Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 3

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 3
Meltingarfærarannsóknir og húðvandamál Inga Reynisdóltir líffræðingur kynnti meltingarfærarannsóknir á vegum íslenskrar erfðagreiningar cn hún er yfirmaður efnaskiptadeildar hjá ÍE. í máli hennar koin fram að markmið rannsóknarinnar væri að finna erfðavísa sem eiga þátt í tilurð þarmabólgu, colitis ulccrosa og Crohn's sjúkdómi. Tæplega 1400 cinstaklingar greindust með þarmabólgu á árunum 1950-2000. Tíðni sjúkdóinsins á íslandi cr svipuð og á Norðurlöndunuin og hefur sains konar aukning áll scr staö hér. Um 800 einstaklingar mcð þarmabólgu og ættingjar þcirra hafa tekið þátt í rannsókninni, alls 2600 manns. Hlutfall stómaþega er lágt. Rannsóknin hófst árið 1997 að frumkvæði Krislleifs Kristjánssonar læknis hjá ÍE í samvinnu við Sigurð Björnsson, Bjarna Þjóðlcifsson og Fclag íslenskra mcltingarsérfræðinga. Nýlegar niðurstöður gefa vísbcndingu um lengsl við ákveðin litningasvæði og nú er unnið við að staðfesta þcssar niðurslöður. Páll Möller yfirlæknir á Landspítala við Hringbraul íjallaði um vandamál sem upp geta komið cftir stómaaðgerðir. I máli hans koin m.a. fram að staðsetning stónúunnar cr afar mikilvæg til að koma í vcg fyrir alls kyns fylgikvilla. Geirþrúður Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur sagði frá því hvernig fyrirtækið Coloplast varð til þegar danskur hjúkrunarfræðingur fékk þá hugmynd að búa til stómapoka úr plasti scm mætti líma bcint á lniðina. Þctta var 1956 og algjör bylling fyrir stómaþega sem fram að þeim tíma höfðu mátt notast við afar fnnnstæðan búnað sem oft liélt hvorki lykt né hægðum. Hún ræddi síðan um þróunina til þessa dags og á sýningarvegg inátti sjá sýnishorn af gömlum og nýjum pokurn. Að Iokum Qallaði Baldur Tuini Baldursson, sérfræðingur í húðsjúkdómmn, um húðvandamál, m.a. þau sein upp koma kringum stómíu. Lokaorð Hjúkninarfræðingar settu að vonuin mjög svip sinn á þennan fund en í samræmi við tilgang fundarins var lögð töluverð áhersla á að fá hjúkrunarfræðinga jafnt af höfðuborgarsvæðinu scm og af landsbyggðinni til að koma á þennan fund. Stjórn Stóinasamtakanna og þcim sem eru í heimsóknarþjónustunni var sérstaklega boðið að sitja þenna fund. Mjög góður rómur var gerður að þessum fundi og hefur jafnvcl koinið til tals að Coloplast standa fyrir slíkuin fundum með reglulegu millibili.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.