Viljinn - 01.03.1942, Blaðsíða 2
- 2 -
WGMENNAMÓT Á KOMANDI SUMRI
Á ungmennamótirm að Miðengi síðastliðið sumar -var þegar
byrjað að tala um mót á næstkomandi sumri. Það var sem all-
ir teldu það sjálfsagt, að slíkt mót yrði haldið. Og ef all'
gengur vel, verður það haldið. En hvar og á hvaða tíxaa, um
það verður ekkert sagt með neinni vissu ennþá. Það er hins
vegar ekki of snemmt að hefja undirbúning undir ungmennamót-
ið nú þegar. Sumir hafa jafnvel byrjað hann fyrir löngu.
Ungmennafélag Vestmannaeyja hefur tekið þetta mál til
umræðu, og ákveðið hefur verið að byrja nú undirbúning fyrir
alvöru. En hann er fólginn í því:
1) að mynda sjóð til þess að veita hinum yngri og fá-
tækari meðlimum félagsins fjárhagslegan stuðning,
svo að þeir geti tekið þátt í mótinu.
2) að hefja nú þegar æfingar á söngvum og öðru, sem
mætti verða til ánægju og uppbyggingar á mótinu.
Á fundinum þar sem þessi mál voru rædd, var einnig
nokkuð talað um það, hvaða staður mundi ákjósanlegastur.
Það kom í ljós, að nokkrir þeirra, sem sóttu mótið að Mið-
engi, höfðu tekið svo mikilli tryggð við þann stað, að þeir
æsktu þess, að ungmennamótið yrði haldið þar aftur í sumar.
Aðrir töldu það æskilegra, að reynt yrði að finna nýjan stað,
svo að þátttakendum gæfist kostur á að kynhast nýjum stöðum.
Til fróðleiks var gengið til atkvæðagreiðslu með eða móti
Miðengi. 14 greiddu atkvæði með, 11 á móti. En flestir
hinna síðarnefndu tóku það þó fram, að þeim væri ljúft að
fara að Miðengi, ef annar heppilegri staður fyndist ekki.
Nokkuð margir voru hlutlausir. Áhuginn hér fyrir ungmenna-
mótinu virðist vera mikill.
Ekkert okkar veit, hvað fyrir kann að koma á komandi
mánuðum. Þeir atburðir gætu gerst, sem hindruðu það, að
nokkurt ungmennamót yrði haldið. Biðjum Guð að svo verði
ekki. Biðjum þess, að stríðsvindunum verði haldið burt frá
landi okkar framvegis, og kappkostum að sýna £ líferni okkai*
og starfi, að við kunnum að nota hina góðu daga réttilega.
Setjxim okkur öll það mark, að koma á ungmennamótið í
sumar. Með góðxim éhuga og nægilegum undirbúningi munum við
V I L J I N N