Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.04.2002, Blaðsíða 1

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.04.2002, Blaðsíða 1
Fréttabréf Stómasamtakanna 2. tbl. 22. árg. Apríl 2002 Blað 91 Fundur um mataræði Miðvikudaginn 10. apríl heldur Svava Engilbertsdóttir, næringafræðingur á Landspítalanum, erindi um mataræði stómaþega á vegum Stómasamtaka íslands. Fundurinn verður að venju haldinn í húsnæði Krabbameinsfélags íslands að Skógarhlíð 8, 4. hæð. Erindi Svövu hefst kl. 20 en húsið er opið frá kl. 19,30. Kaffiveitingar og spjall að erindi loknu. Félagar eru hvattir til að ljölmenna og taka rneð sér gesti. Ur grein eftir Almar Grimsson um Krabbamein í ristli og endaþarmi Almar Grímsson lyfjafræðingur, senr sæti á í heiðursráði Krabbaineinsfélags íslands, ritaði athyglisverða grein í Morgunblaðið 18. janúar s.l. unr rannsóknir á krabbameini í ristli og endaþarmi. Við birtum hér greinina lítið stytta. Tölulegar staðreyndir “Á hverju ári greinast 112 íslendingar að meðaltali með krabbamein í ristli og endaþarmi og árlega deyja unr 40 af völduin þeirra. Þetta er þriðja algengasta krabbamein hér á landi. Þessar staðreyndir eru sérstaklega íhugunan'erðar þar sem talið cr að í þremur af hverjum íjórum tilvikum mcgi ná góðum bata með markvissri meðferð ef sjúkdónrurinn er greindur á forstigum.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.