Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.06.2002, Blaðsíða 2

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.06.2002, Blaðsíða 2
Hvað er framundan? Alþjóðastómadagur, merkjasala o.fl. Formaður Stómasamtakanna, Sigurður Jón, sækir árlegl þing norrænu stómasamtakanna sem að þessu sinni verður haldið á Borgundarhólmi dagana 16. - 20. ágúst. Vegna ijárhagsstöðu samtakanna ákvað stjórnin að senda aðeins einn flulltrúa í ár. Sigurður Jón licfúr þar framsögu um tcngsl Stómasamtakanna við Krabbameinsfélag Islands. Hin árlega merkjasala Krabbameinsfélagsins verður 5.-8. september. Stómasamtökin hafa verð með sölubás í Kringlunni udnanfarin ár en í fyrra höfðuin við hann aðeins einn dag af þremur sem kom niður á sölunni sem var ekki nándar nærri eins góð og árið á undan. Ekkert er því ráðið um hvar við verðum í haust. Aðaláherslan í ár vcrður á nýja penna Krabbaincinsfélagsins. Þcir sem óska eftir að leggja okkur lið í smáni sem stóru eru bcðnir að hafa samband við okkur í síma 847-0694. Stómasamtökin fá í sinn hlut 75% af sölunni og margt smátt gerir eitt stórt. Alþjóðastómadagurinn vcrður laugardaginn 5. október i ár. Þessi dagur er haldinn þriðja hvert ár og ber að þessu sinni yfírskriftina Yes we can. Við stefnum að því að hafa opið hús í Skógarhlíðinni þennan dag eins og við höfum jafnan gert. Bæklingur sem átti að koma í stað gamla bæklingsins okkar, Leiðbeiningar fyrir stómaþega, hefur verið í bígerð nokkuð lengi. Að vísu eru allar slíkar upplýsingar sem fram eiga að koma í þessum bæklinga á heimasíðunni okkar. (Sjá grein hér fyrir ncðan). Ástæðan fyrir töfinni cr sú að við höfum vcrið að bíða eftir hvaða þýðingu sameining skurðdeilda Landspítalans hefur í för með sér fyrir þjónustu við stómaþega, t.d. hvað varðar störf stómahjúkrunarfræðinganna og skipulagningu endurkomudeildar. Það segir sig náttúrlega sjálft að það er auðveldara að brcvta upplýsingum á netinu heldur en þegar þær eru komnar á prentað form. Heimasíðan Gagnlegar upplýsingar .•■iX’írio b ' ■ .! Stómasamlökin hafa vcrið mcð eigin hcimasíðu scm er krækja frá heimasíðu Krabbameinsfélagsins eins og mörgum cr sjálfsagt kunnugt. Nú hefur verið bætt við ýmsum gagnlegum upplýsingum og munar þar mestu um grein sem heitir Upplýsingar fyrir stómaþega. Grein þessi er byggð á gamla bæklingum okkar sem hcitir Leiðbeiningar fyrir stómaþega sem margir kannast við að ltafa fengið í hcndur þegar þeir gengust undir stómaaðgerð.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.