Viljinn - 01.03.1942, Blaðsíða 4

Viljinn - 01.03.1942, Blaðsíða 4
- 4 - HREINT AF ÖHREINTJ Einu sinni heimsótti Yiktóría drottning pappírsverk- smiðju eina. Eigandipn fór með henni um alla bygginguna og sýndi henni inn í hvern krók og kima, líka klefann, sem óhreinu tuskurnar voru geymdar í. Þegar drottningin sé all- ar ljótu og skítugu tuskurnar, sagði hún: "Hvernig er mögu- legt að gera þetta hvítt?" "ó, jú, frú," svaraði hann, "eg hefi mjög áhrifaríka efnablöndu, sem getur tekið litinn af, jafnvel þessum rauðu tuskum." i.ður en drottningin fór, komst verksmiðjueigandinn að þvx, hver g»stur hans var. Nokkrum dögurn seinna sá drottn- ingin liggja á skrifborðinu sínu heilmikið af svo fínum og gljáandi pappír, að hún hafði aldrei slíkan séð. i hverju blaði voru upphafsstáfirnir í nafni hennar prentaðir, ásamt mynd af henni sjálfri. Gjöfinni fylgdi einnig dálítill miði, sem á var ritað: "Vill drottningin vera svo góð að þiggja dálítib sýnishorn af pappímum mínum? Eg get fullvissað yðar hátign um það, að hver einasta örk af pappírnum er búin til úr óhreinu tuskunum, sem þér sáuð, er þér heimsóttuð okkur, og eg held að árangurinn sé slíkur, að jafnvel drottn- ingin verði að.undrast hann. Eg verð einnig að segja drottn ingunni það, að eg hefi fengið marga góða prédikun af þessu í verksmiðju minni. Eg hefi fengið opin augun fyrir því, hvernlg Jesús tekur að sér veslings heiðingjana og þá villtustu meðal hinna villtu, og hreinsar þé. Og hvernig hann, enda þótt syndir þeirra séu sem skarlat, getur gert þær hvítar sem snjó Og eg get eins og séð, hvernig hann setur sitt eigið nafn á þá, og eg veit hvernig fyrir þeim liggur, alveg eins og þess- um tuskum, í umbreyttu ástandi, að komast inn í konunglega höll og hljóta aðdáun, - já, þannig geta aumir syndarar feng- ið inngöngu í heimkynni hins mikla konungs, og hlotið þar aðdáun." ...oooQOQooo--- V I L J I N N

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.