Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 81

Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 81
Það er mjög einfalt að skrá viðveru að heiman og hægt að merkja sérstaklega að sé unnið utan vinnustaðar. Þórunn Sigfúsdóttir Margt hefur breyst á skömm- um tíma í rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi og víðar. Starfsfólk vinnur nú jöfnum höndum á vinnustað og í fjarvinnu. Mikilvægt er fyrir stjórnendur fyrirtækja og mannauðsdeilda að halda vel utan um hlutina. Tímon-hópurinn hjá Trackwell er samsettur af fólki með mikla og fjölbreytta reynslu. Á vefsíðu Tímons segir að fólkið í hópnum þekki aðstæður íslenskra fyrir- tækja, hafi umhyggju fyrir við- skiptavinum sínum og leggi sig ávallt fram um að leysa úr þeim áskorunum sem upp koma. Sjálft kerfið, Tímon, veitir alls- herjar utanumhald um verkefni og starfsfólk fyrirtækja og stofnana. Þórunn Sigfúsdóttir, yfirmaður Mannauðslausna hjá Trackwell, svaraði nokkrum spurningum um tímaskráningarkerfið Tímon, en Tímon heldur meðal annars utan um tíma-, verk- og vaktaskráningu mannauðs. Er stimpilklukka tímaskekkja? Nei, alls ekki, við lítum svo á að tímaskráningarkerfi sé mælitæki fyrir stjórnendur og mannauðs- stjóra sem bera ábyrgð á líðan starfsfólks í starfi og ekki má heldur gleyma ávinningi starfs- fólks af því að fylgjast með eigin vinnuframlagi og réttindum. Tilgangur viðverukerfis getur verið svo miklu víðtækari en að mæla tímafjölda og reikna dag- vinnu og yfirvinnu. Viðverukerfi getur svarað spurningum eins og hvað fer raunverulega mikil vinna í ákveðið starf? Er einhver alltaf að vinna umfram vinnuskyldu og þarf mögulega að ráða fleiri? Eru veikindi óeðlilega mikil og þarf að grípa inn í áður en álag leiðir til kulnunar? Treystum við ekki starfsfólki? Jú, að sjálfsögðu treysta flestallir stjórnendur starfsfólki sínu, það er algengur misskilningur að tíma- skráningarkerfi snúist um van- traust. Sjálft kerfið, Tímon, veitir allsherjar utanumhald um verk- efni og starfsfólk hjá fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum. Þetta snýst frekar um að hafa gögn á reiðum höndum til að greina vinnuframlag, flagga og grípa inn í óeðlilegt álag og fá yfirsýn yfir fjarvistir. Mælum við árangur í verki eða viðveru? Skráning á verk er oft betri mælikvarði á árangur. Við hjá Trackwell skráum til dæmis alla okkar vinnu í verkskráningarkerfi Tímon en notum síðan við- veruupplýsingar í allt hitt, það er vísun þjónustufyrirspurna, skipu- lagningu orlofs og utanumhald réttinda starfsfólks. Er lausn í boði fyrir aðila sem vilja aðeins skrá fjarveru? Já, Tímon býður upp á fjarveru- skráningu fyrir fyrirtæki sem telja ekki þörf á að starfsfólk stimpli sig inn heldur skrái eingöngu fjar- veru. Það verður sífellt algengara að fyrirtæki með fastlaunafyrir- komulag skrái eingöngu orlof, veikindi og réttindi. Í Tímon er líka hægt að hafa blandað fyrir- komulag, fjarveruskráningu hjá hluta starfsfólks og viðveruskrán- ingu hjá öðrum hluta. Nú er heimavinna orðin algeng- ari. Hvernig styðjið þið við það? Það er mjög einfalt að skrá við- veru að heiman og hægt að merkja sérstaklega að sé unnið utan vinnustaðar. Sem dæmi er hægt að nota appið okkar til að skrá sig í vinnu en eins er hægt að hafa smá- forrit í tölvunni sem minnir þig á að skrá þig inn þegar þú kveikir á tölvunni. Þannig skiptir ekki máli Er stimpilklukka tímaskekkja? Þórunn Sigfús- dóttir, yfir- maður mann- auðslausna hjá Trackwell, segir fyrirtæki í auknum mæli setja fjarvinnu- stefnu þar sem starfsfólk er hvatt til að vinna heima að hluta. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Tímon er aðgengilegt með appi í gegnum snjallsíma. Hægt er að nýta verkskráningar til að útbúa reikninga. Í Tímon er mælaborð með upplýsingum fyrir hvern not- anda og góða yfirsýn fyrir stjórnendur. hvar þú ert, þú getur alltaf skráð vinnutímann þinn. Fyrirtæki eru í auknum mæli að setja fjarvinnustefnu þar sem starfsfólk er hvatt til að vinna heima einhverja daga í mánuði. Þannig nýtist Tímon í fjarvinnu- stefnunni til að upplýsa auðveld- lega hver er hvar. Að lokum, eru einhverjar nýjung- ar í vændum í Tímon? Tímon er í stöðugri nýþróun og erum við að leggja lokahönd á endurnýjun kerfis, þar sem áhersla er lögð á meiri sjálfsafgreiðslu starfsfólks. Þessa dagana erum við að kynna nýja vídd í mæla- borðinu okkar sem gerir kleift að bera saman þróun veikinda á ykkar vinnustað við önnur íslensk fyrirtæki, og sjá þannig hvernig ykkar viðmið eru í samanburði við meðaltal annarra íslenskra fyrir- tækja. Við verðum síðan með bás á Mannauðsdeginum í Hörpu og hvetjum fólk til að koma og kíkja á okkur. n Tímon, Laugavegi 178, 105 Reykjavík kynningarblað 21LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.