Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 8
8 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 9. október Spurning vikunnar Er veturinn kominn? Spurt í Fellabæ WWl'iaifflf'i"! Smárí Guðþórsson Já, ég er alveg staðráðinn i því. Axel Jóhannsson Já, svona að mestu leyti. Jakob Karísson Hann kom í gær og fer 10. maí. Sigurrós Sigurðardóttir Nei, það held ég alls ekki. Áslaug Ragnarsdóttir Já, hann kom 17. september. MANNLIFIÐ Eskifirðingur formaður Heimdalls Atli Rafn Björnsson, ungur Esk- firðingur tók í liðinni viku við for- mennsku í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Bolli Thoroddsen, mótframbjóð- Atli Rafn Björnsson formaður Heimdalls. andi Atla hafði stuttu áður dregið framboð sitt til baka. Atli sem er 24 ára gamall er bor- inn og barnfæddur Eskfirðingur en fluttist til Reykjavíkur um það leyti sem hann hóf nám í fram- haldsskóla. Atli er menntaður við- skiptafræðingur og starfar hjá greiningardeild íslands- banka í Reykjavík. Hann er sonur Björns Kristinssonar, frá Eski- firði, fyrrum verk- smiðjustjóra í fiski- mjölsverksmiðju Eskju á Eskifirði. Móðir hans er Asta Ingibjörg Björnsdóttir, og er af Héraði, systir Emils Björnssonar hjá Fræðsluneti Austurlands og fyrrum kennara í M.E. í frændgarði Atla Rafns eru m.a. Elfar Aðalsteinsson, forstjóri Eskju, og Aðalsteinn Jónsson, fyrrum for- stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar (Alli ríki). ÆMr "Ríkið" á Seyðisfirði Bárujárnshús við Hafnargötuna á Seyðisfirði. Lætur ekki mikið yfir sér en er þó “spes”, enda gam- alt - gæti jafnvel heitið “Templar- inn”. Nei, og þó það væri full kald- hæðnislegt enda er þar höndlað með áfengi. Gamlir menn segja oft fræknar sögur af ölhneigðum mönnum - sem þó drukku aldrei öl enda var það bannað - sem ferðuð- ust til Seyðisfjarðar í blindaþoku og byl eftir einni Kláravín og komu til baka rjóðir í kinnum með fleyginn hálfann. Húsið er ekki bara “mystískt” heldur er innvolsið enn dularfyllra. Innréttingar sem vel myndu sæma sér á safni enda upphaflega úr Mjóafirði, þar sem einhver útlend- ingur sem skammstafaði nafnið sitt “faktoraðist” fram og til baka yfir það borðið með nauðsynjar Mjófirðinga. Nú er ölið yfir borð- ið lagt og gamlar hillur geyma áfengt ný-ropvatn sem myndar nokkra andstæðu við bæs-litaða antíkina. Sjálfsagt eina áfengissal- an á íslandi sem afgreiðir yfir borðið bjórinn - enda menn hættir að afgreiða hann undir borðið fyr- ir margt löngu. Flottasta eldvatns- verslun íslands. Staður vikunnar - „ríkið” á Seyðisfirði. Nýr Austfirðingur Þessi myndar drengur sem hér situr í fangi stóru systur sinnar, Draumeyjar Ósk Ómarsdóttur, fæddist þann 26. september síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu i Neskaupstað. Hann var 15 merkur og 52 cm við fæðingu og heilsast vel að sögn foreldranna, Vigdísar Þorgerðar Sigurðardóttur og Þórólfs Valberg Valssonar. Hattapartí í tilefni af átt- ræðisafmæli Félagar í félagi eldri borgara á Reyðarfirði héldu einum félaga sinna veislu í tilefni af afmæli hennar á dögunum og mættu af því tilefni með hatta í tilefni dagsins. Hin ofurhressa Guðný Finnbogadóttir (Guðný í Garði) átti áttræðisafmæli og var þessi mynd tekin af heiðurskonunum í félaginu af því tilefni. Afmælisbarnið er önnur frá vinstri í stólaröðinni.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.