Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 40
Mér finnst þessi bók ekki vera bara um þessar tvær sögur í Reykjavík heldur líka sögu hins vestræna heims. Rithöfundurinn Adolf Smári Unnarsson hefur sent frá sér nýja bók sem ber titilinn Auðlesin og er önnur skáldsaga hans. Auðlesin segir frá ungskáldinu Nínu og verkefnastjóranum Bjarti sem verða að takast á við sínar eigin hugmyndir og hugsjónir þegar þau velja á milli erfiðra siðferðislegra valkosta. Bókin er önnur skáldsaga Adolfs Smára og kom út hjá Forlaginu á dögunum. Um er að ræða samtímasögu úr Reykjavík þar sem spurt er áleitinna spurninga um siðferði og þátttöku okkar í samfélaginu. „Við erum búin að byggja upp ákveðið samfélag eða ímynd um samfélag. Síðan er það sem við gerum ekkert endilega í takt við það,“ segir Adolf Smári sem segir að bókin sé ákveðin samfélagsádeila sem endurspegli ákvarðanir sem við öll stöndum frammi fyrir. „Við segjum eitt en gerum annað.“ Siðferðislegar spurningar Adolf segir að persónur bókarinnar lýsi átökum sem flestir nútíma ein- staklingar kannist við. „Í báðum tilfellum er meginsaga þessara persóna hvort það sem við gerum samræmist því sem við segjumst vilja gera og segjumst vera,“ segir hann. Þannig sé ytri og innri maður okkar í sífelldum átökum sem skapi óvissu um hver raunveruleg persóna okkar er og hvað samfélag okkar stendur fyrir. „Mér finnst þessi bók ekki vera bara um þessar tvær sögur í Reykja- vík heldur líka sögu hins vestræna heims. Þær siðferðislegu spurningar sem hinn vestræni heimur og helst Evrópa þarf að takast á við í dag,“ segir Adolf Smári en hann telur að daglega þurfi fólk að velja á milli hugsjóna sinna og þess að vera neyt- andi í vestrænu samfélagi og þetta valdi árekstrum. „Ef ég myndi lend a í s ömu sporum og þessar persónur og þyrfti að taka drama- tíska ákvörðun í mínu lífi um það til dæmis að gefa frá mér alla pen- inga til þess að hjálpa ókunn- ugum eða gefa upp þægindin sem ég bý við og einhver annar gæti mögulega fengið þau. Ég hef ekki svarið við því á reiðum höndum,“ segir Adolf. Hann segir að þrátt fyrir að þessir hlutir valdi okkur stundum kvíða sé þetta ekki endilega eitthvað sem við eigum að taka sem áfellisdóm yfir okkur sjálfum. „Ég held að þetta sé einfaldlega siðferðislegt vandamál sem við þurfum að fást við.“ Prag hafði mikil áhrif Adolf Smári stundar meistaranám í leikhússtjórn í Prag í Tékklandi og segir að dvöl hans þar hafi mótað skoðanir hans mikið. „Það er svo ótrúlega mikil krafa um það að öll list sé pólitísk. Það hefur verið þannig frá upphafi 20. aldarinnar því list fyrir þeim er tákn um að þeir séu frjálsir og að þarna ríki lýðræði. Þeir hafa alltaf verið fastir undir öðrum, hvort sem það eru nasistar, Rússar eða nálæg keisara- dæmi. En ég hef aldrei hlegið jafn mikið og í Tékknesku leikhúsi. Það er alltaf þessi hár- fína lína húmors og satíru sem skiptir öllu máli,“ segir Adolf Smári sem telur að bækur verði að vera áleitnar en á sama tíma skemmti- legar til þess að koma skilaboðum sínum til skila og tengja við les- endur. Aðspurður um það sem stendur til næst segir Adolf að nýtt verk eftir hann verði f ljótlega frumsýnt í Kass- anum í Þjóðleikhúsinu. Verkið ber nafnið Nokkur augnablik um nótt og mun Ólafur Egill Ólafsson fara með leikstjórn en leikarar verða Björn Thors, Ebba Katrín Finns- dóttir, Hilmar Guðjónsson og Vig- dís Hrefna Pálsdóttir. n Átök innri og ytri sjálfsmyndar Adolf Smári glímir við áleitn- ar siðferðislegar spurningar í nýjustu skáld- sögu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Ragnar Jón Hrólfsson ragnarjon @frettabladid.is Þó að bók sé flokkuð sem „barnabók“ þýðir það ekki að hún sé minna mikilvæg eða merkileg. Ævar Þór Benediktsson, einnig þekktur sem Ævar vísindamaður, segir lesendum Fréttablaðsins frá bókinni sem breytti lífi hans. Ævar Þór sendir um þessar mundir frá sér nýja skáldsögu sem ber titilinn Skóla- slit. „Bókin sem breytti lífi mínu er fyrsta bókin í bókaröðinni A Series of Unfortunate Events eftir Le- mony Snicket (öðru nafni Daniel Handler). Það að höfundur ekki bara segi sögu, heldur leiki sér meðvitað með texta, tempó og takt innan hennar er eitthvað sem veitti mér glænýja sýn inn í það hvernig hægt er að skrifa. Og að ég tali nú ekki um hvernig hann fífl- ast stundum með endurtekningar. Og hvernig hann fíflast stundum með endurtekningar. Snicket treystir líka lesand- anum. Það þarf ekki alltaf að útskýra allt. Það er í lagi að flækja hlutina og prófa eitthvað nýtt. Allar sögur þurfa ekki að vera eins, allar persónur þurfa ekki að læra lexíu og þó að bók sé flokkuð sem „barnabók“ þýðir það ekki að hún sé minna mikilvæg eða merkileg en allar hinar bækurnar í bókahill- unni. Þá er virðingin sem Snicket ber fyrir lesandanum sömuleiðis eitthvað sem ég hef reynt að temja mér, enda vita allir að börn og unglingar eru mikilvægustu les- endurnir. Var ég búinn að minnast á endurtekningarnar?“ n n Bókin sem breytti lífi mínu tsh@frettabladid.is Djasssöngkonan Marína Ósk sendi á dögunum frá sér sína aðra breið- skífu, One Evening in July, hjá sænska útgáfufyrirtækinu TengTo- nes. Platan inniheldur átta lög og á henni sýnir Marína á sér nýja hlið sem lagasmiður en lögin minna um margt á gömlu djasslögin úr Amer- ísku söngbókinni sem leikin voru af meisturum á borð við Chet Baker, Billie Holiday og Blossom Dearie. „Þessi gamla sveif lutónlist frá 50's og 60's fær mann til að smella fingrum og stappa í takt og hugsa um plötuspilara og vínilplötur og ég dásama hana. Í þessari tónlist fann ég mig sem söngkonu, listakonu og lagasmið og þar er mitt músíkalska heimili,“ segir Marína, sem er nú f lutt aftur heim eftir margra ára nám erlendis. Platan var tekin upp lifandi í hljóðveri í Stokkhólmi, í anda gömlu djassupptakanna. Með Mar- ínu á plötunni leika íslenski gítar- leikarinn og lagasmiðurinn Mikael Máni Ásmundsson, sænski kontra- bassaleikarinn Johan Tengholm og bróðir hans, trompetleikarinn Erik Tengholm. Hópurinn varð til á námsárum Marínu í Stokkhólmi þar sem hún stundaði mastersnám í Jazz Performance. Marína kveðst hafa hlustað mikið á Chet Baker á námsárunum og vildi stofna trommulausan kvar- tett í anda einnar uppáhaldsplötu hennar með trompetmeistaranum, Embraceable You. „Ég hafði heyrt sænsku bræðurna spila og bað þá að vera með ásamt Mikael Mána, en við höfum lengi unnið saman. Við eigum það öll fjögur sameiginlegt að tala sama djasstungumálið og það er auðvelt og nærandi að eiga músíkölsk samtöl á meðan við spilum. Við erum mjög sammála um hvert tónlistin vill fara og hvernig hún vill vera leikin og ég hefði ekki viljað taka upp þessa plötu með neinum öðrum en akkúr- at þessum strákum,“ segir Marína. n Nýr djass í anda gömlu meistaranna Söngkonan Mar- ína Ósk sýnir á sér nýja hlið sem lagasmiður á plötunni One Evening in July. MYND/AÐSEND 32 Menning 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.