Viljinn - 01.02.1942, Blaðsíða 5
- 5 -
langa til að yfirgefa það til þess að fara inn í borgina,
nema þess væri nauðsyn til "þess að gera eitthvað fyrir Guð.
Enok og Ábraham gengu með Guði úti í náttúrunni, og Móse er
dæmi um mann, sem sneri við og komst í sambandið við Guð úti
í náttúrunni.
Það er tvennt, sem iþú átt að gera til þess að hafa
meira gagn af náttúrunni. í fyrsta lagi átti að læra að
þekkja þau blóm, tré, fugla, skordýr og önnur dýr, sem eru
nálægt þér. Þú étt að læra að þekkja nöfn þeirra,
eiginleika og lifnaðarhætti.' Þú átt að læra að þekkja nöfn-
in á hinum ýmsu tegundum skýja, stjörnunum og stjörnumerkj-.
unum. Það eru til bækur, 's'em þú getur notað þér. til hjálp-
ar í þessu efni. En' þú verður að gera meira en að lesa um
það, þú verður að rannsaka sjálfa.náttúruna. .
í öðru lagi verður þú að kynna þér bækur og rit, sem
fjalla um néttúruna. Biblían ér ágæt.námsbók, einnig í þessu
efni. Athugaðu fyrstu kaflana í fyrstu Mósebók, síðari
hluta Jobsbókar, marga af sálmunum, vissa hluta af spádóms-
bók Jesaja og dæmisögur Jesú, Náttúrulýsingar E.G.White í
"Dæmisögum Krists" , og öðrum bókum-;hennar, eru líka mjög
mikils virði. Þá eru og margir aðrir höfundar, sem bæði í
bundnu og óbundnu máli draga'upp fyrir oss mynd af hinu fagra
í néttúrunni. Það hefur þýð'ingu fyrir þroska vorn, að við
lærum utanbókar vers úr Biblíunni og góðum ljóðum. Það jnun
skapa þá venju að hugsa um göfuga og,- fagra hluti, og það mun
skapa hjá oss meiri kærleika til hinnar miklu lærdómsbókar
Guðs - náttúrunnar.
J.G.J. þýddi.
UMMÆLI BLAÐAÍÆANNS Og þeir fara í hlýðni til þess að gegna
(Frh.frá bls.3) skyldunni og kölluninni.
Eg get ekki stillt mig um að segja,
að eg undrast stórlega það starf, sem Aðventistar inna af
hendi. Sannlega gefa þeir hinum kristna heimi gott eftir-
dæmi í trúmennsku, fórnfýsi, helgun og éhuga fyrir boðun
hins eilifa fagnaðarboðskapar. Eg finn löngun hjá mér til
að stökíþra beint út í fremstu herlínuna með þeim og rétta
þeim hjálparhönd í hinu góða starfi þeirra. Já, í raun og
veru hefi eg akveðið að gera það. Vilt þú líka vera með?
V I L J I N N