Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 34

Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 34
„Ég, eins og aðrir sem komnir eru á minn aldur og stunda hreyfingu, var farinn að finna fyrir stirðleika í liðamótum og sting í hnjánum sem reynir oft mest á þegar klumpar eins og ég eru að reyna að skoppa. Svo varð mér til happs að ég sá auglýsingu þar sem mér eldri maður, en ágætis kunningi minn, hann Hartmann hjólari, talaði um hversu ánægður hann væri með bætiefnið Active Joints frá Eylíf. Í kjölfarið fór ég og keypti mér glas af Active Joints og hef eiginlega ekki sleppt úr degi, rúmlega hálfu ári síðar.“ Þetta segir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs og tónlistarmaður. „Ég fann eiginlega strax mun daginn eftir og keypti mér líka Happier Guts frá Eylíf en bæði efnin hafa reynst mér mjög vel. Ég hef nú prófað eitt og annað í gegn- um tíðina og konan mín myndi örugglega segja að henni fyndist fullmikið af nýopnuðum dósum af alls konar heima, því ég er alltaf að leita að einhverju sniðugu, sem svo virkar sumt en flest ekki, en þetta virkar svo sannarlega vel og ég gæti ekki verið ánægðari með vöruna,“ segir Einar. Hann er mikið á faraldsfæti í lífi sínu og starfi. „Ég hjóla mikið og labba, passa að ganga upp og niður stiga í stað þess að taka lyftuna og finnst Active Joints hafa gjörbreytt leiknum fyrir mig. Fyrir mann eins og mig, sem er í yfirvigt, og þótt ég hafi oft verið í meiri yfirvigt en ég er í dag, þá fylgir mikilli hreyfingu áreynsla á hnén. Ég fann alltaf fyrir seyðingi og sting í hnénu en það er bara alveg farið. Því duga engar afsakanir lengur; bara gjöra svo vel að fara út að hreyfa sig og núna er það bara gaman.“ Þarf að sannfæra hausinn Einar fer fyrir Votlendissjóði og því fylgja bæði ferðalög og f lakk. „Í vinnunni geng ég mikið úti í náttúrunni til að skoða mýrlendi og þá þyngist oft labbið í þýfnum og blautum jarðvegi og mikið um skröngl og brölt, en nú finn ég ekkert fyrir því. Áhugamálið felst svo í því að ég og smá hópur í kringum mig höldum íþrótta- og af þreyingarmót fyrir fólk á miðjum aldri, svo sem hjólamót, utanvegahlaup og hitt og þetta, og því fylgir líka undirbúningur við að skoða leiðir og þvælast á vett- vangi, því á einni slíkri keppnis- helgi þarf að djöflast um og labba f leiri tugi kílómetra, og þá er ekki verra að vera með liðina vel smurða,“ segir Einar ánægður með árangurinn. „Þegar maður hefur glímt við verki og er í yfirvigt er ríkt í manni að reyna að komast hjá því að hreyfa sig af því maður veit að því fylgir áreynsla og vont nudd á hnjám, en þegar það hverfur, eins og hefur gerst hjá mér með Active Joints, þá tekur smá tíma að sann- færa hausinn um að kvíða því ekki lengur að hlaupa upp í móti eða skjótast það sem þarf. Hausinn þarf að venjast því að hafa ekki lengur áhyggjur af verknum en svo kemur að því að hann segir: „Þetta verður allt í lagi; verkurinn er farinn. Gott! Hlaupum bara af stað!“ og þá gerir maður einmitt það,“ segir Einar kátur. Kominn á fullt með gítarinn Einar segir mikinn lífsstílslétti að finna ekki lengur seyðing eða sting í hnjánum og hann er ekki frá því að Active Joints hafi góð áhrif á fleiri liði líkamans. „Svei mér ef ég er ekki líka orðinn fimari í fingrunum því ég er farinn að setjast oftar niður með gítarinn og kannski það sé Active Joints að þakka. Hver veit nema maður semji jólalag,“ segir hann glettinn og hlær. „Undanfarin ár hef ég verið heldur rólegri í tónlistinni en ég vildi, en nú er ég aðeins farinn að spá og spekúlera meira og í febrúar ætla ég að halda kassagítarstón- leika hér og þar á landinu með þeim sem hafa gert flest lögin mín þekkt. Þar tökum við lagið, ég og Gunni Óla, Magni, Skímó og kannski Klara í Nylon; fyrst og fremst okkur til skemmtunar og þeim sem hafa gaman af því að hlusta á okkur,“ segir Einar, fullur tilhlökkunar og létt að vera laus við verkina. „Ég mæli hiklaust með Active Joints og Happier Guts frá Eylíf og svo finnst mér ekki verra að vita til þess að bætiefnin frá Eylíf eru framleidd hér heima; úr íslenskum hráefnum úr hreinni, íslenskri nátt- úru.“ n Eylíf vörurnar fást í öllum apó­ tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og Melabúðinni. Ókeypis heimsend­ ing ef keypt er fyrir 7.000 krónur eða meira á eylif.is. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Einar Bárðarson segir áhugavert að sannfæra þurfi hausinn um að verkurinn sé farinn en nú sé hann tilbúinn og farinn að hjóla og ganga um þúfur, mýrlendi, fjöll og firnindi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Heilsan er dýrmæt Vörulína Eylíf býður upp á fimm frábærar heilsuvörur sem reynst hafa fólki vel. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair, Happier Guts og nýjasta varan Stronger Liver. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum aukefnum er bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin að vörulín­ unni kom til vegna þess að mig langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í sam­ starfi við sérfræðinga frá Matís. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau stuðla að heilbrigði og sveigjanlegri líkama því þá erum við færari um að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsufarsvandamál,“ segir Ólöf Rún. Ég fann alltaf fyrir seyðingi og sting í hnénu en það er bara alveg farið. Því duga engar afsakanir lengur; bara gjöra svo vel og fara út að hreyfa sig og núna er það bara gaman. Einar Bárðarson Einar ákvað að prófa líka Happier Guts frá Eylíf þegar hann fann að Act­ ive Joint var árangursríkt fyrir liðina. Active Joints er eins og aðrar vörur frá Eylíf unnið úr íslenskum hrá­ efnum og án allra aukefna. 2 kynningarblað A L LT 1. október 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.