Viljinn - 01.02.1942, Blaðsíða 4
4 -
VERÐMSTI SVEITALÍFSINS
A.T7.Spalding
Eitt af hinu 'þýðingarmesta fyrir æskulýð vorn er að
læra að þekkja Guð af verkum hans - læra að sjá hann, finna
hann og hugsa um hann, jé, tala við hann, úti í hinu'stóra
musteri náttúrunnar, í hinum kyrláta skógi og undir hinni
háu himinhvelfingUo Þeir eru ekki svo margir, sem gera þetta
á vorum döguiru Vér lifum á vélaöldinni, á beim tíma, þegar
allt er óstöðvandi flýtir, sífellt ónæði, aílt verður að
ganga fyrir sig í me-sta flýti. Vér lifum á tíma stórborganna
fólkið þyrpist saman í borgir, þar sem eigi er hægt að sjá
Guð fyrir öllu því, sem manna hendur smíða, og þar sem menn
eiga of annríkt til að hugsa um Guð.
Eg trúi því af öllu mínu hjarta, að það fólk, sem und-
irbýr sig til að mæta Jesú, verði að mæta honum nú, og tala
við hann nú. Eg viðurkenni, að það er hægt að mæta Jesú og
tala við hann á götum borgarinnar, já, jafnvel inni í þrengst
fangelsi hennar, En eg trúi ekki, að þeir séu margir, sem
géra það. Vér verðum sjálfsagt allir að velja eins og Abra-
ham og Lot — vér verðum að ákveða, hvort vér eigum að taka
oss bólfestu í Sódómu eða úti á hálendi Kanaan.
Margir af ykkur eru fæddir í borginni og þið eigið
kanBske ekki svo hægt með að elska sveitina og náttúruna,
en eg held að það tilhejiri kristiiegri menntun, að læra að
elska sveitalífið. Til þess að glæða þessa hneigð er gott
að lesa rit, sem hvetja oss til að elska náttúruna, og veita
oss fræðslu \im hina andlegu lærdóma, sem vér getum sótt þaðan
Þér sem búið í sveitinni, ættuð að nota ykkur þessi
forréttindi sem allra best. Þér ættuð aldrei að þrá borg-
'ina. Minnist barna Lots. Mörgum, sem búa í sveit, þykir
leiðinlegt þar, vegna þess að þcir hafa ekki lært að rann-
saka náttúruna og njóta hennar eða leita Guðs þar úti.
Viljir þú rannsaka jurtir þær og skepnur, sem þú ert \mokringd-
ur af, svo og himininn yfir höfði þér, og þar að auki lesa
Ritninguna og aðrar gagnlegar bækur og blöð,þá mun þér
finnast sem þú sért heima í Guðs mikla húsi, ög þig mun ekki
V I L J I N N