Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 2

Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 2
2 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 9. október wstuttar FRÉTTIR FRÉTTIR ■ .>• Hólmaborgin aflahæst Hólmaborg SU frá Eskifirði varð aflahæsta skipið á ný- liðnu fiskveiðiári en afli skips- ins varð rúmlega 80.000 tonn. Börkur NK var ekki langt á eftir Hólmaborginni með tæp- lega 79.000 tonn, Ingunn AK veiddi 69.000 tonn og Jón Kjartansson SU er fjórða afla- hæsta skipið með tæplega 68.000 tonna afla. Þrjú þessara skipa, Hólmaborg, Börkur og Jón Kjartansson, eru skráð í Fjarðabyggð. Öll þessi skip eru kolmunnaveiðiskip. www.eskja.is sagði frá. Borgarfulltrúar hafna tillögu vegna ástands við Kára- hnjúka Ólafur F. Magnússon, borg- arfulltrúi F-lista, gagnrýndi borgarráðsfulltrúar Reykjavík- urlistans og Sjálfstæðisflokks- ins fyrir að samþykkja ekki til- lögu sem hann lagði fram í borgarráði Reykjavíkur í dag vegna vinnubragða sem við- höfð hefðu verið vegna virkj- anaframkvæmda við Kára- hnjúka. í tillögu Ólafs var kveðið á um að borgarráð lýsti yfir áhyggjum af „margendur- teknum brotum á kjarasamn- ingum og eðlilegum leikregl- um í samskiptum verktaka við verkafólk vegna virkjanafram- kvæmda við Kárahnjúka og krefðist þess að úr yrði bætt hið fyrsta. Jafnframt að borgarráö fæli borgarstjóra að óska eftir upp- lýsingum frá forstjóra Lands- virkjunar, sem Reykjavík ætti 45% hlut í, um stöðu fram- kvæmda við Kárahnjúka og upplýsingum um starfsmanna- mál á virkjunarsvæðinu.” www.mbl.is sagði frá. Bæjarstjórn Fjarða- byggðar leggst gegn línuívilnun Á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þann 2.október sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt gegn gildistöku laga um línuívilnunina svokölluðu: „Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mótmælir hverskonar sértæk- um aðgerðum stjórnvalda við úthlutun aflahlutdeildar, hvort sem fiskur er veiddur á línu eða með öðrum veiðarfærum. Heildarhlutdeild smábáta sem ekki eru á aflamarki í afla hef- ur aukist jafnt og þétt og sú aukning eðli máls samkvæmt gengið á rétt annarra. Sú línuívilnun sem nú er í umræð- unni mundi enn auka forrétt- indi smábáta á kostnað annarra útgerðaflokka. Afleiðingar línuívilnunar gagnvart Fjarðabyggð yrðu þær að aflaheimildir flyttust úr sveitarfélaginu og atvinnu- og tekjumöguleikar sjómanna, fiskverkafólks og fyrirtækja drægjust saman. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar því á stjórnvöld að hverfa frá öllum hugmyndum um línuívilnun.” 3000 fm. verslunarmiðstöð á Reyðarfirði, Molinn Viljayfirlýsing undirrituð Síðastliðinn fimmtudag var undirrituð viljayfirlýsing á Foss- hóteli á Reyðarfirði milli sjö aðila sem ákveðið hafa með undirritun- inni, eins og segir í fréttatilkynn- „nútímalega matvöruverslun,” eins og segir í fréttatilkynning- unni. Auk Kaupfélagsins munu Hönnun hf, Landsbankinn, ÁTVR og LyQa verða í „Molanum". Auk Frá undirskriftinni á Fosshóteli siðastliðinn fimmtudag. ingu „að vinna að frekari þróun við hönnun og byggingu 3000 fm, verslunarmiðstöðvar í miðbæ Reyðarfjarðar“. Það voru Hönnun hf., íslenskir Aðalverktakar, sveit- arfélagið Fjarðabyggð, Landsafl hf., Landsbanki Islands hf., Kaup- félag Héraðsbúa svf. og eignar- haldsfélagið Molinn ehf. sem stóðu saman að undirskriftinni. Kvikmyndahús kemur til greina Að sögn Sveins Jónssonar, eign- arhaldsfélagi Molans, hefur þegar verið úthlutað nær helmings alls rýmis í húsnæðinu ef til kemur. Stærstan hluta þess rýmis mun Kaupfélag Héraðsbúa (Spar- kaup/Samkaup) ætla sér undir þess sem fataverslanir, kaffihús, lögfræðiskrifstofa og fleira munu væntanlega verða þar. Einnig kem- ur til greina að sögn Sveins að kvikmyndahús verði í „Molan- um”. 400 - 500 milljónir fullklárt Áætlaður kostnaður við bygg- ingu sem þessa er að sögn Sveins milli fjögur og fimmhundruð milljónir, en húsið mun að öllum líkindum verða klædd stálgrindar- bygging. Áætlað er að fyrsta skóflustungan að húsinu verði tek- in í kringum áramót og að húsið geti verið fullklárt í september - október á næsta ári. helgi@agl.is Austur- byggð skal það heita - Steinþór Pétursson endurráðinn sveitastjóri Á fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar Austurbyggðar, áður Búða- og Stöðvarhreppur, var samþykkt samhljóða tillaga um nafn á nýsameinað sveitar- félag sem áður hafði orðið hlut- skarpast í nafnakosningu sam- hliða kosningum til sveitar- stjómar á dögunum. Á fundin- um var einnig lögð fram tillaga meirihluta þar sem oddvita er falið að ganga til samninga við Steinþór Pétursson um starf sveitarstjóra, en hann gengdi áður sömu stöðu í Búðahreppi fyrir sameiningu hreppana. Til- lagan var samþykkt með 5 at- kvæðum meirihluta Framsókn- ar, Samfylking sat hjá. Einnig voru kjörnir oddviti og varaodd- viti á fundinum, Guðmundur Þorgrímsson var kjörinn oddviti og Jónína Óskarsdóttir varaodd- viti. helgi@agl.is Aðalfundur SAMGÖNG Breyttar for- sendur að mati fundarmanna Samtök áhugafólks um jarð- göng á Mið-Austurlandi héldu um liðna helgi aðalfund á Hótel Hér- aði á Egilsstöðum. En markmið samtakanna er „að gera Mið - Austurland að einu atvinnu og þjónustusvæði, rjúfa vetrarein- angrun og stytta vegalengdir milli byggðalaga á Mið - Austurlandi með jarðgöngum”. Á fundinum var auk venjulegra aðalfundarstarfa rætt um nauðsyn ganga á Mið-Austurlandi og þá sérstaklega þeirra sem félagið hef- ur lagt áherslu á, það er ganga frá Eskifirði - Seyðisfjarðar, með við- komu í botni Norðfjarðar og Mjóafirði, auk ganga frá Mjóa- firði upp á Fagradal í tengslum við hin göngin. Göngin í arðsemismat Á fundinum urðu miklar um- ræður um framtíð verkefnisins og þar var meðal annars greint frá því að nú stæði til að vinna félagslega rannsókn í tengslum við arðsemis- mat ganganna, en Háskólinn á Ak- ureyri, Byggðastofnun og Vega- gerðin, vinna það nú af frum- kvæði sveitarfélaga á svæðinu, Seyðisljarðar, Fjarðabyggðar og Mjóafjarðar. Á fundinum kom fram sú skoðun fundarmanna að krafan um göngin í kjölfar stór- framkvæmda hér eystra og á- standsins í atvinnumálum á Seyð- isfirði væri enn sterkari. Stækkun atvinnusvæðis mikilvægur þáttur I umræðum á fundinum vörp- uðu menn fram því sjónarmiði sínu að nauðsynlegt væri að nálg- ast umræður um jarðgangagerð út frá fleiri þáttum en arðseminni einni saman, það er umferð um þau. Einnig væri mikilvægt að skoða hversu mikið það kæmi til með að kosta þegar bæir legðust að hluta til af eða þar fækkaði mjög, en þar væru ijárfestingar í opinberum stofnunum sem ríkið hefði lagt út í. Einnig væri mikil- vægt að menn opnuðu betur fyrir stækkun á atvinnusvæði á Austur- landi í kjölfar álversbyggingar Alcoa við Reyðarfjörð, bættar samgöngur eru þar skilyrði að mati fundarmanna. „Hvað kostar aflagður Seyðisfjörður" „Hvað kostar aflagður Seyðis- fjörður,” sagði Hrafnkell A. Jóns- son, einn stjórnarmanna í félag- inu, á fundinum og bætti við: „Umræðan um arðsemiskröfu op- inberra framkvæmda er af ein- hverjum orsökum meiri ef í hlut á framkvæmd sem þessi á lands- byggðinni en í Reykjavík, þess vegna er nauðsynlegt að fleiri þættir séu teknir inn í arðsemis- matið en umferð bíla um göngin”. Sama stjórn kosin áfram Á fundinum var stjórn samtak- anna endurkjörin en i henni sitja: Guðrún Katrín Árnadóttir, Hrafn- kell A. Jónsson, Kristinn Jóhann- esson, Sigfús Vilhjálmsson, Jónas Hallgrímsson og Sveinn Sigur- bjarnarson. í félaginu eru nú um 600 manns af svæðinu öllu. helgi@agl.is Höfuðlús - Er og verður staðreynd Lús hefur verið að stinga sér niður nú á haustdögum eins og reyndar oft áður. Að sögn Hilmars Sigurjónsson- ar skólastjóra á Eskifirði hefur lúsin verið að stinga sér niður í skólanum hjá honum en ekki vald- ið neinni röskun á skólastarfinu. „Þetta eru ekki mörg tilfelli innan við fimm það ég veit, en foreldrar kemba börnum sínum í tíu daga” segir Hilmar. Lifum með henni Halla Eiríksdóttir hjúkrunar- stjóri HSA á Egilsstöðum segir lúsina vera árvisst fyrirbæri sem fólk verði að fara að læra að lifa með. Lúsin hefur verið að stinga sér niður í skólum á austurlandi en hvergi í miklum mæli. „Lús er ekki bráðsmitandi hún er í því hári sem hún er komin í og vill ekki fara þaðan.Lúsin veldur samfélagslegu vandamáli þegar hún er að stinga sér niður á haustin vegna þess að hún veldur fordóm- um á því fólki sem fær á sig lús. Fólk kann ekki lengur að umgang- ast lús, það koma upp “panikk” aðstæður sem er alger óþarfi. Það er kominn tími til að fólk læri að umgangast lús og lifa með henni” segir Halla. sigad@agl.is

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.