Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 1

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 1
Fréttabréf Stómasamtakarma 1. Ibl. 22. árg. Mars 2002 Blaö 90 Góugleði Stóinasamtakanna Midvikudaginii 13. mars halda Stómasamtökin góugleði í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 4. hæð. Baldvin Halidórsson leikari kemur í heimsókn, væntanlega nieð eitthvert skemmtiefni í pokahorninu. Það verður happdrætti og ef til vill einhver óvænt uppákoma. Léttar veitingar verða á boðstólum. Munið að mæta með góða skapið því við ætlum að eiga notalega kvöldstund. Húsið opnar kl. 19,30 en skemmtunin hefst formlega kl. 20. Félagar eru hvattir til að íjölmenna og taka með sér gesti. Vel heppnaður fundur Stóinaþegar og heilbrigðisþjónustan Föstudaginn 8. febrúar var haldinn fræðslufundur á vegurn Coloplast í samvinnu við Stómasamtök Islands á Grand Hótel sem bar yfirskriftina Slánmþegar og heilbrigðisþjónustan. Tilgangur þessa fundar var að eíla tengsl heilbrigðisstarfsmanna og stómaþega með því rn.a. að auka þekkingu hins almenna hjúkninafræðings á sjukrahúsum. heilsugæslustöðum og heimahjúkrun á stóma og vandamálum því lcngdu. í undirbúningsnefnd áttu sæli Geirþrúður Pálsdótlir hjúkrunarfræðingur fyrir liönd Coloplast, Oddfríður R. Jónsdóttir stóinahjúkrunarfæðingur á Landspítalanum við Hringbraut og Sigurður Jón Ólafsson formaður Stómasamtakanna.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.