1986. Ingvi Hrafn Jónsson var fréttastjóri á RÚV á þeim tíma og stýrði spennu- þrunginni útsendingu frá tímamóta- viðburðinum. „Andrúmsloftið var auðvitað mjög sérstakt. Þetta kom með engum fyrir- vara og við höfðum tíu daga,“ segir Ingvi Hrafn sem fékk tilkynningu um fund- inn frá forsætisráðuneytinu 1. október. „Við vorum í hers höndum á meðan á þessu stóð. Landið fylltist á augabragði af fréttamönnum og við gerðum okkur ekki almennilega grein fyrir því hvað myndi gerast og hvernig þetta yrði.“ Í erlendum miðlum var fundinum lýst sem stuttri vinnuferð sem Ingvi Hrafn segir vissulega hafa verið rétt. „Merkilegast í mínum huga við þetta allt saman við þessa tvo daga sem þeir voru hérna var að það lak ekkert út,“ segir hann. „Það er alltaf einhver sem er látinn leka en í þessu tilfelli lak ekki neitt. Það vissi enginn neitt, nema þessir tveir menn og túlkarnir sátu á milli þeirra.“ Karpað við leyniþjónustuna Ein eftirminnilegasta minning Ingva Hrafns var þegar hann var að koma fyrir sjónvarpsbílnum fyrir útsendingu og lenti á óvæntum fundi með yfirmanni leyniþjónustu Reagans fyrir utan Höfða. „Ég var búinn að koma bílnum fyrir fimmtíu metra frá Höfða, nálægt Ó. Johnson og Kaaber-húsinu. Ég var farinn heim að sofa þegar hringt var í mig klukkan hálf tvö um nóttina frá leyniþjónustunni sem sagði mér að bíllinn gæti ekki verið þarna,“ lýsir Ingvi Hrafn sem fór í kjölfarið og hitti yfirmann öryggisvarðanna. „Ég sagði honum að við værum ríkissjónvarp og að við værum að miðla upptökum bæði til Moskvu, Sambands evrópskra sjón- varpsstöðva og fleiri sem fengu efni frá okkur.“ Ingva datt sjálfum ekki í hug að hann mætti fá að hafa bílinn á horninu þar sem honum var að endingu lagt. „Ég benti honum á hornið í einhverju bríaríi og hann sagði bara: „Okey, fine.“ Við færðum bílinn og þannig var til komin þessi fræga útsending af hurðar- húninum.“ Raísa reddaði málunum Þar sem Ingvi Hrafn greindi frá fram- vindu mála í langri útsendingu þurfti að fylla upp í ansi stórar eyður. „Ég var í loftinu held ég í átján klukku- tíma,“ segir hann og hlær. „Ég var með fréttastofuna að reyna að finna fréttir sem reyndist mjög erfitt, en Raísa Gor- batsjova reddaði okkur fyrir horn. Mar- grét Hinriksdóttir fréttakona og töku- maður fylgdu henni svo við höfðum einhverjar myndir til að sýna áður en þeir voru að fara úr Höfða upp í limm- urnar – Reagan í sendiherrabústaðinn og Gorbatsjov um borð í skipið. Það sást annars ekki neitt.“ Íslenskir ráðamenn, þar á meðal Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra, vissu álíka lítið og voru í sambandi við Ingva Hrafn til að leita svara. „Þeir hringdu í mig og spurðu: „Veistu eitthvað?“ og ég svaraði: „Nei, ég veit ekki neitt. Þú ert forsætisráðherra, veist þú ekki neitt?““ Alls engin vonbrigði Merkilegast við þetta allt saman finnst Ingva Hrafni vera að eftir fundinn hafi allir talað um að hann hefði misheppn- ast og að fundurinn hefði valdið gríðar- legum vonbrigðum. „Það var eins og hálfgerð útfarar- stemning yfir þessu öllu saman,“ segir hann. „Málið er bara að stóru hlutirnir gerðust á þessum fundi. Þetta var raun- verulegi undirbúningur þess að Berlín- armúrinn féll. Patty Newman, sem var ræðuritari Reagan, segir frá því í bók sinni að þegar þau fóru, og voru yfir Grænlandi í Air Force One, stóð einhver upp og sagði: „Þetta eru ekki mistök. Það gerðust þarna stórir hlutir.“ n Húnavakan við Höfða Gorbatsjov og Reagan léttir í lund fyrir utan Höfða. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.