Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 35

Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 35
Einar Örn var orðinn úrkula vonar eftir svefnlausar nætur af völdum sóríasis þegar móðir hans benti honum á Psoria frá MariCell; dugandi lausn sem bætti lífsgæði Einars til mikilla muna. „Ég var þrettán ára þegar sóríasis fór fyrst að láta á sér kræla. Þessi hvimleiði sjúkdómur kom svo og fór næstu árin en þegar ég nálgað- ist þrítugt fór ástandið að versna til muna,“ segir Einar Örn Grettisson, sem gekk lækna á milli til að fá bót meina sinna og prófaði alls kyns smyrsl og stera sem ekkert bitu á sárin. „Svo gerðist það að ég fór utan til Svíþjóðar í nám og lifði á dósamat og óhollustu sem fátækur náms- maður. Það gerði allt verra enda hefur lélegt mataræði bein áhrif á sóríasis og þegar verst lét var ég undirlagður af stórum sárum og hrúðri á handleggjum og fótleggj- um. Ég var hættur að geta sofið á nóttunni fyrir viðstöðulausum kláða. Þá upplifði ég í fyrsta skipti örvæntingu og að sjúkdómurinn olli mér verulegu hugarangri,“ segir Einar, sem hóf aftur göngu á milli húðlækna og meltingarlækna í von um lækningu, en hjálpin kom frá móður Einars sem starfar í heil- brigðisgeiranum. „Mamma hafði heyrt um árangur af PSORIA frá MariCell og þá var ekki eftir neinu að bíða. Ég dreif mig í að kaupa það, bar það á sárin í þrjá daga og fann fljótlega mun. PSORIA sló strax á kláðann og í dag finn ég ekki fyrir neinu og sef vært allar nætur,“ segir Einar. „Sóríasis lýsir sér með slæmum sárum sem líta út fyrir að vera að gróa en gera það ekki. Mann klæjar mikið í þau og hjá mér var þetta komið upp að öxlum og í hársvörð- inn líka. Í dag sést ekki á mér að ég sé með sóríasis og það háir mér ekkert. Ef ég finn fyrir einkennum ber ég strax á mig MariCell og finn að allt lagast fljótt og vel.“ „Fyrir mig var MariCell PSORIA lausnin en það er eina húðmeðhöndl- unarvaran sem hefur virkað á mig alla leið,“ segir Einar að lokum. Íslensk framleiðsla sem inniheldur ómega3-fjölómett- aðar fitusýrur MariCell PSORIA er einstaklega virk vara sem er sérþróuð til meðhöndlunar á þykkri, hreistraðri húð og einkennum sóríasis. Varan dregur úr kláða, losar húð- flögur, er rakagefandi og eykur vatnsbindigetu húðar- innar. MariCell™ eru íslenskar húð- meðhöndlunarvörur framleiddar á Ísafirði og innihelda mOmega-3™ fjölómettaðar fitusýrur, ávaxta- sýrur og karbamíð. Vörurnar eru CE-merktar og flokkast því ekki sem snyrtivörur heldur lækninga- vörur. Þær innihalda hvorki stera né paraben og með ávísun læknis greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta kostnaðarins. MariCell-vörulínan er þróuð af Baldri Tuma Baldurssyni húð- sjúkdómalækni og er notuð til að meðhöndla ýmsa húðkvilla. Í dag eru fjórar tegundir af MariCell til sölu í apótekum sem gefið hafa góða raun. Hvernig MariCell virkar: Efsta lag húðarinnar er búið til úr 15–20 lögum af frumum. Neðstu frumur húðarinnar eru lifandi, en eftir því sem ofar dregur þorna þær, deyja og mynda hyrnislag. Á milli þurru frumanna er fylliefni, sem er ríkt af fitusýrum. Þessar fitusýrur halda hyrnislaginu mjúku og vatnsheldu. Undir ákveðnum kringumstæð- um rýrnar það þannig að hyrnis- lagið opnast. Þetta veldur því að húðin bólgnar og verður þrútin, rauð og þurr. Bólguviðbrögð húðarinnar stafa meðal annars af auknu gegndræpi húðarinnar sem veldur því að ertandi efni komast inn í hana. Hreistur myndast þegar mikið magn dauðra fruma safnast á yfirborði húðar og hún byrjar að flagna, sem veldur kláða og óþægindum. Þá getur verið nauð- synlegt að bera á hana, en mOmega3™ tæknin er gerð til þess að snúa þessari þróun við. MariCell PSORIA inniheldur þrjú efni sem vinna saman að því að auka heilbrigði millifrumuefnisins í hyrnislaginu: n mOmega3TM n 5% ávaxtasýru n 5% karbamíð Sölustaðir: Apótek Laus við einkenni sóríasis MariCell™ PSORIA með- höndlar húð með einkenni sóríasis og hreisturs- myndun. Einar Örn Grettisson gat ekki orðið sofið fyrir kláða og vanlíðan af völdum sórí- asis þegar hann prófaði Mari- Cell™ kremið frá Kerecis. Fréttablaðið/ Eyþór Ég bar PSORIA á sárin í þrjá daga og fann fljótlega mun. Það sló strax á kláðann og í dag finn ég ekki fyrir neinu og sef vært allar nætur. Einar Örn ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 1. október 2022
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.