Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.03.2002, Blaðsíða 4
Söfnun í gamii
r
Uppbygging Asgarðs
Eins og lcsendur fréttabréfsins rekur sjcálfsagt minni til brann vinnustofa
fatlaðra í Ásgarði í Lækjarbotnum til kaldra kola í desember á s.l. ári. Átján
fatlaðir einstaklingar misstu þarna vinnu sína. um stundarsakir a.m.k. Tveir þeirra
eru í Stómasamtökunum og hafa báðir verið duglegir að mæta á funduin hjá okkur.
Annar þeirra er Óskar Alberlsson. Óskar hefur vcriö stómaþegi frá barnsaldri cn
hann hefur síður cn svo Iátið það hamla sér í að gera það sem hann hefur langað
til. Óskar liélt málverkasýningu í Hinu húsinu í júní í sumar Ieið. Það er skemmst
frá því að segja að sýningin gckk það vel að öll málverkin seldust. Samtímis gaf
hún út lítið ljóðakverk, sem hann nefndi cinfaldlega Ljóóabók Óskars
Albertssonar.
Við slóum á þráðinn til Óskars til að Ieita frétta af lians högum núna.
Hann sagði að þeir sem voru að vinna í Ásgarði hefðu fengið inni með sína
aðstöðu á Kógavogshælinu. Hann sagði að byrjað yrði á enduruppbyggingu
Ásgarðs með vori.
Kennarar við Waldorfsskólann, næstu nágrannar Ásgarðs, Lionsmenn og
aðrir velunnarar Ásgarðs hrintu af stað fjársöfnun til stuðnings Ásgarði svo hægt
væri að hefja endurbyggingu vinnustofunnar. Reikningur söfnunarinnar er I
íslandsbanda við Gullinbrú og er reikningsnúmerið 528-14-607000. Við hvetjum
lesendur Fréttabréfsins lil að leggja sitt af mörkum til endurreisnar þessari ágælu
starfscmi.
Ljóð eftir Óskar Albertsson:
í hverjum manni er maður eins og maðurinn
sé farinn í ferðalag innan hússins.
í gegnum völundarhús sálarinnar
þú staðnæmist við helstu áningarstaðina
eins og ferðamaður í ókunnu landi
samt hefúr verið hérna áður.
Rilstjóri: Sigurður Jón Ólafsson,
Orcttisgölu 28B. 101 Reykiavik. simi 551 ó.Jóó
INTERNATIONAL
OSTOMY
ASS0CIATI0N
Fréttabréf Stómasamtakanna
Útgefandi: Stómasamtök íslands (ISILCO)
Pósthólf 5420, 125 Reykjavík.
Farsími: 847 0694. Sími: 540 1900. Fax: 540 1910.
Netfang: stoma@krabb.is
Vefur: www.krabb.is/stoma