Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.06.2002, Blaðsíða 1
Frettabréf Stómasamtakanna
4. tbl. 22. árg.
Júní 2002
Blað 93
Frá aðalfundi
Öflugt starf - ný stjórn
Aðalfundur Stómasamtaka Islands var haldinn 15. maí. Sigurður Jón
Ólafsson, formaður félagsins, flutti skýrslu stjórnar. Meginstarf félagsins á síðasta
ári var undirbúningur og skipulagning Norðurlandafúndar stómasamtakanna sein
haldinn var á Hvolsvelli í ágúst. Frá honum hefur verið greint á þessum blöðurn.
Auk aðalfundur og þorrablóts voru haldnir nokkrir félagsfundir á árinu.
Stómasamtökin tóku þátt í merkjasölu Krabbamcinsfélagsins sem gekk ckki nógu
vel að þessu sinni.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundinum. Þröstur Helgason og Ingibjörg
Jónsdóttir gáfu ekki kost á sér lengur og voru þeim þökkuð vel unnin störf, einkum
Þresti sein búinn er að sitja lengi í stjórn. í þeirra stað koma Kristján Freyr
Hclgason og Inger Rós Jónsdóttir. Mcðalaldur stjórnarmanna cr nú lægri en vcrið
hefur um langt skeið. Það veit vonandi á gott því við þurfum m.a. að ná betur til
unga fólksins. A baksíðu blaðsins er stjórn samtakanna kynnt.
Skoðunarmenn reikninga voru kjörnin þeir Ólafur R. Dýrmundsson og
Þröstur Helgason.
Þær breytingar voru gerðar á lögunum að nú mega stjórnarmenn sitja
funm kjörtímabil samfellt, þ.e.a.s. tíu ár í senn, í stað sex áður - að formanni
undanteknum. Þá var setning er varðaði foreldrahópinn brott numin úr lögum því
sá hópur hefur ekki verið starfandi undanfarin ár. Ef til vill er ekki eins mikil þörf
á honum og var fyrir nokkrum áruin.