Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 6

Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 6
6 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 9. október VIÐTALIÐ Þetta er úið að vera Jónas Hallgrímsson fram- kvæmdastjóri Austfars á Seyðisfirði fyrir utan höf- uðstöðvar fyrirtækisins á Seyðisfirði. Auk þess að vera við stjórnvölinn hjá Austfar er hann Danskur konsúll á Seyðisfirði eins og sjá má á skildinum sem sést í bakgrunni. viðburðar- ríkt ár” Jónas Hallgrímsson er framkvœmdastjórí Austfar ehf sem er umboðsaðili Smyríl Line á Seyðisfirði og situr í stjóm Smyril Line sem gerir út farþegaferjuna Nor- rænu. Jónas hefur séð um afgreiðslu Norrænu og fyrst Smyrils frá upphafi eða frá árinu 1975. Fyrst með bæj- arstjórastarfinu meðan hann var bœjarstjóri á Seyðis- firði til 1983 en þá stofnaði hann Austfar og hefur verið framkvæmdastjórí þess fyrirtækis alla tíð eða í 20 ár. Jónas var stjómarformaður Smyríl Line 1994 til 2001. Auk þess að vera við stjómvölinn hjá Austfar er hann Danskur konsúll á Seyðisfirði Áríð er búið að vera viðhurðaríkt hjá Jónasi ný glæsileg Norræna var sjósett fyrr rúmu árí síðan eða 24 ágúst 2002 og fór i fyrstu reynslusiglinguna í mars á þessu ári og kom síðan í fyrstu ferðina til Seyðisfjarðar 22. apríl síðastliðinn. Alls kostaði nýja skipið um 7 miljarða ís- lenskra króna. Yfir hundrað þúsund farþegar FYRSTA SUMARIÐ. Nýja skipið kom í jómfrúrferðina til Seyðisfjarðar 22. apríl með 530 farþega og í þá síðustu 11. september og var þá búið að flytja 105 þúsund farþega á fyrsta sumrinu sem hún siglir til Islands senr Jónas segir að sé sá fjöldi sem þeir reiknuðu með í rekstraráætlunum fyrir hið nýja skip Norrænu. Af þessum rómlega hundrað þúsund farþegum eru 23 þúsund þeirra sem koma til og frá Islandi. Farþegafjöldi jókst um 35% milli ára með nýju ferjunni. Það var kominn tappi í farþegafjöldann sem stafaði af því að gamla ferjan tók aðeins 300 bíla á bíladekk en sú nýja tekur 800 bíla. A næsta ári segir Jónas að reiknað sé með að 120 til 130 þúsund farþegar taki sér far með Norrænu. Utlit er gott bókanir fyrir næsta ár eru góðar og mikið af fyrirspurnum. Sama verð er á fargjöldum með skipinu og á síðasta ári. Afar erfitt á smíðatímanum Jónas segir að Smyril Line hafi átt afar erfitt á smíðatíman- um. Það kom aðallega til vegna breytinga á olíuverði og stöðu dollarans sem þaut upp. Þetta varð til þess að fresta þurfti smíði nýja skipsins í ár og leita eftir auknu hlutafé en afar sterkir fjárfestar komu að smíðinni „klukkan fimm mín- útur yfir tólf’ segir Jónas. 18 öflugir stofnfjárfestar standa að fjármögnun skipsins, þeir koma frá 3 löndum, íslandi Fær- eyjum og Hjaltlandi. Þar af eru þrír opinberir sjóðir á veg- um, Hjaltnesku landsstjórnarinnar, Færeysku landsstjórnar- innar og Byggðastofnunar á íslandi. Áætlanir staðist EFTIR AÐ FJÁRMÖGNUM LAUK Samkomulagið um fjármögnunina er til sjö ára frá því að smíðasamningur var undirritaður. Þá eru fjárfestarnir lausir frá þessu eða geta haldið áfram, allt eftir hvernig staða félags- ins verður þá. „7 miljarðar eru mikið fé og það varð að gera þetta svona til að mynda festu í félaginu” segir Jónas. Allar áætlanir hafa staðist hingað til frá því að smíðasamningur var undirritaður. Allt byggist þetta á góðu samstarfi stofnfjár- festa og stjórnar félagsins. Aðspurður hvort þetta sé gróðafyrirtæki svarar Jónas að eng- inn viti sína æfi fyrr en öll er, „þetta er hugsjónastarf í og með” en reiknað er með að fyrirtækið fari á markað í fram- tíðinni. Flestir farþegar frá Þýskalandi Smyril Line hefur sölukerfi um mest alla Evrópu og er með umboðsmenn í flestum Evrópulöndum. Auk þess eiga Smyril Line og Austfar Norrænu ferðaskrifstofuna sem á- samt Terra Nova Sól selja ferðir með ferjunni hér á Islandi. Flestir farþegar ferjunnar koma frá Þýskalandi en Danir og Norðmenn eru á uppleið segir Jónas. Um 80% farþeganna eru útlendingar og 20% Islendingar. Það voru fleiri farþeg- ar frá íslandi í sumar en áður og segir Jónas það vera vegna bættra samgangna við þéttbýlið. Jónas segir að þegar öllu er á botninn hvolft byggist þetta allt á góðu og traustu samstarfsfólki hérlendis sem erlendis. Draumsýnin er sumarvegur um hálendið Jónas segist eiga sé draumsýn um sumarveg um hálendið frá Kárahnjúkum, yfir á stíflunni og þvert yfir á Sprengisand. Það er verið að vinna þeirri hugmynd fylgi af nefnd á vegum Markaðsstofu Austurlands og er Jónas formaður stjórnar Markaðsstofunnar. Fulltrúar Markaðsstofunnar í nefndinni eru Sveinn Sigurbjarnarson og Skúli Björn Gunnarsson. Þetta mun stytta leiðina frá og til Reykjavíkur um nær 200 kílómetra svo þangað verði undir 500 kílómetra vegalengd og um 6 tíma akstur. Þetta er langstærsta samgönguhags- munamál okkar hér á Austurlandi, það næst stærsta er að breikka og lagfæra veginn yfir Oxi. Það er kominn góður vegur inn að Kárahnjúk lagður bundnu slitlagi, þaðan eru bara 90 kílómetrar yfir á Sprengisand og við erum að vinna að því að þar á milli verði lagður góður sumarvegur. Það er langstærsta samgönguhagsmunamál okkar að sfytta leiðina frá og til Reykjavíkur, auk þess sem góðir vegir um hálendið minnka utanvegaakstur. Erfiðar slóðir um hálend- ið bjóða upp á spjöll, þær eru oft ógreinilegar og hálf ófærar vegna þess að þær eru djúpar og blautar, þá er farið að keyra utan með Þar myndast ljót sár sem ekki þurfa að koma ef þokkalegur vegur er til staðar. Þessi hálendisvegur mun einnig auka möguleikana á að ferðast um Island. Af þessum vegi þarf einnig að liggja góður vegur inn norðan Snæfells, til dæmis að Hnútu við Vatnajökul, að tilvonandi Vatnajök- ulsþjóðgarði. Ekki grundvöllur fyrir ferðum Norrænu allt árið Við höfum kannað grundvöll fyrir ferðum Norrænu allt árið til tslands, og það er ekki grundvöllur fyrir þeim eins og er segir Jónas. Heilsársferðir eru því ekki inn í myndinni, það gæti breyst ef góðu jarðgangnasambandi yrði komið á hér eystra. Markmið Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið- Austurlandi að gera jarðgöng úr Héraði undir Mjóafjarðar- heiði til Mjóafjarðar, þaðan til Seyðisfjarðar, Norðfjarðar og Eskifjarðar mundi gjörbreyta öllum samgöngum á Austur- landi til hins betra og stórauka alla möguleika til ferða- mennsku. Það gæti verið hluti af því að skapa grundvöll fyr- ir ferðum Norrænu til landsins allt árið. Höfum orðið fyrir miklu áreiti Jónas segir að þeir hafi orðið fyrir miklu áreiti með að flytja ferðir Norrænu á Suðvesturhornið, annað hvort til Reykja- víkur eða Þorlákshafnar. „Þetta er liður í landsbyggðarand- streymi, þar sem í hugum sunnanfólks verða allir hlutir að „vera innan” Hringbrautar” segir Jónas. Það er ekki grundvöllur fyrir því að fara með skipið suður vegna þess að það verður að sigla því sfystu leið milli landa. Aðal grundvöllurinn fyrir þeim ferðum sem Norræna er í núna er að skipið sé á öllum stöðum sem það fer á, einu sinni í viku á réttum tíma og það er ekki hægt nema það komi að landi hér austanlands. Við erum að sigla til fimm landa og erum að skipta um farþega í skipinu mjög títt á hin- um ýmsu viðkomustöðum þess. Lengsti leggurinn er tveir sólarhringar héðan til Danmerkur, þessi viku áætlun mundi aldrei nást nema fara sfystu leið milli landa. Lifir á bjartsýninni Norræna kemur í sína fyrstu ferð á næsta ári 6. mai og þá síð- ustu um miðjan september, skipið mun koma einni ferð fleira á næsta ári en í ár. Jónas er bjartsýnn maður, sem oft hefur komist langt á bjart- sýninni, oft að því er virðist einni saman og ekki látið úr- töluraddir telja úr sér kjarkinn þó á móti blási. Hann fer gjarnan beina leið að markinu, er skorinorður þegar hann viðrar skoðanir sínar, sérstaklega í ferðamálum en þar er hann á heimavelli, hefur lifað og hrærst í ferðabransanum í nær 30 ár og er hvergi nærri að brenna út á þeim vettvangi. „Eg lifi á bjartsýninni en verð að vera jarðbundinn” segir Jónas Hallgrímsson konsúll, ferðamálafrömuður og fram- kvæmdastjóri Austfars á Seyðisfirði. sigad@agl.is

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.