Andvari - 01.01.2018, Blaðsíða 48
ANDVARI ÁRMANN SNÆVARR 47
Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr
um fjölskyldumálefni
Árið 2009 ákvað Háskólaráð að setja á laggirnar sérstaka háskóla-
stofnun, Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni.
Má segja, að með því hafi Ármanni verið reistur veglegur minnis-
varði, þótt enn væri á lífi, og mun stofnunin vonandi halda nafni hans
á lofti um langan aldur sem og rit hans og annar árangur ævistarfsins.
Um er að ræða vísindalega rannsóknastofnun á þverfaglegum fræða-
grunni, sem starfrækt er af Háskóla Íslands en heyrir undir Lagadeild.
Auk rannsókna á málefnum fjölskyldna og barna í víðu samhengi,
meðal annars frá sjónarhóli allra þátta félagsvísinda, heilbrigðisvís-
inda, menntavísinda og heimspeki, er stofnuninni ætlað að sinna þjón-
ustuverkefnum á framangreindu sviði. Nánar til tekið er hlutverki
stofnunarinnar lýst á þessa leið í reglum, sem settar voru um hana af
háskólaráði 16. júní 2009:
að efla lögfræðirannsóknir á sviði fjölskylduréttar, svo sem sifjaréttar, hjú-
skapar- og sambúðarréttar, barnaréttar og barnaverndarréttar,
að skapa vettvang fyrir þverfaglegar rannsóknir á sviði lögfræði og annarra
fræðasviða þar sem fjallað er um hjúskapar- og sambúðarmál og málefni fjöl-
skyldna og barna í sem víðustu samhengi, m.a. frá sjónarhóli allra þátta félags-
vísinda, heilbrigðisvísinda, menntavísinda, heimspeki og siðfræði,
að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaaðila,
að eiga frumkvæði að og taka þátt í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum á sviði
fjölskylduréttar og í þverfaglegum rannsóknum um fjölskyldumálefni,
að efla tengsl rannsókna og kennslu á háskólastigi um fjölskyldumálefni,
að stuðla að samstarfi við félög og stofnanir sem fara með málefni tengd fjöl-
skyldunni,
að sinna þjónustuverkefnum fyrir stofnanir eða aðra aðila sem fjalla um fjöl-
skyldumálefni,
að skapa vettvang fyrir meistaranema og doktorsnema í lögfræði eða öðrum
námsgreinum sem tengjast fjölskyldumálefnum til að vinna að einstaka
rannsóknaverkefnum, veita þeim aðstöðu til rannsóknastarfa eftir því sem
aðstæður leyfa og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum,
að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna um fjölskyldumálefni og gangast
fyrir faglegum námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefnum um efnið.