Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 116

Fréttablaðið - 01.10.2022, Page 116
tsh@frettabladid.is Mexíkóski auðjöfurinn Martin Mobarak sætir nú rannsókn mexí- kóskra yfirvalda fyrir að hafa vís- vitandi brennt teikningu eftir lista- konuna Fridu Kahlo, sem metin er á 10 milljónir Bandaríkjadala, and- virði rúmra 1,4 millarða íslenskra króna. Mobarak, sem er athafnamaður og stof nandi raf my ntarinnar AGCoin, hélt viðburð í glæsihýsi sínu á Miami, Flórída, þann 30. júlí síðastliðinn, þar sem gjörningurinn átti sér stað og hafa myndbönd af honum verið birt á netinu. Mobarak kveðst hafa umbreytt verki Fridu Kahlo, sem ber titilinn Fantasmo- nes Siniestros og er blek- og vatns- litamynd sem listakonan teiknaði í dagbók sína, í svokallaða NFT-mynd (e. non-fungible token) sem fram- leidd var í 10.000 stafrænum ein- tökum er boðin voru til sölu. Í myndbandi sem birt var á You- Tube sést Mobarak afhjúpa mynd- ina, fjarlægja hana úr ramma, stilla henni upp á kokteilglasi fullu af þurrís og eldsneyti sem hann kveik- ir svo í fyrir framan hóp af fólki. „Ég er stoltur að segja frá því að þessi viðburður mun leysa sum af stærstu vandamálum heimsins til heiðurs Fridu Kahlo,“ er haft eftir Mobarak í myndbandinu. Hann staðhæfði að hluti ágóðans af söl- unni myndi renna til góðgerðar- samtaka og stofnana á borð við Fridu Kahlo safnið og Palacio de Bellas Artes í Mexíkóborg. Ekki er vitað hvort um er að ræða hið upprunalega verk eftir Kahlo, jafnvel þótt Mobarak hafi sagt að svo sé. Mobarak segist sjálfur hafa keypt verkið af listaverkasalanum Mary-Anne Martin árið 2015, en Martin hefur sjálf neitað því að hafa selt honum verkið og kveðst ekki hafa kunnað nein deili á honum. Lista- og bókmenntastofnun Mexíkó tilkynnti á mánudag að hún myndi rannsaka hinn meinta bruna, á grundvelli þess að verk Fridu Kahlo séu álitin þjóðarger- semar þar í landi. n Birti myndband af sér að brenna verk eftir Fridu Kahlo Í myndbandi á YouTube sést mexíkóski auðjöfurinn Martin Mobarak koma verki Fridu Kahlo fyrir á kokteilglasi og kveikja í því. MYND/SKJÁSKOT Sara Martí Guðmundsdóttir, leikhússtjóri Tjarnarbíós, fer yfir yfirstandandi leikár hjá leikhúsinu, en hvergi eru fleiri sýningar frumsýndar en á fjölunum þar. ragnarjon@frettabladid.is „Við erum það leikhús sem sýnir flestar leiksýningar af öllum á land- inu,“ segir Sara Martí Guðmunds- dóttir, nýr leikhússtjóri Tjarnar- bíós, en hún tók við starfinu í apríl á þessu ári. „Það eru 28 leikhópar að fara að sýna hjá okkur á árinu og þá er ég ekki að telja með allar þær hátíðir sem eru með sýningar hérna en þá væru þetta í kringum 40 leik- hópar,“ segir Sara, sem segir ekkert leikhús sýna verk eftir svo marga mismunandi hópa. Tjarnarbíó hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem sá staður þar sem frumsamið og framsækið efni birt- ist íslenskum leikhúsgestum hvað oftast og spilar því leikhúsið lykil- hlutverk í grasrót leikhúsmenn- ingar Reykjavíkur. „En það er varla hægt að kalla okkur grasrót lengur þar sem við erum vinsælasti uppistandsstað- urinn á landinu núna. Það gengur rosalega vel og ég vil ekki koma fram eins og ég sé að kvarta. Það gengur svo frábærlega fyrir utan það eitt að við verðum stöðugt að vísa fólki frá af því það bara er ekki pláss,“ en leikhúsið fær meðal annars nær daglega fyrirspurnir frá erlendum leikhópum sem leitast við að setja upp efni sitt á íslenskum vettvangi. „Þannig erum við að sinna svo ótrú- lega miklum fjölda og mikilli breidd af sviðslistinni. Við erum búin að búa til mjög fallega nýja heimasíðu og það er búið að taka allt húsið í gegn hérna í anddyrinu. Þegar fólk kemur hérna inn núna þá tekur það oft andköf,“ segir Sara Martí og hlær. Sýningar í fullum gangi Af þeim sýningum sem nú eru í gangi segir Sara af mörgu að taka. „Jésú er til, hann spilar á banjó, er sýning sem nú er að klárast. Hákon Örn úr uppistandshópnum VHS semur og leikur sjálfan sig í leit að hinum fullkomna manni sem er banjóspilari í Vesturbæjarlaug. Hljómsveitin Inspector Spacetime semur og f lytur músík á sviðinu,“ segir Sara Martí. „Svo er kveðju- sýning Karls Ágústs, Fíf lið, á fullu róli og selst upp nánast hvert kvöld.“ „Leikhópurinn Lotta er að sýna hjá okkur „Pínulitlu Mjallhvíti“ og eftir áramót verður Lalli töframaður með töfrasýningu fyrir öll börn óháð tungumáli, því hún verður án orða,“ segir Sara Martí, en leikhúsið sýnir einnig uppistandssýningar samhliða hefðbundnari leiksýn- ingum. „Ari Eldjárn og Jono Duffy voru hjá okkur í september. Bergur Ebbi rokselur allar sýningar sínar núna fyrir áramót og heldur áfram eftir áramót. Madam Tourette, í flutningi Elvu Daggar, verður svo frumsýnd í lok október,“ segir Sara Martí. Ekki af verri endanum Eftir áramót taka svo nýjar sýningar við hjá leikhúsinu og segir Sara Martí þær ekki síðri en þær sem nú eru í gangi. Úrval sýninga á árinu er meira en hægt er að nefna í þessari umfjöllun, en Sara Martí segir að hægt sé að kynna sér allar sýningar, komandi og þær sem nú eru í boði, á glænýrri heimasíðu leikhússins tjarnarbio.is. Meðal þeirra sýninga sem verða eftir áramót er Ég lifi enn, sönn saga, sem er verk eftir Rebekku A. Ingi- mundar og Þóreyju Sigþórs. „Í verkinu fá þær til sín þekkta eldri leikara til að vera í öldunga- ráði og eins hafa þær fengið til liðs við sig yngri listamenn til að vera í ungráðinu. Saman hafa þessi ráð áhrif og gagnrýna framvindu þess atburðar sem gerist á sviðinu,“ segir Sara Martí og telur upp meira úrval. „Venus in Furs, hið þekkta bók- menntaverk, verður frumsýnt í janúar og er í leikstjórn Eddu Bjarg- ar Eyjólfsdóttur og svo verðum við með verkið Samdrætti, eftir breska leikskáldið Mike Bartlett, sem verð- ur frumsýnt í febrúar og er í leik- stjórn Þóru Karítasar. Með aðalhlut- verk fara Þórunn Lárusdóttir og Íris Tanja Flygenring,“ segir Sara Martí. Gamanleikritið Óbærilegur létt- leiki knattspyrnunnar verður svo frumsýnt í byrjun mars. „Þar kynn- umst við fjórum karlkyns vinum, þar á meðal tónlistarmanninum Valdimar. Þeir hittast við og við og horfa á fótbolta saman. Við kynn- umst svo hverjum þeirra þegar við færumst í tíma og lærum að skilja karlamenninguna, klefastemning- una og auðvitað ást þeirra á fót- bolta,“ segir Sara Martí. „Djöfulsins snillingur eftir Reykja- vík Ensemble er svo sálfræði tryllir með íslenskum/alþjóðlegum sviðs- listahóp og verður frumsýnt í lok mars,“ segir hún og bætir við: „Hvað ef sósan klikkar? er svo nýtt íslenskt verk eftir Gunnellu Hólmarsdóttur en hér býður hún áhorfendum í sjónvarpsstúdíó til að verða vitni að matreiðsluþætti. Hún skoðar svo áföll kvenna í bland við matreiðslu- bækur og þætti síðustu aldar og úr verður drepfyndin taugatrekkjandi upplifun,“ segir hún. Sterkt eftir erfiða tíma Sara Martí tók við af Friðriki Frið- rikssyni sem sinnti starfinu í fimm ár. Hún segir leikhúsið standa í mikilli þakkarskuld við Friðrik, sem hafi haldið því gangandi í gegnum faraldurinn. „Hann hélt þessu bara á lífi í gegnum Covid,“ segir Sara Martí. „Ég myndi segja að það sé svolítið honum að þakka að starfsemin sé enn í gangi. En hann varð að segja öllum upp á þeim tíma. Það er eigin- lega bara kraftaverk að hann hafi ekki skilið leikhúsið eftir í einhverri skuldasúpu,“ segir Sara Martí, sem segir þó leikhúsið standa styrkum fótum enda hafi Tjarnarbíó aldrei verið sótt eins vel og nú. n Það sýnir ekkert leikhús fleiri sýningar en við Sara Martí Guð- mundsdóttir, leikhússtjóri Tjarnarbíós. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Gunnella Hólmarsdóttir mun elda fyrir leikhúsgesti í lifandi gaman- sýningu. Samdrættir eftir Bretann Mike Bart- lett verður frumsýnt í febrúar og er í leikstjórn Þóru Karítasar. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunn- ar er gamanverk þar sem áhorfendur kynnast fjórum karlkyns vinum. Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð ve rð ge tu r b re ys t á n fyr irv ar a. Skíðaferða Fjölbrey úrval 595 1000 www.heimsferdir.is Flug & hótel frá 124.250 Frábært verð! Í JANÚAR & FEBRÚAR 52 Menning 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.