Fréttablaðið - 01.09.2022, Síða 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tíu ár eru síðan Dimma gaf
Myrkraverk út en platan var
sú fyrsta þar sem allir textar
þungarokkshljómsveitar
innar voru á íslensku. Gítar
leikarinn Ingó Geirdal segir
hið ástkæra, ylhýra hafa gefið
sveitinni alvöru byr í seglin og
því stendur á næstunni til að
spila plötuna alla á tónleikum
víðs vegar um landið.
toti@frettabladid.is
„Í haust eru tíu ár liðin frá því að
platan okkar Myrkraverk kom út
en hún markaði tímamót á ferli
Dimmu þar sem allir textar voru á
okkar ástkæra móðurmáli,“ segir
gítarleikarinn Ingó Geirdal og bætir
við að platan hafi fengið svo góðar
viðtökur að með sanni megi segja að
með henni hafi hljómsveitin fyrst
tekið flugið fyrir alvöru.
„Þetta líður ansi f ljótt og manni
f innst nú ekki langt síðan við
gerðum þessa plötu en miðað við
viðbrögðin þegar við settum lagið
Þungur kross í spilun sáum við alveg
strax að það væri ekkert aftur snúið.
Við værum ekkert að fara að syngja
á ensku aftur.“
Ingó segir Dimmu því hafa ærna
ástæðu til þess að fagna tíu ára
afmæli plötunnar og að það verði
gert með stæl með því að spila plöt
una alla á tónleikum víða um land
á næstunni.
Persónulegri tengingar
„Við erum að fara að flytja plötuna
alveg í heild sinni en komum til með
að setja vinsælustu lögin af hinum
plötunum inn á milli. Við erum
náttúrlega búnir að gefa út nokkrar
plötur síðan Myrkarverk kom út og
ég held að við komumst ekkert upp
með neitt annað.“
Ingó segir íslensku textana hafa
náð að rjúfa einhvern ósýnilegan
múr með því að hitta fjölmarga í
hjartastað. „Já, algjörlega. Við fórum
líka allt í einu að upplifa það að fólk
var farið að húðflúra textana á sig
og það sem manni finnst náttúr
lega mikill heiður, að bæði f lytja
lögin okkar og lesa upp textana við
merka, persónulega viðburði eins og
brúðkaup og jarðarfarir.
Þannig að það má segja að við það
að svissa yfir á íslenskuna hafi text
arnir einhvern veginn náð betur til
fólks og þeir urðu á einhvern hátt
einlægari og fólk fór að tengja miklu
betur.“
Ingó segir Dimmu þegar búna
að bóka þó nokkra tónleika og að
fleiri staðir eigi eftir að bætast við.
„Við byrjum í Keflavík núna í kvöld
á nýjum stað sem heitir Lux Club og
þar eru tónleikarnir í rauninni hluti
af Ljósanótt.
Svo verðum við í Bæjarbíói í Hafn
arfirði í næstu viku og svo Edinborg
arhúsinu á Ísafirði og fleiri stöðum.
Við höfum boðið góðum vinum
okkar í hljómsveitinni Nykur að
vera með okkur í Bæjarbíói þann
ig að þar verða þaulreyndar rokk
kempur með okkur.“
Tíu árum betri
Ingó segir þá Dimmufélaga óneitan
lega tíu árum eldri en þeir voru
þegar Myrkraverk sló í gegn en þeir
slái þó hvergi af og rokkúthaldið sé
engu minna. „Það sem meira er, er
að bandið er bara orðið miklu betra
en það var fyrir tíu árum síðan.
Maður skyldi nú ætla að við værum
búnir að læra eitthvað af þessu. Ég
hef enga tölu á hversu marga tón
leika síðan en þeir hlaupa á hund
ruðum,“ segir Ingó og horfir í norð
urátt þar sem öllu verður til tjaldað.
„Akureyri er eiginlega okkar
annað höfuðvígi og við erum búnir
að fá svo mikið af áskorunum að
norðan þannig að við erum búnir
að bóka Íþróttahöllina á Akureyri
og ætlum að bjóða upp á „show“
sem verður sambærilegt við útgáfu
tónleikana okkar tvenna sem við
héldum í Eldborgarsal Hörpu ekki
alls fyrir löngu.
Við höfum alltaf verið á Græna
hattinum þar sem við elskum að
spila enda mjög kósí staður og gott
að vera þar en nú verðum við með
skjá og sviðsmynd og allan pakk
ann og það verður ekkert til sparað
í Íþróttahöllinni. Þetta verða bara
okkar stærstu og metnaðarfyllstu
tónleikar á Akureyri síðan við
spiluðum með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands 2015.“ n
Dimma í íslensku flóðljósi
Myrkraverk Dimmu markaði þátta-
skil á ferli hljómsveitarinnar og
hafði varanleg áhrif á tónlistina sem
hefur síðan þá öll verið á íslensku.
Myrkraverkamennirnir Stefán, Birgir, Silli og Ingó áður en Biggi hætti og Egill Örn Rafnsson tók við trommunum.
MYND/AÐSEND
Staðfestir tónleikar
Dimmu
n 1. september Lux Keflavík –
Myrkraverk á Ljósanótt
n 9. september Bæjarbíó – Sér-
stakir gestir: Nykur
n 17. september Rokk í Reykja-
vík - Kaplakrika
n 24. september Edinborgar-
húsið, Ísafirði
n 29. október Stórtónleikar í
Íþróttahöllinni á Akureyri
kl 14-17:00
Kaka að eigin vali
og kaffi/te/kakó
1.290 kr
Happy Hour
Bjór á krana, vínglas
hússins eða freyðivínsglas
990 kr
alla virka daga
14-17:00
laugardaga
12-17:00
Kaffitilboð
Val á milli tveggja rétta í hádeginu
2.290 kr
Hádegistilboð
kl 11:30-15:00
Alla virka daga
toti@frettabladid.is
„Það var fullt út úr dyrum, rauður
dregill á gólfum, amerískir kaggar
á planinu og taktfastir slagarar
ómuðu í glymskrattanum,“ segir
Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri
Sambíóanna, um Greasesýninguna
til minningar um Olivu Newton
John í síðustu viku.
„Stemningin í húsinu var frábær,“
segir Alfreð en sameiningarmáttur
Olivu NewtonJohn sveif yfir þétt
setnum salnum þar sem ungir sem
aldnir skemmtu sér saman. Hann
segir þó færri hafa komist að en
vildu en ekki þurfi að örvænta því
það verði önnur sýning annað kvöld
klukkan 19.30 í Sambíóunum Álfa
bakka. „Norðanmenn vildu ekki
vera eftirbátar okkar hérna fyrir
sunnan og vegna fjölda áskorana
var ákveðið að bjóða upp á eina
sýningu á Akureyri sama dag.“
Sem fyrr hvetja þau í Sambíóun
um öll sem vilja taka þátt í gleðinni
til þess að tryggja sér miða á sam
bio. is og taka síðan þátt í stemn
ingunni með þeim og mæta í fjörið
uppáklædd í anda Grease. n
Grease-æðið heldur áfram
Salurinn í Álfabakka var fullsetinn á
Grease-sýningunni í síðustu viku og
allir vel með á nótunum.
36 Lífið 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ