Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 2

Viljinn - 01.10.1942, Blaðsíða 2
- 2 - RÁÐSTÖFUN GUÐS MES ERISTINN ÆSKULÝÐ SÍÐUSTU TÍMA. Spádómar Ritningarinnar -um tákn tímanna og boðun fagn- aðarerindisins eru að uppfyllast með hraða. ' Sér í lagi er ■þetta tilfellið með spádóma, sem varða hinn síðasta söfnuð. Aðventfólkið er spádómsfólk, og starf þess í loka'þættinum í verki Guðs á jörðinni, kemur skýrt fram í spádómunum. "Synir yðar og dætur munu spá ...... ungmenni yðar munu sjá sýnir," sagði spámaðurinn Jóel. Spámaður er sá nefndur, er flytur guðlegan boðskap. 1 þiekktri enskri fjölfræðibók er eftirfarandi skilgreining gefin á spámanni: "Persóna, sem ipnblásin er og leidd af Guði til að boða mönniim viíja hans." Samkvæmt áðurnefndum ritningarstað hefur Guð lagt þessa ábyrgð á herðar krist- innar æsku á þessum tímum. TÍminn er kominn til þess að hinir ungu í söfnuðinum fylki sér i her boðbera Guðs, og hjálpi til að ljúka við verk hans á jörðinni í skyndi. Þetta unga fólk verður að læra af hinum mikla Meistara í starfi sínu hér á jörðinni átti hann stöðugt í höggi við freistingar, sem óvinurinn sendi á leið hans til þess að reyna að gera hann óhæfan til þess verks, sem honum var falið að framkvæma, En svo helgaður var hann hinu góða mál efni, og traust hans á honum Almáttuga var svo óbifanlegt, að ekkert slíkt fékk yfirbugað hann- Hann mætti erfiðleik- unum í þeim anda, sem kemur fram í orðum hans: "Minn matur er að gjöra vilja hans, sem sendi mig, og leysa af hendi hans verk." Hvílíkt eftirdæmi fyrir unga fylgjendur hans á þessum tímum. Satt er það, að tíminn sem við lifum á, er tími marg- víslegra freistinga. En eru ekki freistingar heimslegra skemmtana, auðæfa og frægðar greinilegt kall til kristinnar æsku til enhþá meiri trúmennsku og þolgæðis í að leysa af hendi skylduverk sitt? Meistarinn hefur boðið hverjum einstaklingi meðal fylgjenda sinna, að fara út xom allan heim og boða fagnaðarerindið. Nú er ekki tími til iðju- leysis eða skemmtanafíknar. Það er ekki tími til að sækj- ast eftir veraldlegum auði. Nei, það er hinn síðasti tími, og sú þrá, sem fyllti hjarta Krists, er hann var hér meðal Y I L J I N N

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.