Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 26

Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 26
Ég hef elskað þessar sögur síðan ég var barn og þó að Snabbi sé einstaklega vel skrif- aður karakter hef ég alltaf verið veikust fyrir Hemúlnum og hans hamfaraspám. Þessi rök andstæð- inga ESB- aðildar Íslands halda ekki vatni. BJORK@FRETTABLADID.IS Hún fékk annað tækifæri og vissi sem var að það byðist aðeins einu sinni – og hún nýtti það. Þessar sögur enda oftast ekki vel,“ segir Ásdís Laxdal Jóhannesdóttir þar sem við hittumst í Mánabergi, heimili fyrir börn og fjölskyldur á vegum Barnaverndar. Heimilið þekkir Ásdís vel enda hafa börn hennar verið vistuð þar með tveggja áratuga millibili en þær sögur fóru ekki á sama veg. Ásdís kynntist fíkninni á fermingaraldri og var í nokkur ár á götunni þar sem henni var meira að segja úthýst úr húsnæði fyrir heimilislausa sprautufíkla. Eftir að hafa verið edrú í fimm ár og eignast litla syni missti Ásdís fótanna einn fimmtudagseftir- miðdag þegar álagið varð henni um megn og hún kunni ekki önnur ráð en að leita í f löskuna. Aftur voru börnin hennar vistuð í Mánabergi en Ásdísi var boðið að dvelja þar með þeim og þiggja leiðbeiningar sérfræðinga í foreldrafærni og tengslamyndun. Hún fékk annað tækifæri og vissi sem var að það byðist aðeins einu sinni – og hún nýtti það. n Annað tækifæri Evrópusambandið er ekki skilgreint sem varnarbandalag. Engu að síður er í Lissabon-sáttmálanum, grund- vallarsáttmála samstarfs ESB-ríkja, klausa sem kveður á um að öllum ríkjum ESB beri skylda til að koma til aðstoðar verði eitt þeirra fyrir vopnaðri árás. Eftir hryðjuverkaárásirnar í París haustið 2015 var þessi klausa, 42. grein Lissabon-sáttmálans, virkjuð. 42. greinin er sambærileg við 5. grein NATO-sáttmálans, sem kveður á um að árás á eitt NATO-ríki sé árás á þau öll. Andstæðingar ESB-aðildar Íslands hafa reynt að eyða þeirri umræðu að hyggilegt sé fyrir Ísland að ganga í ESB vegna varnarhagsmuna. Rök þeirra eru að með aðild að NATO séu varnarhagsmunir Íslands tryggðir – aðild að ESB bæti þar engu við. Þessi rök andstæðinga ESB-aðildar Íslands halda ekki vatni. Donald Trump, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, var hársbreidd frá því að draga Bandaríkin út úr NATO. Ólíklegt er að Trump verði aftur forseti, þó að það gæti gerst. Hins vegar er mjög líklegt að einhver skoðanabróðir hans verði kjörinn í Hvíta húsið á næstu árum. Einangrunarhyggja og fráhvarf frá viðurkenndum gildum frjálsræðis og mannréttinda sem eru hornsteinn lýðræðis eiga mjög upp á pallborðið í Bandaríkjunum og virðast frekar færast í aukana en hitt. Íslenskum stjórnvöldum ber skylda til að tryggja varnir landsins í bráð og lengd. Reynsla nýliðinna ára sýnir, svo ekki verður um villst, að á sama tíma og hættan á alvarlegum ófriði í okkar heimsálfu hefur marg- faldast er raunveruleg hætta á að Óvíst hvort við getum reitt okkur á NATO og Bandaríkin Ólafur Arnarson n Í vikulokin Bandaríkin dragi sig út úr því vest- ræna varnarsamstarfi sem staðið hefur frá 1949. Hver er þá staða Íslands? Aðildarríki ESB skynja þessa hættu. Óvarlegt er að reiða sig á hernaðarmátt Bandaríkjanna gegn ógn úr austri. Öll ríki sambandsins hafa ákveðið að stórauka útgjöld til varnarmála. Íslenskum stjórnvöldum ber að byggja stefnu landsins í varnar- málum á raunverulegum aðstæðum í heiminum en ekki fortíðarþrá og gamalli heimsmynd. n Suðupunkti í Bíó Paradís Kvikmyndin Boiling Point úr smiðju leikstjórans Philip Barantini er sannkallað meistaraverk. Myndin er öll unnin í einni samfelldri töku og gerist inni á veitingastað á einu kvöldi. Líf yfirkokksins er að liðast í sundur á sama tíma og spennan nær suðupunkti meðal starfsfólks og gesta. Ekki mæta svöng á þessa mynd! Við mælum með Tarot bókinni Í glæsilegri og eigulegri öskju má nú fá á einum stað tarotspil og bók sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Merking spilanna er útskýrð á einfaldan hátt auk þess sem kenndar eru ýmsar lagnir spilanna og hvernig lesa á úr þeim. Tarot-lestur er bráðskemmtileg dægradvöl og frábær samkvæmis- leikur, ekki skemmir fyrir að askjan er prýðilegasta stofustáss. n Finnska kvikmyndagerðar- konan Ira Carpelan er stödd hér á landi vegna Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. Kvikmynd úr smiðju Carpelan, Eyjan hans Múmínpabba, er sýnd á sér- stakri fjölskyldusýningu með íslensku tali í Raufarhólshelli í dag. ninarichter@frettabladid.is Erna Kaaber, kynningar- f u llt r ú i hát íðar innar, lýsir verkum Carpelan sem ótrúlega fallegum og vel gerðum myndum um ævintýraheim Tove Jansson. Þetta er önnur Múmín-myndin frá Carpelan sem einnig leikstýrði kvikmyndinni Vetrarævintýri í Múmíndal frá árinu 2017 sem hlaut ljómandi fínar viðtökur gagnrýn- enda. „Þær færa okkur kyrrð og íhygli sem er svo nauðsynlegt í hröðu umhverfi nútímans,“ segir Erna. „Mínir strákar, þriggja og fimm ára gamlir, elska sögurnar um Múmín- dalinn og íbúa hans. Að sýna þeim þær róar þá frekar en að æsa þá upp, svo að ég er mjög líkleg til að velja þessar sögur þegar þeir vilja sjá barnaefni,“ segir hún glettin. Erna segist sjálf njóta þess að horfa á myndirnar með börnunum. „Ég er ekki eins spennt fyrir sumu öðru efni sem þeir hafa áhuga á. Ég er til dæmis ekki mikill aðdáandi Hvolpasveitarinnar,“ segir hún og hlær. Að sögn Ernu hafa sögurnar um Múmínálfana fylgt henni alla tíð. „Ég hef elskað þessar sögur síðan ég var barn og þó að Snabbi sé einstak- lega vel skrifaður karakter hef ég alltaf verið veikust fyrir Hemúlnum og hans hamfaraspám. Það er eitt- hvað við heimspeking sem hírist undir brú og horfist í augu við eigin tortímingu og þar með heimsins – sem er dásamlega dillandi,“ segir kynningarstjórinn. Erna bætir við að auðvitað elski hún Míu litlu, sem hún lýsir sem dásamlegu hörkutóli, afundinni og úrræðagóðri sem komi alltaf með dásamlegt tvist í söguþráðinn. „Þetta karakteragallerí er bara allt svo skemmtilega hugsað,“ segir hún. „Meira að segja Fillifjonkan er geggjuð með barnahópinn sinn í strollu!“ Sýningin í Raufarhólshelli er klukkan 16.30 og nánari upplýs- ingar um miðakaup má nálgast á heimasíðu kvikmyndahátíðarinnar, riff.is. Sýningin er meðal árlegra sérsýninga RIFF sem haldnar eru á óvenjulegum stöðum og gefa áhorf- endum tækifæri til að njóta kvik- myndamenningar í aðstæðum sem þykja magna áhrif myndanna sem um ræðir. „Á þessum dagskrárlið er lögð áhersla á að para saman viðeigandi kvikmyndir og umhverfi,“ segir Erna. Hún bætir við að sérsýningarnar seljist hratt upp sökum takmarkaðs sætaframboðs. Þetta árið sé sérstætt jarðfræðilegt umhverfi Íslands nýtt til hins ítrasta. Meðal annarra sér- sýninga RIFF þetta árið er sýning á heimildarmyndinni Into the Ice eftir Lars Ostenfeld, sem fjallar um bráðnun jökla og hamfarahlýnun. Sýningin er þann 4. október í íshell- inum í Langjökli. n Múmínálfar hitta börn og fjölskyldur í Raufarhólshelli Stilla úr kvik- myndinni Ævintýri Múmínpabba sem sýnd er í hellabíó í RIFF í Raufarhólshelli í dag klukkan 16.30. MYND/AÐSEND Erna Kaaber er kynningarstjóri RIFF í ár og mikill Múmín- aðdáandi. MYND/AÐSEND 26 Helgin 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.