Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 22
Bikarúrslitaleikur karla fer fram á Laugar-
dalsvelli í dag, Íslands- og bikarmeistarar
Víkings taka þá á móti FH sem situr í fallsæti
Bestu-deildarinnar. Þjálfarar liðanna, Arnar
Bergmann Gunnlaugsson hjá Víkingi og Eiður
Smári Guðjohnsen hjá FH, mæta þar til leiks.
FÓTBOLTI Arnar er fimm árum eldri en Eiður en þrátt
fyrir það hafa snertif letir þeirra í kringum fótboltann
verið margir.
Eiður Smári gekk í raðir Bolton árið 1998 en þá var
Arnar Gunnlaugsson leikmaður liðsins, báðir blómstr-
uðu þeir hjá félaginu og fengu félagaskipti í stærri félög.
Arnar gekk í raðir Leicester City árið 1999. Meiðsli
komu þó í veg fyrir að þeir spiluðu mikið saman þar.
Ári síðar var komið að Eiði Smára að yfirgefa Bol-
ton og gekk hann í raðir Chelsea. Þrátt fyrir að hafa
spilað fótbolta á meðal þeirra bestu á sama tíma í
nokkur ár, spiluðu þeir félagar aðeins einn landsleik
saman. Ísland tapaði þá 3-0 gegn Finnlandi á útivelli,
leikurinn fór fram í apríl árið 2003. Arnar kom inn sem
varamaður þegar átján mínútur voru eftir af leiknum,
en Eiður lék allan leikinn.
Eftir að knattspyrnuferlinum lauk hafa þeir svo
báðir snúið sér að þjálfun, Arnar hefur skipað sér í
hóp bestu þjálfara Íslands. Eiður Smári er að stýra
FH í annað sinn en að auki hefur hann þjálfað lands-
lið Íslands. Eiður hefur litla reynslu í samanburði við
Arnar. Refskák þeirra á Laugardalsvelli í dag gæti orðið
áhugaverð rimma. n
Samferða en fóru samt alltaf á mis
Arnar Gunnlaugsson
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
42
deildar-
leikir fyrir
Bolton
55
deildar-
leikir fyrir
Bolton
17
deildar-
leikir fyrir
Val
88
A-lands-
leikir fyrir
Ísland
26
mörk fyrir
Ísland
11
titlar sem
leikmaður
0
titlar sem
þjálfari
6
deildar-
leikir fyrir
KR
3
titlar sem
þjálfari
4
deildar-
leikir fyrir
Val
34
deildar-
leikir fyrir
KR
32
A-lands-
leikir fyrir
Ísland
3
mörk fyrir
Ísland
6
titlar sem
leikmaður
Eiður Smári Guðjohnsen
22 Íþróttir 1. október 2022 LAUGARDAGUR