Viljinn - 01.02.1942, Blaðsíða 10

Viljinn - 01.02.1942, Blaðsíða 10
- 10 - safnast til skemmtana og draga þannig að sér athygli annarra. Stundum ginna þeir unga menn og konur, sem leitast við að vera kristinn í orðsins sönnu merkingu, til að taka þátt í slíkum skemmtunum með sér. Þeir, sem eigi vilja láta telja sig einræna, og eru í eðli sínu hneigðir til þess að fara að dæmum annarra, gefa sig á vald áhrifum þeirra, sem ef til vill hafa aldrei orðið snortnir af neinu andlegu. Hefðu þeir með bænarhug ráðgast við orð Guðs til að lara, hvað Kristur hefur sagt að því er snertir þann ávöxt, sem kristinn maður á að bera, mundu þeir hafa komist að raun um, að slík sam- kvæmi voru í raun réttri meðul til þess, að hindra menn í því að þiggja heimboðið til brúðkaupsveislu Lambsins, Það ber oft við, að ungir menn-,- sem hafa fengið rækileglr fræðslu um vegu Drottins, berast afvega af sjónhverfingum mannlegra áhrifa með því að sækjaiðulega veraldlegar skemmt- anir og tengjast þeim, sem hafa fengið veraldlegt uppeldi og iðkun. Þeir selja sig í æfilangan 'þrældóm með því að sam- laga sig persónum, sem ekki hafa anda Krists. Þeir sem elska Guð í sannleika og þjóna honum, forðast að komast niður á hið lága stig heimsins með því að kjósa sér félagsskap þei-rra, sem ekki hafa skipað Kristi til öndve^is í hjörtum sínum. Þeir vilja standa stöðugir í Kristi, enda þótt sú stefna þeirra leiði þá til sjálfsafneitunar og sjálfsfórnar, Lsknislyf gegn léttúð, Kristur lifði erfiðislífi og sjálfs- fórnarlífi fyrir okkur. Getum við þá ekki lifað sjálfsafneitunarlífi fyrir hann? Er ekki frið þæging hans okkur til handa og réttlæti það, sem hann bíður eftir að geta veitt okkur, þess virði, að við veitum því rúm í hjörtum okkar? Ef hinir ungu vildu notfæra sér forðabúr Biblíunnar, mundu augu þeirra opnast fyrir verðmætum þeim, sem krýna sjélfsafneitunarlífið, og þá mundi löngunin til að taka þátt í skemmtunum heimsins þverra, Kristur fagnar yfir þyí, að ungir menn og konur láti hugam dvelja við hið göfgandi efni friðþægingarinnar. Hann tekur sér varanlegan bústað í hjörtum slíkra manna og kvenna og fyllir þau fögnuði og friði, Og kærleikur Krists í sál- unni er "lind uppsprettandi til eilífs lífs". Þeir, sem hafa þennan kærleika, hafa yndi af að tala um það, sem Guð hefur fyrirbúið þeim, sem elska hann. V I L J I N N

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.