Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 94

Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 94
Æskuminningar mínar eru upp- fullar af því að eyða dögunum á veitingastað foreldra minna og horfa á móður mína elda mismunandi rétti frá hinum fjölbreyttu svæð- um Filippseyja. Jon Cabral Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Tveir matreiðslumeistarar kóreska veitingastaðarins Atoboy í New York mæta til leiks á Héðni Kitchen & Bar dagana 6. til 7. október. Atoboy byggir á hefðum kór- eskrar matargerðar og notar New York-borg sem innblástur og leiksvið. Matreiðslumenn Atoboy hafa sett saman einstakan fimm rétta matseðil, þar sem íslenskt hráefni mætir kóreskum New York-stíl. Hægt verður að skella sér í vín- pörun með seðlinum til að gera upplifunina enn ánægjulegri. „Við erum mjög spennt að geta loksins verið með viðburð þar sem við fáum til okkar matreiðslumeist- ara frá virtum stöðum úti í heimi til að koma til Íslands. Þeir Mark Nobello og Jon Cabral eru metn- aðarfullir matreiðslumeistarar sem hafa mikla ástríðu fyrir matargerð, en þeir hafa starfað undir hand- leiðslu eiganda Atoboy og Atomix, sem er tveggja stjörnu Michelin- veitingastaður sem er á lista yfir 50 bestu veitingastaði heims. Atoboy hefur verið Michelin Bib Gour- mand síðan 2017 og er nú með Mic- helin-plötu viðurkenningu. Töfrandi réttir frá Atoboy í New York Matreiðslu- meistararnir Mark Nobello og Jon Cabral munu mæta hingað til lands eftir helgi og munu spreyta sig í eldhúsinu á Héðni Kitchen & Bar. MYND/AÐSEND QUICK CALM Vellíðan - skerpa Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is FLJÓTVIRKT FRÁBÆR MEÐMÆLI Landsliðskokkar Héðins eru spenntir að taka á móti þeim Mark og Jon, vinna með þeim þessa dagana og læra eitthvað nýtt,“ segir Elías Guðmundsson, annar eigandi staðarins. Gaman að skapa ný tengsl Karl Viggó Vigfússon, meðeigandi Elíasar, segir alltaf gaman að skapa ný tengsl á milli staða. „Við hvetjum öll sem hafa áhuga á kóreskri matargerð, og bara góðum mat, að kíkja til okkar þessa tvo daga. Þetta verður mjög spennandi, það verður plötusnúð- ur á fimmtudaginn og við höfum sett saman vínpörun sem gefur upplifuninni enn meira bragð. Þá verður einnig hægt að skella sér í frískandi kokteila. Eldamennskan fer nánast öll fram yfir grillinu okkar sem er úti í sal svo það verður smá sýning úr þessu, lifandi og opið eldhús”, segir Karl Viggó, afar spenntur að fá matreiðslu- meistarana í heimsókn. Vert er að geta þess að Atoboy hefur fengið frábæra umfjöllun frá því þeir opnuðu árið 2016 og hefur meðal annars verið fjallað um staðinn í NY Times, Michelin Guide og OAD (Opinionated About Dining). Með ástríðu fyrir matargerð Matreiðslumeistararnir Mark Nobello og Jon Cabral eru báðir yfir sig spenntir að koma hingað til lands og fá að spreyta sig í eldhús- inu á Héðni Kitchen & Bar. Mark er fæddur og uppalinn í Queens, New York, en áhugi hans fyrir því að hasla sér völl í matreiðslu var inn- blásinn af foreldrum hans og hæfi- leikum þeirra til að búa til töfrandi máltíðir úr einföldu hráefni en einnig að nota mat sem lækningu og matargerð sem helgisið. Þessa stundina hefur Mark áhuga á mismunandi aðferðum til að varðveita mat, til dæmis gerjun. Matarbúr Atoboy er stórt og fjöl- breytt og sum gerjuðu hráefnin eru yfir tveggja ára gömul. „Gerjun gerir manni kleift að nýta skammvinnt hráefni í miklu lengri tíma. Það er áskorun fyrir mig að upphugsa nokkrar árstíðir fram í tímann fyrir þróun mat- seðils. Þessa dagana vinn ég að því að fara yfir gjöfula uppskeru síðsumarsins og hvernig best er að varðveita og geyma tómata, kúmquats, steinabláber (e. huckle- berry) og sumarpipar,“ segir Mark, sem hefur mikla ástríðu fyrir matargerð. Uppáhaldsréttir Marks eru meðal annars hefðbundinn Kare Kare, sem er filippseyskur nauta- og hnetupottréttur, kóresk svínasíða með ssamjang og hrís- grjónum, og sakbitna sælan er kóreskar Shin-skyndinúðlur með salti og edik-flögum. Mark grunaði ekki að leið hans gæti legið til Íslands. „Mér datt aldrei í hug að ég gæti ferðast til Íslands og í rauninni að elda á Íslandi, ef út í það er farið. Sem fæddur og uppalinn New York-búi hef ég ekki haft mörg tækifæri til að fara til útlanda og segja sögur mínar með mat. Ég er þakklátur fyrir þessa reynslu og fyrir tækifærið að vera full- trúi Atoboy erlendis, á meðan ég læri meira um menningu og sögu íslenskrar matargerðar með teyminu hjá Héðni Kitchen & Bar,“ segir Mark fullur tilhlökkunar. Uppalinn á veitingastað Kokkurinn Jon er fæddur og upp- alinn í Guam þar sem foreldrar hans áttu lítinn filippseyskan veitingastað. „Æskuminningar minnar eru uppfullar af því að eyða dögunum á veitingastaðnum og horfa á móður mína elda mismunandi rétti frá hinum fjölbreyttu svæðum Filippseyja,“ segir Jon dreyminn á svip. Það var á þessum fyrstu árum sem hann vildi prófa að starfa við matreiðslu, sem svo leiddi til þess að hann skráði sig í Culinary Institute of America í Hyde Park, New York. Jon vonar að geta einn daginn deilt filippseyskum mat með umheiminum alveg eins og móðir hans gerði, en með fágaðari sjónarhorni, en hún er hans mesti innblástur. „Fyrir utan matreiðslu í eld- húsinu hef ég einnig mikinn áhuga á því sem fer fram í matsalnum og fylgist með list gestrisninnar í f læði þjónustu og samskipta við gesti.“ Uppáhaldseldunaraðferð Jons í matreiðslu er að nota kolagrill, sem á stóran þátt í ást Guam og Hawaii á grilluðum mat. Sambland af ólíkum þáttum sem grillið gefur matnum, svo sem reyk, áferð og stökkar brúnir, sem er einmitt það sem hár hiti viðarkola myndar og gerir grillmatinn ómótstæðilegan. „Það er mér heiður að fá tæki- færi til að taka þátt í samstarfi Héðins og Atoboy. Ég er ekki bara spenntur að heimsækja Ísland í fyrsta skipti, heldur líka að læra meira um menninguna, matinn og hráefnin sem landið hefur upp á að bjóða. Ég hef alltaf notið útivistar og metið náttúruna og Ísland virðist vera fullkominn staður til að njóta þess,“ segir Jon, sem er orðinn afar spenntur fyrir Íslands- förinni. n 6 kynningarblað A L LT 1. október 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.