Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 8

Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 8
Hafréttarstofnun Íslands og Íslenski sjávarklasinn gangast fyrir námskeiði í hafrétti fyrir almenning í Húsi Sjávarklas- ans, Grandagarði 16, Reykjavík, föstudag- inn 7. október 2022 kl. 9.00 til 12.00. Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Sjávar- klasans, setur námskeiðið og kennsla er í höndum Tómasar H. Heiðar, varaforseta Alþjóðlega hafréttar- dómsins í Hamborg og forstöðumanns Hafréttarstofnunar, Birgis Hrafns Búasonar, deildarstjóra hafréttarmála í utanríkisráðuneytinu, og Snjólaugar Árnadóttur, lektors við lagadeild HR og forstöðumanns Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig í síma 577 6200 eða á netfangið sjavarklasinn@sjavarklasinn.is. Skráningargjald, kr. 1.000, greiðist á námskeiðinu. Boðið er upp á kafveitingar í hléi. Hafsjór fróðleiks bíður þín ÖRNÁMSKEIÐ Í HAFRÉTTI FYRIR ALMENNING Hver var þáttur Íslendinga í þróun hins nýja hafréttar á 20. öld? Hvað eru grunnlínur, innsævi, landhelgi, efnahags- lögsaga, landgrunn, úthaf og alþjóðlega hafsbotns- svæðið? Hvaða reglur gilda samkvæmt hafréttarsamningnum og öðrum alþjóðasamningum um skveiðar, hvalveiðar, siglingar og lausn deilumála? Hver er staða mála varðandi ákvörðun ytri marka landgrunns Íslands utan 200 sjómílna? Hvaða lausnir eru færar til að takast á við helstu viðfangsefni nútímans, svo sem verndun líffræðilegs fjölbreytileika hafsins utan lögsögu ríkja og áhrif hækkandi sjávarborðs vegna loftslagsbreytinga á grunnlínur og mörk hafsvæða? Konurnar sem stigu fram sem þolendur fagna að kosninga- stjóra og „guðföður“ hafi verið vikið úr Flokki fólksins. Stígamót segja áfangasigur gegn kynbundnu ofbeldi hafa unnist. Þingmaður Norðaust- urkjördæmis vonar það besta um framhaldið á Akureyri. bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL „Já, ég ánægð með að Hjörleifi [Hallgrímssyni] hafi verið vikið úr f lokknum, þessi maður hefur ekkert að gera í þessum flokki eða öðrum f lokkum. Maðurinn sem slíkur er ekki alslæmur, hann býr yfir ákveðinni kunnáttu, en hegðun hans er ekki í lagi, fram- koma og samskipti hans við fólk eru ekki ásættanleg,“ segir Hannesína Scheving, ein kvennanna þriggja í Flokki fólksins á Akureyri. Hannesína er í hópi þriggja kvenna sem báru Hjörleif og f leiri karla þungum sökum nýverið sem þolendur ofbeldis. Oddviti listans, Brynjólfur Ingvarsson, fyrrum geð- læknir og bæjarfulltrúi eftir kosn- ingasigur í vor, og Jón Hjaltason, sagnfræðingur sem skipaði þriðja sætið og situr í ýmsum nefndum, ætla að hætta í Flokki fólksins eftir inngrip f lokksforystunnar. Þeir starfa eftirleiðis sem óháðir í bæjar- stjórn Akureyrar í óþökk flokksfor- ystunnar. Jakob Frímann Magnússon, þing- maður Flokks fólksins í Norðaustur- kjördæmi, vill ekki tjá sig um hvort rétt hafi verið að víkja Hjörleifi, „guðföður listans“ að eigin sögn og kosningastjóra úr flokknum. „Ég er á leiðinni norður í kjör- dæmaviku. Ég ætla að reyna að lesa stöðuna og vona það besta,“ segir Jakob Frímann. „Ég vona að það versta sé yfirstaðið.“ Eftir blaðamannafund kvennanna um óásættanlega framkomu karl- anna þriggja, einkum Hjörleifs, brást Hjörleifur við í Fréttablaðinu með því að kalla konurnar „svikakvendi“. Þau ummæli virðast endanlega hafa leitt til þess að Hjörleifi var vikið úr flokknum. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Stígamótum, segir málið til marks um breytt við- horf gagnvart kynbundu ofbeldi og kynferðislegri áreitni. Gripið sé til aðgerða í stað þess að stjórn flokks- ins láti málið óáreitt. „Það hefur verið ákveðin til- hneiging hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum að segja að lítið sé hægt að aðhafast fyrr en mál hafi farið í gegnum réttarkerfið. Þetta mál er gott dæmi um að það er ekki alltaf nauðsynlegt. Það þarf ekki alltaf niðurstöðu í réttarkerfinu um sekt eða sakleysi,“ segir Steinunn. Hún segir að konurnar hafi verið Brottvikningin sýni að ekki þurfi alltaf að bíða eftir réttarkerfinu Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Steinunn Gyðu- og Guðjóns- dóttir, Stíga- mótum teknar trúanlegar og staðið með þeim. „Það er nauðsynlegt ef við sem samfélag ætlum að taka ábyrgð á kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi. Svona mál verða ekki bara leyst milli þolanda og geranda held- ur verður allt samfélagið að rísa upp og taka ábyrgð.“ Verkefnisstýra Stígamóta segir að margir hafi opnað augun og áttað sig á að við höfum öll hlutverki að gegna í því að standa með þolendum. Bregðast við ósæmilegri hegðun með því að kalla gerendur til ábyrgðar. „Mér finnst þessar konur sýna hugrekki, seiglu og staðfestu. Þær sýna hver annarri samstöðu. En við þurfum líka að muna að margir þol- endur standa einir og við þurfum að standa með þeim líka,“ segir Gyða um akureyrsku konurnar sem héldu blaðamannafundinn. n Mikið hefur gengið á í Flokki fólksins síðan þrjár konur á Akureyri stigu fram og lýstu ofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI benediktboas@frettabladid.is   SAMFÉLAG Padelvöllur á Klambra- túni, teppalögð skíðabrekka, styttur af risaeðlu og pólska knattspyrnu- manninum Robert Lewandowski, tónleikasvæði á Geldinganesi og innanhússleikvöllur fyrir ungabörn í Grafarvogi eru meðal hugmynda sem hafa borist í hugmyndasam- keppnina Hverfið mitt sem Reykja- víkurborg stendur fyrir. Aldrei hafa fleiri hugmyndir verið sendar inn á einni viku en þær eru þegar orðnar um 600 talsins, sem er um 55 prósent aukning frá sama tíma í síðustu hugmyndasöfnun. „Það er gaman að sjá hvað borgar- búar eru áhugasamir um að taka þátt í hugmyndasöfnuninni í ár og þetta eru ótrúlega fjölbreyttar hug- myndir sem eru að berast,“ segir Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnis- stjóri hjá Reykjavíkurborg. „Ef fram sækir sem horfir munu borgarbúar vonandi setja met í inn- sendum hugmyndum,“ segir hann. Þetta er í tíunda sinn sem hug- myndasöfnunin fer fram, en frá því að verkefnið hófst árið 2012 hafa 898 hugmyndir orðið að veruleika. Meðal annarra hugmynda sem borist hafa inn er að fá McDonalds, betra knattspyrnulið hjá Fjölni í Grafarvogi og fleiri verslunarmið- stöðvar. „Við hvetjum að sjálfsögðu alla íbúa til að senda inn hugmyndir en það eru því miður ekki allar sem fá brautargengi,“ segir Eiríkur. n Aldrei fleiri hugmyndir verið sendar inn í Hverfið mitt Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkur- borg benediktboas@frettabladid.is  VEÐUR Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra hefur boðað komu sína í Fjarðabyggð í næstu viku. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarða- byggðar, ritar á vefsíðu sveitar- félagsins. Þar segir að ljóst sé að tjónið sé mikið hjá einstaklingum, fyrir- tækjum og stofnunum sveitarfélags- ins. Einna mest virðist tjónið vera á Reyðarfirði og mun taka einhvern tíma að átta sig á umfangi þess, skrifar Jón Björn. Katrín hafði samband við Jón og bað fyrir góðar kveðjur til allra íbúa Fjarðabyggðar og boðaði jafnframt komu sína í næstu viku til að skoða aðstæður. Jón Gunnarsson, dómsmálaráð- herra, kom á þriðjudag og fundaði með kjörnum fulltrúum. Næstu dagar og vikur fara í hreinsunarstarf og uppbyggingu á því sem skemmdist í veðrinu. „Ég veit að við verðum ekki í vand- ræðum með að leysa þetta verkefni, íbúar Fjarðabyggðar munu saman ljúka þessu með sóma,“ skrifar bæjarstjórinn. n Katrín fer til Fjarðabyggðar Björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð fóru í á annað hundrað verkefni tengt óveðrinu á sunnudag. MYND/SIGURJÓN FRIÐRIKSSON 8 Fréttir 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.