Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 11

Austurglugginn - 09.10.2003, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 9. október AUSTUR • GLUGGINN 11 IÞRO TTA <* FRETTIR Umsjón: helgi@agI. is Þróttur 80 ára Afmælishátíð á laugardaginn Ungmennafélagið Þróttur í Nes- kaupstað varð 80. ára þann 5. júlí fyrr á þessu ári. Itilefni af afmæl- inu ætla Þróttarar nú að halda veg- lega afmælishátíð næstkomandi laugardag, 12. október. Að sögn Björgúlfs Halldórssonar, for- manns Þróttar, byrjar hátíðin með „sprelli og sundkeppnum barna og fullorðinna,” í sundlauginni í Nes- kaupstað, klukkan 10 á laugar- dagsmorguninn. Klukkan 13:00 verður svo haldið áfram hátíðar- höldunum í íþróttahúsi staðarins, farið í leiki og skemmt sér, en klukkan 15:00 er gert ráð fyrir að Þróttarar bjóði svo öllum til mik- illar afmælisveislu, með kökum og tilheyrandi, í íþróttahúsinu. Golf Nýr golfklúbbur á Reyðarfirði - nýr völlur á næsta leyti Nýr golfklúbbur hefur nýlega bæst í golfflóru Austurlands, en Reyðfirðingar stofnuðu á dögun- um nýjan klúbb, GRG, Golfklúbb Reyðarfjarðar, Grænafelli. Að sögn Stefáns Ingvarssonar, ný- kjörins formanns klúbbsins, eru félagar í honum þegar orðnir á fjórða tuginn, og var stofnfundur- inn sem haldinn var á dögunum fjölmennur. Nýr par 70 völlur í Grænafelli Enn sem komið er vantar félag- inu heimavöll, en það stendur til bóta að sögn Stefáns. „Við erum búnir að láta hanna fyrir okkur 9 holu völl sem við ætlum stað í Grænafell við Reyðarfjörð. Ofan á melnum vinstra megin á myndinni ætiar ný- stofnaður golfklúbbur að koma upp nýjum golfvelli sem á að verða tilbúinn árið 2006. Teikning af væntanlegum Grænafellsvelli GRG. <; R/IÍN AI'ELLSVÖLLUR Mol;i Par Lengd Guhir Rnuöur L 5 470 380 2- 3 160 120 3. 4 230 180 4. 3 120 100 5. 4 340 260 6. 4 360 290 7. 3 170 140 8. 5 440 360 9. _4 310 240 35 2600 2060 M.K.V. 1:2000 Uönnun og teikn. Guölaugur Gcorgsson Hafnarfiröi 14-scpt 2003. hlíðum Grænafells, hér innarlega í firðinum,” sagði Stefán. Völlurinn sem Stefán vísar í er par 70 völlur og verður staðsettur rétt neðan við gamla knattspyrnuvöllinn við rætur Grænafells, en í sumar fékk klúbburinn vilyrði frá Fjarða- byggð fyrir landi undir völlinn. „Við stefnum á að geta byrjað að spila á vellinum sumarið 2006, en fram að því þá verðum við með æfingasvæði þarna, fyrst á gamla knattspyrnuvellinum og loks á svæðinu sjálfu. Við slógum öll túnin þarna í sumar og ættum því að geta byrjað að æfa þar næsta vor,” segir Stefán en stefnt er að því að útbúa allt að 6 par 3 brautir á gamla fótboltavellinum á meðan nýi völlurinn verður kláraður. I nýrri stjórn klúbbsins eru auk Stefáns, Þorgeir Sæberg og Sigrún Birna Björnsdóttir. Uppskeru- hátíð Einherja Félagar í ungmennafélaginu Einherja héldu uppskeruhátíð i félagsheimilinu á Vopnafirði þann 28. sept. sl. Eftir að hafa gætt sér á veitingum og farið yfir árangur sumarsins, þá tóku ungir fótboltamenn og konur við viðurkenningum úr höndum Birkis Kristinssonar landsliðs- markvarðar. Einnig voru valin fótboltakona og fótboltamaður sumarsins úr meistaraflokkum. Linda Björk Stefánsdóttir var valin úr meistaraflokk kvenna og Víglundur Páll Einarsson úr meistaraflokk karla. Þá kom Steindór Sveinsson og færði Einherja 200 þúsund króna styrk frá Mælifelli ehf. Af www.vopnaJjordur.is Golf Fjarðabyggð Open í Neskaupstað Helgina hélt Golfklúbbur Norð- fjarðar „Fjarðabyggð Open”, opið mót með punkta-fyrirkomulagi. „Veðrið var með besta móti og völlurinn er í topp ásigkomulagi enda spiluðu keppendur “fanta” gott golf,” sögðu mótshaldarar og bættu við að mótið hefði tekist í alla staði mjög vel. Veitt voru verðlaun fyrir 5 efstu sætin og nándarverðlaun á 4. og 13. braut og 9. og 18. braut. Úrslit urðu þessi: 1. sæti Kristinn J. Ragnarsson GE 42 punktar 2. sæti Eysteinn Gunnarsson GN 38 3. sæti Halldór F. Sveinsson GN 37 4. sæti Guðni Þ. Steindórsson GN 37 5. sæti Hjörvar O. Jensson GN 37 Nándarverðlaun: 4. og 13.: Árni Guðjónsson 9. og 18.: Arnar Freyr Jónsson Verðlaunahafar á mótinu. Bikarkeppni HSÍ - SS bikar Höttur úr leik Meistaraflokkur Hattar á Eg- ilsstöðum lék um helgina í 32. liða úrslitum bikarkeppni HSI í handknattleik gegn b-liði ÍBV frá Vestmannaeyjum. Leikurinn fór fram í Eyjum síðastliðinn laugardag. Hattarar voru undir í leikhléi 11-7 og þegar leið á leikinn dró enn í sundur milli liðanna og fór svo að lokum að ÍBV hafði sigur 24-16. Þar með hefur Höttur lokið keppni í bik- arnum í ár en stefnt er að því að liðið taki þátt í utandeildar- keppni HSÍ í vetur auk bikars- ins.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.