Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 2
Líf eftir stóma!
Fundurinn liófst nicð ávarpi Sigurður Jóns cn að því loknu liclt Ólafur R.
Dýrmundsson crindi um væntingar stóinaþcga til hcilbrigðiskcrfisins. Ólafur hóf
tölu sína með því að rekja lauslega upphaf og þróun Stómasamtakanna en hann var
einn þeirra er stóðu að undirbúningi samtakanna og fyrsti formaður þcirra. Hann
hcfur vcrið í heimsóknarþjónustu Stómasainlakanna frá upphafi og hcfur því
töluverða reynslu af starfi samtakanna og hciinsóknum lil stómaþega. Ólafur sagði
í sínu crindi að það skipti töluvcrðu ináli að sá scm á í vændnm að fara i
stómaaðgcrð gcti liaft samband við stómaþega fyrir aðgcrð. Hann sagði að þó að
tengsl við sjúkrahúsin scu ágæt frcttist þó af einum og einum sem ekki vissi af
okkur.
Þcir scm fá heimsókn spyrja einkum um atriði cins og vinnu, kynlíf,
mataræði og fcrðalög; þætti sem skipta vcmlegu máli í lífi hvcrs og eins. Fólk
virðist hafa ineiri áhyggjur af pokanum heldur cn sjálfri aðgerðinni sagði Ólafur.
Mikilvægt er að makar séu viðstaddir þessi samtöl. Þcir sem sinnt hafa
heimsóknarþjónuslunni hafa þjálfun í að svara alls kyns spurningum. Hann lagði
áhcrslu á að þcir scm væru mcð stóina tímabundið þyrftu cinnig á okkur að halda.
þó reynslan væri sú að flestir þeirra afþökkuðu slíka þjónustu. Að síðustu lagði
Ólafur áherslu á að það sc líf eftir stóina og hægt er að lifa ágætislífi með poka á
kviðnum.
Uinönnun stómaþega
Oddfríður R. Jónsdóltir, stóinahjúkrunarfræðingur á Landspítalnum við
Hringbraut, Qallaði um umönnun stómaþcga. Skipti hún erindi sínu í
meginatriðum í tvennt: hjúkrun stómaþega fyrir og eftir aðgcrð. Þeir sem eru að
fara í stóinaaðgerð koma fyrst til viðtals á innskriftariniðstöð spítalans þar sein
skurðlæknir ræðir við viðkomandi um hvers kyns aðgerð hann á í vændum.
Stómahúkrunarfræðingur fræðir síðan sjúkling og aðstandanda eða skjólstæðing
um allt er lítur að umönnun stómíunnar o.þ.h. Sjúklingur fær myndband með sér
heim til frekari fróðlciks. Bcnt cr cinnig á hcimsóknaþjónnstu Stóinasamtakanna.
Sjúklingi em sýnd ýmis hjálpargögn sem hann þarf á að halda að aðgerð lokinni.
Þegar aðgerð liefur farið fram fær sjúklingurinn glæran poka en það er
gert til að fylgjast mcð stómíunni. Stóinaþegi er ekki útskrifaður fyrr en hann
hcfur lært að skipta um plötu og poka og fengið tilsögn í umhirðu á stómíunni.
Honum cr bcnt á hciinsóknarþjónustu Stómasamtakanna og starfsemi þeirra k} nnt.
Rætt cr við stómaþcga um mataræði o.þ.li. og lionuin in.a. bcnt á hvernig draga
megi úr lykt mcö því að neyta vissra fæðutegunda og draga úr loftmyndun ineð því
m.a. að forðast fæðutcgundir sein geta myndað loft.
Svava Engilbcrtsdótlir, næringafræðingur á Landspítalanuin, flutti afar
fróðlegt erindi um næringu stómaþega. Ekki verður farið nánari út í
umijöllunarcfni hennar hér því væntanlega keinur hún á fræðslufund til okkar i
apríl.