Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 9. október
AUSTUR • GLUGGINN
3
1800 fm. verslunar-
miðstöð á Egilsstöðum
Verslunarmiðstöðin sem er áætl-
uð 1800 fermetrar að stærð verður
reist á 7900 fermetra lóð við Mið-
vang 13 milli Hótels Héraðs og
Blómabæjar.
Fasteignafélagið Þyrping mun
eiga verslunarmiðstöðina en ís-
lenskir aðalverktakar munu byggja
hana.
Gunnlaugur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Is-
lenskra aðalverktaka, segir „að
framkvæmdir á lóðinni hefjist í
næstu viku og stefnt sé að opnun
verslunarmiðstöðvarinnar í maí á
næsta ári”.
Gert er ráð fyrir að Bónus, BT
tölvur og Oíficel verði þarna til
húsa, ásamt fleiri verslunum, en
nýlega var um Qórðungur af rými
hússins auglýstur til leigu. Bónus
og BT tölvur eru í dag til húsa í
verslunar- og þjónustumiðstöðinni
Níunni á Egilsstöðum.
Fyrirhugað er að Bónusverslun-
in í nýju verslunarmiðstöðinni
verði á 900 fermetra gólffleti en
það er veruleg stækkun frá því sem
nú er, en núverandi verslun
Bónuss í Níunni er um 300 fer-
metrar.
sigad@agl.is
"Norðfirðingarnir"
veiðast í laxveiðiám
á Austurlandi
Eldislaxinn sem slapp úr slátur-
kví á Norðfirði í haust er nú farinn
að veiðast í mjög smáum stíl í lax-
veiðiám á Austurlandi.
Alls hafa átta eldislaxar veiðst, 1
í Selá, 4 í Hofsá í Vopnafirði og 3
í Breiðdalsá. Þeir hafa verið
greindir hjá Veiðimálastofnun sem
flökkufiskar úr sjókvíum. Einn
þessara laxa var örmerktur, hann
veiddist í ádrætti í Breiðdalsá og
reyndist hann vera úr sjókvínni
sem laskaðist á Norðfirði, þar sem
nærri 3000 eldislaxar sluppu.
Samkvæmt áliti manna á Veiði-
málastofnun eru þessir flökkulaxar
líklega allir “Norðfirðingar”.
Fram hefur komið í fréttum að sér-
fræðingar á Veiðimálastofnun telja
ekki líkur á að þessir tæplega 3000
laxar sem sluppu á Norðfirði hafi
nokkur áhrif á villta laxastofna í
austfiskum ám.
Að sögn Braga Vagnssonar for-
manns veiðifélags Hofsár í Vopna-
firði „eru þessir flökkulaxar af-
skaplega óvelkomnir í árnar okkar
og hægt að segja að þetta sé versta
mengun sem við getum fengið í
árnar”.
Bragi telur talsvert mikla hættu
á mengun í ánum en næsta sumar
verða bæði hængar og hrygnur úr
eldinu á sveimi kringum landið.
„Hver á er með sinn sérstaka
stofn sem búinn er að þróast með
ánum. Þegar svona stofn kemur
inn í árnar með annan bakgrunn og
annað erfðamengi og fer að hrygna
þar boðar það ekki gott, þeir hafa
til dæmis ekki ratvísina sem
heimaaldi laxinn hefur.
Það hafa þegar veiðst fjórir lax-
ar úr eldi í Hofsá og það eru ör-
ugglega eins margir eða fleiri eftir
í ánni þá er bara spurningin hvað
þeir gera af sér” segir Bragi.
Bragi segist vera alfarið á móti
Hönnun hf, starfsstöð Reyðarfirði
auglýsir eftir starfsmanni til
almennra skrifstofustarfa.
Um er að ræða tímabundið starf
frá október 2003 til loka júlí 2004.
Starfshlutfall er 80%.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Hönnunar,
Austurvegi 20, Reyðarfirði eða
með tölvupósti á netfangið valqeir@honnun.is
fyrir 16. október næstkomandi.
Upplýsingar veitir Valgeir í síma 89-45211.
EHHÖNNUN
sjókvíaeldi með norskan lax.
Hann segir það byggja á skamm-
tímahagsmunum ekki eiga framtíð
fyrir sér nema þetta hlýindaskeið
sem nú gengur yfir verði varan-
legt.
„Eftirlit með þessu eldi er mjög
slakt, þegar svo er kemur kæru-
leysi í kjölfarið hjá þeim er annast
eldið og þá verða slysin fleiri en
orðið er. Reynslan segir að það
verði alltaf slys tengd þessu sjó-
kvíaeldi," sagði Bragi í samtali við
Austurgluggann.
sigad@agl.is
Austfjarðaleið
477 1713
BADBOYSII
Áformað að
byggja þrjár
stórar blokkir
á Egilsstöðum
Fasteignafélag Austurlands
áformar að byggja þrjár stórar
blokkir við Kaupvang 41-43 á Eg-
ilsstöðum. Umhverfisráð Austur-
Héraðs leggur til að auglýst verði
deiliskipulag á þessum lóðum þar
sem gert er ráð fyrir að Fasteigna-
félag Austurlands reisi þrjár sjö
hæða blokkir með kjallara og bíla-
stæðum. Lóðirnar eru undir klett-
unum sunnan mjólkurstöðvarinnar
á móti kirkjugarðinum.
Reiknað er með að 27 íbúðir
verði í hverri blokk svo þarna
munu verða alls 81 íbúð í þremur
blokkum.
Fram kemur í pistli bæjarstjóra
Austur-Héraðs á heimasíðu sveit-
arfélagsins að nú þegar sé byrjað á
eða áformað að byggja alls 420
íbúðir á Egilsstöðum og 21 á Hall-
ormsstað á næstu árum. Þessi fyr-
irhugaða íbúðabyggð mun rúma
alls 1100 íbúa sem dugar fyrir þá
fólksfjölgun sem reiknað er með
til ársins 2009 en þá er áætlað að
íbúar Austur-Héraðs verði um
3200 eins og segir í pistli
bæjarstjórans. sigad@agl.is
Þanriig líta fyrirhugaðar blokkir við Kaupvang á Egilsstöðum út á tölvugerðri mynd
en þær munu rúma alls 81 íbúð. Mynd Kristinn Ragnarsson teiknistofa
Skoðið nýja
www.
heimasíðu Sparisjóðsins
sparnor.is
- Kynntu þér málið - sparisjóður norðfjarðar
-fyrirþigogþína-