Austurglugginn - 09.10.2003, Page 5
Fimmtudagur 9. október
AUSTUR • GLUGGINN
5
Hugleiðingar
Karólínu með
kvæði eftir
Bubba
Austurglugganum barst ný-
lega þessi hugleiðing frá Kar-
ólínu Þorsteinsdóttur á Seyðis-
firði. Með hugleiðingunni lét
hún fylgja texta eftir Bubba,
nokkurn, Morthens, sem hann
hefur ekki enn gefið út. Hann er
hér birtur með leyfi höfundar og
útgefenda.
„Mottó kvæði Bubba”
Nú blæs hann að norðan
Nóttin er dimm og köld
skuggar skelfa börn
með sín svörtu, svörtu tjöld
já úti er myrkur og mugga
mamma þarf að hugga
lítinn labbkút
óttanum ber að stugga
hið illa reka út
bíum bíum bamba ró
pabbi er úti á sjó
pabbi er sækja gull
pabbi er að sækja
sægreifans gull
mamma hvíslar í húminu
mamma hvíslar í húminu
pabbi er úti á sjó
hjarta þitt er hjarta hans
þey, þey og ró
kvóta skrímslið skelfir hann
skaltu muna sannleikann
þegar þú verður stór
miljarðar sægreifans
suður í bankann fór
bíum bíum bambaró
fagur fiskur í sjó
sofðu litli ljúfurinn
mömmu ljúfi strákurinn.
Bubbi Morthens, 2003
Veturinn er farinn að sýna sig
hráslagalegur og kaldur. Þessurn
árstíma fylgja oft miklar náttúru-
hamfarir, flóðbylgjur,fellibyljir, og
jarðskjálftar, sem leggja heilu
byggðarlögin í rúst og svipta íbúa
öllum eigum sínum víða um heim.
Það þarf mikinn kjark til að takast
á við náttúruöflin, og hefjast handa
á ný. Sumir missa kjarkinn þegar
þeir horfa upp á eyðilegginguna en
fjöldinn heldur áfram með óskilj-
anlegri þrautseigju og byggir allt
upp á ný.
Karólína Þorsteinsdóttir
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir
1. Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reyðarfjarðar 1990- 2010
Samkvæmt 18. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í að:
1. Svæði fyrir opinberar stofnanir austan Heiðarvegar verði stækkað að Melgerði í austri og til suð-
urs að lóðum við Sunnugerði.
2. íbúðarsvæði norðan Sunnugerðis verði stækkað til norðurs að Melgerði og til vesturs á móts við
tengigötu að Austurvegi.
3. Svæði fyrir opinberar stofnanir við Sunnugerði er minnkað sem nemur stækkun íbúðarsvæðisins.
2. Tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi íbúðarsvæðis í Oddnýjarhæð í samræmi við ofan-
nefndar breytingar á aðalskipulagi. Samkvæmt 25 gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í að:
1. Til koma 4 nýjar lóðir fyrir Fjölbýlishús við Melgerði
2. Lóðir nr. 9,11 og 13 falla niður og verða leiksvæði.
3. Lóð nr. 15 við Austurveg verður nr. 10 við Sunnugerði
4. Mörkum lóðanna nr. 12, 14 og 16 hefur verið breytt
5. Lóð fyrir spennistöð verður við Melgerði
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar Egilsbraut 1 Neskaupstað, Strandgötu
49 Eskifirði og Búðareyri 7 Reyðarfirði, og á heimasíðu fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is frá og
með miðvikudeginum 15. október til miðvikudagsins 12. nóvember 2003.
Þá verður einnig opið hús í Félagslundi föstudaginn 24. október kl. 15.00 til 19.00 Þar sem tillög-
urnar verða kynntar þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera
athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að skila athugasemdum er til miðvikudagsins 26. nóvember 2003.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað til SkipulagsfuIItrúa Strandgötu 49 Eskifirði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur
henni.
í BYKO
á föstudag og laugardag
Helgi Sigurðsson málarameistari
aðstoðar við lita- og efnisval á
föstudag 10. okt. og laugardag 11. okt.
Vnr.85540040-737
BYKO innimálning,
gljástig 10, 4 lítra dós. Allir litir.
Opið: virka daga 8-18, laugardaga 10-14
BYKO
BYKO Reyðarfirði • S: 470 4200
BYGGIR MEÐ ÞER
Af sértækum
aðgerðum
Nýverið samþykkti bæjarstjórn
Fjarðabyggðar ályktun þar sem hún
„mótmælir hverskonar sértækum
aðgerðum stjórnvalda við úthlutun
aflahlutdeildar, hvort sem fiskur er
veiddur á línu eða með öðrum veið-
arfærum, “ svo vitnað sé orðrétt í
samþykktina. Ég tek mér það
bessaleyfi að álykta sem svo að
hverskonar sértækar aðgerðir, eigi
m.a. við um byggðakvóta.
Einnig gat að líta í fjölmiðlum
nýverið, ummæli höfð eftir Aðal-
steini Helgasyni hjá Samerja um að
hann væri andsnúinn úthlutun
byggðakvóta þar sem slíkt skekkti
samkeppnisstöðu íyrirtækja í sjáv-
arútvegi. Kannski ekki orðrétt
þannig en þetta var inntakið í um-
mælunum. Mér finnst full ástæða
til að staldra við þetta tvennt og
byrjum á ályktun bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar.
Hafa ber í huga að í Fjarðabyggð
á innan skamms að reisa eitt stykki
álver og er þar um að ræða stærstu,
sértæku atvinnu og byggðaaðgerð
íslandssögunnar, þótt vissulega eigi
heimamenn stærstan heiður af
framtakinu en ekki línudansarinn í
iðnaðarráðuneytinu. Að sjálfsögðu
er ekkert nema gott um það að segja
F.h. bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
Skipulagsfulltrúi.
Auglýsing
minni háttar breytingar á aðalskipulagi
Austur-Héraðs 2002-201 7
meb vísan til 2. mgr. 2t.gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997 og 7.2.2. gr. skipulagsreglugerðar
nr. 400/1998 er hér meb auglýst tillaga ab minni háttar breytingu á abalskipulagi Austur-Hérabs
2002-2017.
Landnotkun lóbanna vib Mibvang 18, 20 og 22 breytist úr því ab vera svæbi fyrir
þjónustustofnanir í þab ab vera íbúbasvæbi.
Hluti af svæbi milli Hringvegar (1) og Mibvangs sem skilgreint er blöndub landnotkun sem
þjónustusvæbi / athafnasvæbi, breytist í mibsvæbi.
Breytt lega er á sybsta hluta göngustígs sem liggur í gegnum svæbi fyrir þjónustustofnanir
vib Mibvang. Stígurinn færist til vesturs og liggur nú milli íbúbasvæbis og mibsvæbis.
Ný abkoma er frá Hringvegi (1) ab Mibvangi, um 200 m norban vib vegamót vib Fagradalsbraut.
Uppdráttur sem sýnir umrætt svæbi, fyrir og eftir breytinguna, verbur til sýnis í anddyri
bæjarskrifstofu Austur-Hérabs ab Lyngási 12, Egilsstöbum frá og meb 13. 10. 2003 til
og meb 3. 11. 2003.
Þeir sem hafa athugasemdir fram ab færa vib framangreinda skipulagstillögu skulu skila þeim
skriflega til Austur-Héraös, Umhverfissvibs, Lyngási 12, 700 Egilsstaöir, eigi sföar en 3.11.2003.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir vib skipulagstillöguna innan framangreinds frests skobast
samþykkur henni.
Egilsstöbum 2. október 2003
Þórhallur Pátsson, skipulagsfulltrúi
en mér þykir bæjarstjórn Fjarða-
byggðar setja niður með því að vera
á móti sértækum aðgerðum sem
hugsanlega geta komið öðrum
byggðalögum til góða. Rökin gegn
línuívilnun eru fyrst og fremst þau
að með henni sé verið að færa afla-
heimildir frá einum útgerðarflokki
til annars; þ.e.a.s. frá stórum út-
gerðarfyritækjum til trillukarla og
þannig muni meiri kvóti flytjast frá
Austfjörðum en til þeirra því það
munu helst vera Vestfirðingar sem
hagnast á þessari ívilnun. Vera má
að satt sé, en þetta hlýtur að vera
hægt að leysa, t.d. með því að taka
ekki kvóta af neinum, heldur verði
einfaldlega úthlutað nýjurn kvóta til
að dekka umframaflann; Davíð
hlýtur að geta fundið einhver tonn
til þess, líkt og hann gerði fyrir síð-
ustu kosningar. Vestfirðingar eru
heldur ekki að fá neitt álver svo að
ég vorkenni Austfirðingum ekki
baun að þurfa að sjá á eftir einhverj-
um tonnum til þeirra.
Byggðakvótinn, sú sértæka að-
gerð við úthlutun aflaheimilda,
hefur gefið góða raun hér á Stöðv-
arfirði og vegna hans, hefur verið
reist hér fiskvinnslufyrirtæki sem
veitir að jafnaði ellefu manns vinnu
en það er hátt hlutfall í 270 manna
samfélagi, en það jafngildir um 120
störfum í Fjarðabyggð svo ég grípi
til hinnar alræmdu höfðatölureglu.
Og þar er komið að Aðalsteins þætti
Helgasonar hjá Samherja, því eitt
sinn var Samherji handhafi byggða-
kvóta Stöðfirðinga en var sviptur
honum þar sem sveitarstjórn taldi
að fyrirtækið hefði ekki staðið þann
samning sem gerður var við úthlut-
un hans. Þá var Aðalsteinn ekki
mótfallinn byggðakvótanum því
rnikil var gremja hans yfir því að
tapa honum og hrikti all verulega í
stoðum atvinnulífs á Stöðvarfirði á
meðan stormurinn gekk yfir. En
Aðalsteinn hefur greinilega skipt
um skoðun síðan þá og því fagna ég
því slíkt er sjaldgæft á meðal Is-
lendinga.
Elsku vinir í Fjarðarbyggð; leyfið
okkur sem erum töluvert háð smá-
bátaútgerð að njóta þeirra mola sem
til okkar falla af borðum Stjórnar-
flokksins því þeir eru ekki margir
og alveg óþarfi að þið séuð að öf-
undast út í það. Þá höldum við á-
fram að styðja ykkur í viðleitni ykk-
ar til atvinnuuppbyggingar, líkt og
við gerðum með álverið, og við
verðum öll vinir áfram. Deal?
Eftir Björgvin Val Guðmundsson