Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.09.2002, Blaðsíða 1
Fréttabréf Stómasamtakanna
5. tbl. 22. árg.
Scplcmber 2002 Blað 94
Alþjóðastómadaguriiin 5. október
I tilefni alþjóðastómadagsins laugardaginn 5. október
verður opið hús hjá okkur í húsnæði Krabbameinsfélags
íslands að Skógarhlíð 8, 4. hæð kl. 14 - 16.
Við ætlum að nýta daginn til að kynna samtökin okkar,
spjalla við nýja og gamla félaga og alla þá sem áhuga
hafa á að kynnast félaginu. Við verðum með heitt á
könnunni og nóg af meðlæti.
Alþjóðastómadagurinn er haldinn 3ja hvert ár. Að
þessu sinni er yfírskrift dagsins Yes we can sem á
íslensku mætti þýða: Okknr eni allir vegirfœrir.
Verið öll innilega velkomin.
Stjórnin
Námskeið hiá Krabbameinsfélaginu
Að lifa með krabbamein
Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Landspítalinn - Háskólasjúkrahús
standa fyrir námskciði sem ber heitið Aó lifa með krabbamein. Námskeiðið er
ætlað fólki mcð krabbaincin og aðstandendum þess. Markmiðið er að þátttakendur
efli þekkingu sína og skilning og verði betur færir til að takast á við aðstæðurnar.
Námskciðið varir í átta vikur og sami hópurinn hittist einu sinni í viku í
tvo líma í senn. í hvcrjum liópi cr um 20 manns. Námskciðið fcr fram á kvöldin
kl. 19,30 - 21,30 í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og er þátttakcnduin
að kostnaðarlausu.
Umfjöllunarefni er in.a myndun, gcining og mcðferð krabbameina,
aukaverkanir lyíja- og geislamcðferðar, næring. áföll og úrlausnir, fclagslcg
rcttindi. slökun og óhcfðbundin mcðfcrð
(framluild á öftustu siðu)