Viljinn - 01.02.1942, Blaðsíða 11
11 -
+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
+ + + + + + ++T11+
++++ +tt+
++ + +
+++ Y N G S T U 'L1 SEHDURNIE + +
++++ ++++
++++++ ++++++
+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
Belnt yfir. Einu sinni var ungur maður á ferð og kom að
breiðu og ströngu fljóti, og bað að ferja sig
yfir. Hann hafði aldrei fyrr yfir^vatnsfall farið. Bærinn,
sem hann ætlaði til, lá þar beint á móti, sem ferjumaður
lagði frá landi. En nú reri ferjumaður í strauminn af öll-
um kröftum, svo að eigi var annað sýnna en að hann mundi
ætla sér að lenda góðan spöl fyrir o.fan bæinn. Þá spurði u
ungi ferðamaðurinn:' "Hvert ertu að fara, góði?" "Beint
yfir," svaraði ferjumaðurinn. "Ef þú heldur :þessari stefnu,
þá gæti eg hugsað að þú lentir langt fyrir ofan bæinn."
"Já, satt er það að sönnu," svaraði ferjumaðurinn, "en
þegar þú kemur út á mitt fljótið, þar sem straumurinn er
stríðastur, þá berumst við fyrir straumnum nógulangt niður
eftir. Hann faðir minn sæll var vanur að segja: "Sá sem er
góður ferjxxmaður og vill komast beint yfir straumhart fljót,
verður að fara að eins og vel kristinn maður og setja markið
nógu hátt, því•að.annars ber hann of langt niður eftir.
Eerjumaðurinn berst fyrir fljótsstraumnum, en kristinn maður
fyrir straumi heimsins."
Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur,
og æðrastu' ei, þótt straumur lífs sé þuugur,
en set þér snemma háleitt mark og mið.
Haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni,
og stýrðu s-ílian beint í Jesú nafni
á himins hlið. (M,J.)
Spegillinn. Maður nokkur var að ..kvarta yfir nágrönnum sín-
um: "Eg hef aldrei hitt verri menn en þá, sem
eru í þorpinu því ama," sagði hann. Þeir eru auðvirðilegir,
sérgóðir, ágjarni'r og hirða ekki vitund um þarfir annarra.
’'* Y I LJ'INN