Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 9. október
AUSTUR • GLUGGINN
9
Björn Egilsson á Reyðarfirði er matgæðingur vikunnar.
^Íatgæðingur
VIKUNNAR
‘Kjötdaíía meðgráðostí
600 gr kálfalundir
400 gr nautahakk
200 gr ferskir sveppir
3 msk saxaður blaðlaukur
mulinn rósapipar á hnífsoddi
1/2 tsk Season all
1-2 tsk salt
milt karrý á hnífsoddi
1 dl Hunts tómatsósa
3 msk Soya-sósa, Sweet Soy-Sauce (indonesian style)
1 pk smjördeig
1 stk gráðostur
Snöggsteikið lundirnar á þurri pönnu til að loka þeim, myljið rósapipar
yfir við steikingu. Takið af pönnunni og setjið á fat. Ekki láta þær liggja
í kjötsafanum.
Steikið hakk, lauk og sveppi á pönnu, krydaið og bragðbætið með
tómat- og sojasósu. Fletjið smjördeigið út og skerið út hringlóttar kök-
ur, 16-17 cm í þvermál. Deigið nægir í 15 kökur. Skerið lundirnar í u.þ.b.
4 cm bita, þannig að þær passi innan í bökuna. Leggið hvern bita á
bökuhelming, bætið við 1 msk af hakkinu og 1 tsk (litlum bita) af gráð-
osti. Lokið bökunni og þrýstið brúnunum saman. Skreytið með afskurði
af smjördeiginu. Bakið í ofni við 220°C í 10-15 mín eða þartil þærverða
gullinbrúnar á litinn. Berið fram með koníakssósu, hrísgrjónum og
fersku salati.
%oníaiissósa:
1 dós sýrður rjómi, 10 %
2 tsk sykur
1 msk koníak
Öllu blandað saman.
Jísflréttar að hœttí húshóndans
2 dl hrísgrjón
ýsa
rækjur
1 lítil dós sveppir
4 msk majónes
2 tsk karrý
1/4 úr lítra matreiðslurjómi
ostur
Hrísgrjónin eru soðin og látin í botn á eldföstu móti. Fiskurinn er einnig
soðinn og raðað ofan á hrísgrjónin. Þá er rækjurnar settar yfir. Vökvinn
er síaður frá sveppunum og þeim raðað yfir. Majonesið er hrært með
karrýinu, sveppasoðinu og rjómanum. Þessu er hellt yfir fiskinn og að
lokum er rifnum ostinum stráð yfir. Bakað í ofni við 180°C þar til ostur-
inn hefur tekið lit.
Björn skorar á Álfheiði Hjaltadóttur á Reyðarfirði til að verða
næsta matgæðing. „Hún er oft mjög sniðug og kemur örugglega
með eitthvað skemmtilegt," segir Björn.
ATH: Við vinnslu uppskriftar i siðasta blað urðu þau leiðu mistök að það
gleymdist að geta þess að ger þarf i Hvítlauksbrauð Steinunnar Sigurð-
ardóttir sem var matgæðingur vikunnar þá. I brauðið þarf 2 deildar af
þurrger (pizzuger). Beðist er afsökunar á þessu.
hagyrðinga
Sæl, þið sem sjáið út og inn um Austurgluggann.
í búðinni fellur til mikið af grænmetisafgöngum sem
ég hef sent Þórði bónda á Skorrastað handa svínum og
fleiri skepnum. Eitt sinn sagði ég að nú hlyti svínið að
elska mig mikið því afgangakassinn var svo stór. Skrif-
aði svo vísu ofan á lokið:
Aldrei þó ég yrði best
svo ófríð mjög á trýninu,
þá samt er ég elskuð mest
af Skorrastaðasvíninu.
Svar:
Ástarhjal þitt elskan mín
yljar mér um hjartarætur.
Vont er nú að vera svín
og vaka einn um langar nætur.
Svar:
Langar nætur leiðist mér
og líka ein að sofa.
Sæl ég yrði svín með þér
- steik í fjallakofa!
Svar:
Holdið mitt er harla veikt
er heyri ég þig mæla.
Þó mín yrði skinkan steikt
skyldi ég þig tæla.
Svar:
Aftur tekin öll mín orð
um eina vininn kæra.
Ekki vil ég upp á borð
elskhuga minn færa.
Svar:
Mér erfitt finnst að átta mig
á öllum þínum orðum.
Almáttugur áttu við
að elskast uppá borðum??
Hlálegt hagyrðingagrín
hvergi má það birtast.
Karlinn minn og kerlan þín
kynnu þá að fyrtast.
Þetta telst e.t.v. ekki merkilegur kveðskapur. En við
höfðum gaman af á meðan á því stóð. Og vona ég að
fleiri líti það sömu augum.
Kveðja,
Kolfinna Þorfinnsdóttir
GRÆNIR FINGUR
Uppgjörið!
Jæja, „Þetta” er núl ekki að verða
hægt mikið lengur!
Búinn að harka þetta hér í allt
sumar og bara fyrir mína eigin á-
nægju og að sjálfsögðu ykkur líka.
Það er bara örlítið kaldara í dag.
Eftir smá tima verður þessi vind-
ur að baki og allir komnir út í
glugga eða garð að dást að dásemd-
um lífsins. Ég hef nú ekki heyrt frá
mörgum ykkar en ég held að þið
hafið hugsað svo mikið um það
sem þið lásuð í „Græna homi”
Austurgluggans, að ykkur hefur
láðst að agnúast eitthvað út í mig.
Fyrir mig er þetta búið að vera
„Ævintýri”. Ég er búinn að hafa
gaman og mikið gagn af því að
skrifa þetta. Suma pistlana hef ég
verið korter að skrifa, en í aðra hef
ég eytt um 4klst og jafnvel meiri
tíma.
Það er viðurkennd staðreynd að
öllurn er hollt að koma skoðunum
sínum og hugrenningum á blað því
þannig verða þær öllum ljósari og
því eins gott fyrir mig að segja
enga vitleysu.
Ég hef reynt það en þar sem ég
fékk nokkuð frjálsar hendur, þá
mun það sennilega vera ég einn
sem ber ábyrgð á því sem ég hef
verið að segja og því við mig að
sakast ef það hefur ekki verið rétt.
Ég var ekki á svæðinu á tímabili
en kom hér oftast um helgar í eins-
konar „Ritbúðir” sem ekki alltaf
var nóg því ritstjórinn sjúkdóms-
greindi mig eitt sinn þegar áætlanir
um skil á næstu grein ætluðu ekki
að standast. Hans greining var:
Með „Rit-teppu” en það er sjúk-
dómur sem einkennist af há-
stemmdri örvæntingu og bölvaðri
andlegri líðan svo ekki sé meira
sagt. Þetta byrjaði með því að bú-
fræðingurinn Sigurður Aðalsteins-
son frá Vaðbrekku kom að máli við
mig í vor og bað mig um að skrifa
smá pistil um garðyrkju og um-
hverfismál til að setja í Austur-
gluggann.
Með þessari grein átti að fylgja
litmynd af greinahöfundi en að
sjálfsögðu átti efni greinarinnar
ekki að snúast um hann heldur eitt-
hvað umhverfisvænt eða grænt.
Ég varð við bón gamals skóla-
bróður og svo bættust fleiri greinar
við. Þetta gekk vel og við höldum
að nokkuð mörg ykkar hafi lesi
þetta efni, a.m.k. í leyni. Ég held að
greinarnar séu nú orðnar 25.
Kæru lesendur, hér skilja leiðir
okkar að sinni. Ég þakka ykkur
fyrir að lesa þessa pistla því það
segir mér það sem ég vildi heyra,
að þið hafið áhuga á að fræðast og
að nota aðra vinkla á þessi málefni.
Ef ykkur vantar efni þessara
greina þá getið þið nálgast það á
heimasíðunni minni :
www.simnet.isÆensib/
einka/greinaskrif min.htm
eða hringt í mig.
Benedikt Björnssoit
garðyrkjumaður
Nánari upplýsingar í síma
892-7709 og bensib@simnet.is